132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[10:52]
Hlusta

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Jón Bjarnason) (Vg) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mér finnst eðlilegt að forseti upplýsi hvaða ráðherrar eru viðstaddir og gegna fyrir þá ráðherra sem eru fjarverandi og eru formlega til andsvara fyrir þeirra ráðuneyti. Þó að ráðherrar hafi varamenn inni á þingi fyrir sig til að gegna þingstörfum þá eru þeir væntanlega ekki, ef þeir eru á landinu, með varamenn fyrir sig sem ráðherra þannig að þeir ættu að geta verið hérna þess vegna.

Mér finnst eðlilegt að það liggi ljóst fyrir hverjir svara fyrir málaflokkana, ekki síst út af orðum hv. þm. Péturs Blöndals um vinnu við fjárlagagerðina. Ég verð því miður að segja, ég er í fjárlaganefnd, að jafnvel í enn ríkara mæli en fyrr hefur fjárlagagerðin verið unnin samkvæmt tilskipunum og tilskipunarerindum frá ríkisstjórninni. Að mínu viti er það því miklu frekar ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á þessum fjárlögum en fjárlaganefndin þó meiri hlutinn hafi afgreitt frumvarpið frá sér til 2. umr.