132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Sameining rannsóknastofnana iðnaðarins.

[15:19]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Já, það er rétt að verið hefur hugað að sameiningu rannsóknastofnana og þá er ég að tala um Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og Iðntæknistofnun. Nefndin sem hv. þingmaður nefndi hefur lokið störfum og þar fór fram gott starf og var mikil eining. Frumvarp er í vinnslu og mun vera langt komið af hálfu ráðuneytisins sem gengur út á það að sameina þessar stofnanir. Það er ekki ráðgert að um hlutafélagsform verði að ræða hvað varðar rekstur þessarar sameinuðu stofnunar enda held ég að það sé ekki ástæða til þess að gera svo róttækar breytingar að sinni en hins vegar tel ég að þarna geti verið um mjög mikilvæga breytingu að ræða.