132. löggjafarþing — 27. fundur, 22. nóv. 2005.
Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
288. mál
Herra forseti. Það voru orð hv. þingmannsins sjálfs þetta með heimamennina. Það sem ég var að spyrja um var að vegna þessa frumvarps þarf auðvitað að rannsaka meir og vinna að undirbúningi frekari rannsókna á orkuvinnslu í landinu og það eru einmitt heimaaðilar sem hafa áhuga á að fá að nota þá orku til atvinnuuppbyggingar í sínum kjördæmum. Það var mín fyrirspurn.
Er hv. þingmaður að reyna að stuðla að því að hálfgerð einokun verði á því hvar orkan verði nýtt?