132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Hollustuhættir og mengunarvarnir.

314. mál
[16:47]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þessar útskýringar og kalla eftir svari við spurningu sem ég lagði fram áðan um það hvort einnig væri átt við íþróttavelli og íþróttasvæði. Ég tel að öðrum spurningum mínum hafi verið svarað í andsvari frá hæstv. ráðherra. En er líka átt við íþróttavelli og íþróttaleikvanga?