Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Hæstv. forseti. Það kemur mér á óvart ef hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon, náttúruverndarsinninn sjálfur, hefur ekki vitað hvert svigrúm okkar er innan Kyoto-bókunarinnar þar sem hann var á móti á sínum tíma að við bæðum um einhverjar undanþágur í þeim efnum. Ég man ekki betur. Ég held að hv. þingmaður viti þetta allt saman. Hann reynir að þyrla því upp að á næstu 5–10 árum komi þrjú stór álver hér á landi. Hv. þingmaður sagði áðan að þetta væri allt í pípunum en hann veit að af því getur ekki orðið.
Það er rangt sem hv. þingmaður segir hér að eina áhersluatriði ríkisstjórnarinnar sé stóriðja. Við erum að setja 2,5 milljarða í nýsköpun og styðja við hinar ýmsu greinar. Hv. þingmaður rótar því í gruggugu vatni og drepur umræðunni á dreif. Ég fæ bara ekki séð, hæstv. forseti, hvernig stjórnmálahreyfingin Vinstri hreyfingin – grænt framboð getur verið á móti því að heimamenn fái rannsakaðar þær auðlindir sem eru á viðkomandi svæði. Svo er það reyndar tilfellið að verði þetta að veruleika er ekki endilega víst að álver verði fyrir valinu. Það eru til fleiri kostir í þeim efnum sem tengjast raforkunotkun hér á landi. Við horfum langt fram í tímann.
Það er beinlínis rangt sem hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon segir hér um gengi krónunnar. Gengi krónunnar er ekki komið til út af álversframkvæmdum hér á landi. Hv. þingmaður veit það. Það eru 35 milljarðar sem streyma inn í hagkerfið á þessu ári í tengslum við álversframkvæmdir og á meðan eru spákaupmenn að versla með íslensk verðbréf úti í heimi fyrir 130–140 milljarða á miklu skemmri tíma. Við skulum setja þetta í heildarsamhengi en hv. þingmaður virðist ekki hafa mikinn áhuga á því.