Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Frú forseti. Það er alveg rétt að hin nýja hagfræðikenning Framsóknarflokksins gengur út á það að stóriðjan hafi engin áhrif haft þarna. Það sé allt saman misskilningur hjá Seðlabankanum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, OECD og okkur hinum eða innlendum hagfræðingum sem hafa haldið slíku fram. Það er hagfræðideild Framsóknarflokksins, undir forustu Birkis J. Jónssonar, sem veit betur. Þetta er allt saman misskilningur. Það eru aðrir hlutir sem settu þetta af stað. Ég held að hv. þingmaður ætti að boða til fundar með Seðlabankanum og útskýra þetta fyrir þeim.
Ég veit vel um þessar mengunarkvótahugmyndir og hef m.a. spurt að því hér, ég held að ég hafi meira að segja nefnt það í síðustu viku í þinginu, hvernig menn ætli að takast á við m.a. þau mál. Ég spurði: Er það þannig að fyrstur kemur, fyrstur fær? Er kapphlaup skollið á milli þessara þriggja eða jafnvel fjögurra aðila? Er það m.a. vegna þess að sá þeirra sem fyrstur kemst í gegn vonast til þess að fá ókeypis mengunarkvóta, að fá að menga óbætt?
Staðreyndin er sú að allir þrír aðilarnir vinna samkvæmt því að áform þeirra geti orðið að veruleika. Það er dálítið sérkennilegt að heyra svo talsmenn stjórnarflokkanna eða Framsóknarflokksins koma hér og segja: Nei, nei, þetta er misskilningur, það er bara pláss fyrir einn. Það getur bara einn farið af stað. Hvernig stendur þá á því að iðnaðarráðuneytið er samningsbundið með fyrirtæki á sínum vegum, Markaðsskrifstofan í eigu iðnaðarráðuneytisins og Útflutningsráðs er aðili að samningum um undirbúning álvers, bæði í Helguvík og á Norðurlandi? Ég hygg að það sé reyndar ekki beinn aðili að stækkunaráformum Alcan í Straumsvík en þau áform eru á fullri ferð og verið var að gefa út starfsleyfi um daginn af hálfu umhverfisráðuneytisins. Allir þessir þrír aðilar eru í þeirri trú að þeir geti farið af stað innan eins til þriggja ára og þess vegna verið tilbúnir með framkvæmdir sínar 2010–2012. Þetta liggur fyrir. Þetta er veruleikinn og ráðuneytið er með í þessu og styður að því er virðist öll þessi áform. Eitthvað gengur því ekki alveg upp hér. Og ég held að það sé ekki ég sem á hér í erfiðleikum eða (Forseti hringir.) sé einhverri mótsögn við sjálfan mig heldur talsmenn stjórnmálaflokks sem svona standa að málum.