132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Svör ráðherra við fyrirspurn um Byggðastofnun.

[15:40]
Hlusta

Margrét Frímannsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það fellur undir liðinn fundarstjórn forseta þegar verið er að spyrja beinna spurninga um hvort hæstv. ráðherrum beri að svara þeim spurningum sem fyrir þá eru lagðar. Verið var að leita svara hjá hæstv. forseta, sem forsetinn gaf, og þess vegna er þetta inngrip hv. þingmanns algjörlega óþarft.