132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Svör ráðherra við fyrirspurn um Byggðastofnun.

[15:37]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Frú forseti. Ég þakka forseta fyrir alveg prýðileg svör. Mér fannst þau góð. Hæstv. forseti sagði að það væri regla og það væri venja að ráðherrar svöruðu spurningum sem fyrir þá væru lagðar.

Ég hef fullan skilning á að það kunni að vera einhvers konar átök á milli stjórnarflokkanna í einstökum málum eins og um Byggðastofnun. Ég hef fullan skilning á því að hér sé ekki hægt að leggja fram stefnu ríkisstjórnarinnar í einstökum málum vegna þess að hæstv. ráðherrar hafi ekki komið sér saman um stefnu. En það eru ákveðnar lágmarksgrundvallarreglur sem gilda hér í samskiptum stjórnar og stjórnarandstöðu. Þegar hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar eða stjórnarliðsins eftir atvikum bera fram málefnalegar spurningar verða hæstv. ráðherrar að svara. Ef það er svo að hæstv. ráðherrar vita ekki svarið verða þeir a.m.k. að gefa það til kynna að þeir geti ekki á því augnabliki lagt fram hugmyndir sínar. Þeir þurfa ekki að skýra það fyrir okkur að það kunni að stafa af því að deilur séu innan stjórnarliðsins, eins og mér heyrðist á hæstv. ráðherra, en þeir þurfa að sýna mannasiði.

Sá eini skjálfti sem er í sálu minni núna og pínulítið angur er að hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra virðist skorta kunnáttu í lágmarksmannasiðum í umgengni við þingmenn í þessum sal. Þegar menn bera fram málefnalega spurningu þá reyna menn að svara henni eftir málefnalegri getu. Ef getan er ekki fyrir hendi skýra þeir út fyrir þingheimi að því miður sé það ekki hægt á þeirri stundu. Svar ráðherrans var bersýnilega þannig að hún var að skjóta sér undan því að koma með afstöðu sína. Því verður stjórnarandstaðan að ganga eftir henni við fyrsta tækifæri og ekki seinna en á morgun, frú forseti.

Því miður, liggur mér við að segja, er hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra ekki beinlínis að greiða fyrir þingstörfum nú rétt undir jólin.