132. löggjafarþing — 27. fundur,  22. nóv. 2005.

Röðun mála á dagskrá.

[13:50]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég held að við eigum ekki að tefja tímann lengur, við eigum að ganga til dagskrár eins og hún er prentuð hér. Samkynhneigt fólk í þessu landi hefur beðið svo lengi eftir bættri réttarstöðu að það hefur ábyggilega þolinmæði með Valgerði Sverrisdóttur til að bíða í einn dag.