Vinnutími á blóðskilunardeild LSH.
Frú forseti. Ég efast um að allir geri sér grein fyrir hversu alvarlegt vandamál hér er á ferðinni. Það segir m.a. í bæklingi frá Félagi nýrnasjúkra, með leyfi forseta:
„Ef nýrun verða veik minnkar afkastageta þeirra. Ef þau bregðast alveg verður eitthvað að koma í staðinn. Annars er sjúkdómurinn banvænn.“
Þetta er mjög einfalt. Ef ekki verður gripið inn í og komið í veg fyrir að helmingur hjúkrunarfræðinganna, 8 af 16, hætti um áramót, hvað erum við þá að tala um? Nýrnasjúklingarnir geta ekki án blóðskilunar verið og ef þeir fá hana ekki í janúar þá erum við að tala um banvænan sjúkdóm. Ég vil fá skýrara svar frá hæstv. ráðherra um að hann ætli sjálfur að grípa inn í og koma í veg fyrir að helmingur af hjúkrunarfræðingunum á blóðskilunardeildinni hætti um áramót vegna lélegra sparnaðaraðgerða.