Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Hæstv. forseti. Aðeins örstutt. Af því að hv. þingmaður lagði mikla áherslu á að samfella þyrfti að vera í hlutunum og óþarft væri, heyrðist mér, að leggja þetta frumvarp fram núna, við ættum að bíða eftir öðrum frumvörpum o.s.frv., þá vildi ég að það kæmi fram að samkvæmt 40. gr. raforkulaga, sem fjallar um veitingu rannsóknarleyfa, segir, með leyfi forseta:
„Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu gilda um leyfi til þess að kanna og rannsaka orkulindir til undirbúnings raforkuvinnslu. Auk þeirra skilyrða sem þar eru talin skal umsækjandi um rannsóknarleyfi leggja fram mat á því hvernig tengja megi fyrirhugaða virkjun raforkukerfi landsins.“
Það vantar því inn í lögin um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu ákvæði hvað varðar rannsóknarleyfin sem vísað er til í raforkulögunum. Þess vegna er einmitt samfella í hlutunum. Þetta frumvarp verður að verða að lögum til þess að fullnægja þessu ákvæði í raforkulögum.