132. löggjafarþing — 27. fundur,  22. nóv. 2005.

Rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

288. mál
[15:38]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er líka þeirrar skoðunar að það sé mikilvægt að nýta náttúruna ósnortna. En þegar hv. þingmaður talar um að ná sátt við ríkisstjórnina og sátt vinstri grænna gengur út á það að ekkert megi virkja þá veit ég ekki almennilega hvar við eigum að nálgast.