132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[10:56]
Hlusta

Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F):

Hæstv. forseti. Frumvarp til fjárlaga ársins 2006 kemur nú til 2. umr. á Alþingi. Samkvæmt starfsáætlun þingsins er gert ráð fyrir að þessi umræða fari fram á þessum degi. Það er því ljóst að okkur hefur tekist að halda áætlun við umfjöllun um frumvarpið og allt útlit fyrir að fjárlög ársins 2006 verði afgreidd frá Alþingi í samræmi við starfsáætlun þingsins.

Nú, eins og á síðasta ári, eru til umfjöllunar allir þættir frumvarpsins við 2. umr., með breytingartillögum og því sem tilheyrir. Okkur er því að takast að festa það í sessi að fjalla um frumvarpið á þennan hátt við 2. umr., í stað þess sem tíðkaðist áður að tekjuhlutinn ásamt heimildargreinum, lánsfjárlögum og öðrum þáttum málsins biði umfjöllunar við 3. umr. Þessi breyting er tvímælalaust til bóta.

Það eru hagsmunir allra aðila að niðurstöður fjárlaga liggi fyrir tímanlega, m.a. til þess að stofnunum og öðrum aðilum verði gert kleift að ljúka gerð rekstraráætlana í tíma áður en fjárlagaárið rennur upp. Það er ekki síður mikilvægt að fjárlög liggi tímanlega fyrir út frá öllu samhengi efnahagskerfisins, því þar spila fjárlög ríkisins stórt hlutverk.

Það er mikilvægt, virðulegur forseti, að áfram takist að halda góðum og traustum tökum á ríkisfjármálum. Það hefur gengið vel undanfarin ár, stjórnarflokkarnir hafa sett sér markmið í þessum efnum og vinna markvisst að því að ná þeim. Birtist það m.a. í langtímaáætlun í ríkisfjármálum — og það að henni verði fylgt eftir mun hafa mikla þýðingu varðandi efnahagslífið í landinu. Það varðar því framtíðarhagsmuni þjóðarinnar að vel takist til í þessum efnum.

Það er ljóst að við Íslendingar eigum mikla möguleika á að sækja fram á næstu árum með það að markmiði að treysta efnahagslega stöðu okkar, líkt og við höfum gert á undanförnum árum. Við höfum ýmsa möguleika á að halda áfram við að efla og byggja upp atvinnulífið og treysta innviði samfélagsins á mörgum sviðum, halda uppi hagvexti og auka kaupmátt almennings, en það liggur fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur aukist gríðarlega mikið á undanförnum árum og allt bendir til að svo muni verða áfram næstu árin.

Afrakstur alls þessa getum við nýtt til að treysta velferð þjóðarinnar enn frekar og sækja fram í samfélagi þar sem þekking og færni skipta sköpum. Við erum á þessari braut og á henni verðum við áfram ef vel er haldið á málum. Auk alls þessa þurfum við að halda áfram að hlúa að þeim traustu stoðum sem menning okkar og búseta í landinu öllu hvílir á og hefur gert gegnum tíðina.

Samkvæmt 2. mgr. 25. gr. þingskapa getur fjárlaganefnd óskað eftir umsögnum annarra fastanefnda þingsins um þá þætti frumvarpsins sem varða málefnasvið þeirra. Fjárlaganefnd óskaði eftir áliti fastanefnda um þessa þætti, einnig gerðu fastanefndir tillögur um skiptingu safnliða sem er breyting til fyrra horfs, en þessi þáttur var með öðru fyrirkomulagi á síðasta ári. Fastanefndir þingsins skiluðu umsögnum til fjárlaganefndar og eru þær birtar sem fylgiskjöl með nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar eins og mælt er fyrir um í þingsköpum.

Í frumvarpi til fjárlaga 2006 koma fram sérstakir safnliðir í einstökum málaflokkum, sem viðkomandi ráðuneyti hafa til ráðstöfunar. Hér er um nýbreytni að ræða sem miðar að því að draga upp skýrari skil milli framkvæmdarvaldsins og fjárveitingavaldsins þar sem um er að ræða ráðstöfun fjármuna af safnliðum. Í frumvarpinu koma fram upplýsingar um það í sérstökum yfirlitum, hvernig viðkomandi ráðuneyti hyggjast ráðstafa fjármunum innan viðkomandi safnliða. Þannig má fyrir fram sjá hvernig ráðuneytin hyggjast ráðstafa þessum fjármunum og er það nauðsynlegt því Alþingi þarf að gera sér sem gleggsta mynd af því hvernig fjármunum verður ráðstafað á næsta fjárlagaári.

Hins vegar er það svo að einstök ráðuneyti verða að draga upp skýrari mynd af því hvernig áformað verður að ráðstafa þessum fjármunum af safnliðum þegar kemur að fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2007 og verður gengið sérstaklega eftir því að svo verði. Þar sem um nýbreytni er að ræða að þessu sinni eru þær upplýsingar sem fram koma í frumvarpinu látnar duga, en við erum að þróa þessa framsetningu sem ég tel mjög til bóta.

Fulltrúar efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins komu á fundi fjárlaganefndar til viðræðna um tekjuhlið frumvarpsins og horfur í þjóðarbúskapnum. Spá um þjóðhagsforsendur er óbreytt frá því sem frumvarpið byggir á. Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu gerir tekjuáætlun ekki ráð fyrir að vöxtur efnahagslífsins verði eins mikill árið 2006 og á yfirstandandi ári. Þar er gert ráð fyrir að hagvöxtur á árinu 2006 verði um 4,6% og verðbólga verði um 3,8%. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann er talinn muni aukast um 2,7%. Spáð er að aukning einkaneyslu verði um 4,3% og að atvinnuleysi muni verða 1,8%. Þá er áfram gert ráð fyrir miklum viðskiptahalla á árinu 2006 og hann verði um 12,2% af landsframleiðslu.

Hæstv. forseti. Ég mun nú gera grein fyrir nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar þar sem ég fer yfir helstu þætti þess, en vísa að öðru leyti til þingskjala þar sem fram koma breytingartillögur og ítarlegt nefndarálit með skýringum.

Störf og verklag fjárlaganefndar Alþingis við vinnslu og afgreiðslu frumvarpsins hefur verið með hefðbundnum hætti. Nefndin hóf umfjöllun um málið 26. september sl. og átti þá viðtöl við fulltrúa sveitarfélaga sem gerðu nefndinni grein fyrir erindum sínum og ýmsum hagsmunamálum.

Nefndin hefur haldið 30 formlega fundi til umfjöllunar um málið og átt viðtöl við mjög marga aðila. Þá hefur nefndin átt fundi með fulltrúum ráðuneyta og einstakra stofnana, auk ýmissa aðila sem hafa sent nefndinni erindi er varða verkefni nefndarinnar. Það er því ljóst að umfang þessa verkefnis fjárlaganefndar er mikið á þessum haustdögum.

Ég vil vegna þeirra orða sem féllu hér fyrr í dag af munni hv. þm. Jóns Bjarnasonar mótmæla því sem þar kom fram og ég tel að út af fyrir sig séu þau orð ekki svara verð.

Breytingartillögur meiri hluta nefndarinnar við 2. umr. nema samtals 1.859,3 millj. kr. til hækkunar útgjalda í sundurliðun 2.

Að teknu tilliti til breytingartillagna meiri hluta fjárlaganefndar er gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs verði um 334,6 milljarðar, sem er um 7,2 milljarða hækkun frá frumvarpinu. Samkvæmt því verður tekjujöfnuður fjárlaga ársins 2006 um 19,6 milljarðar króna, sem er 5,4 milljörðum meiri afgangur af fjárlögum en fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir, og er það nálægt því að vera 2% af landsframleiðslu.

Áætlað er að innheimtar afborganir af veittum lánum ríkissjóðs verði 4.950 millj. kr. í stað 4.700 millj. kr. samkvæmt frumvarpinu, eða um 250 millj. kr. hærri. Þá er gert ráð fyrir að fjármögnun ríkissjóðs breytist með þeim hætti að tekin verði skammtímalán að fjárhæð 1.100 millj. kr., en í sjóðstreymi frumvarpsins er ekki gert ráð fyrir skammtímalánum. Á móti er nú gert ráð fyrir að ríkissjóður greiði niður löng lán að fjárhæð 12.500 millj. kr., en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að langtímalán verði greidd niður sem nemur 6.600 millj. kr. Samkvæmt þessu lækka skuldir ríkissjóðs um 11.400 millj. kr. í stað 6.600 millj. kr., eins og frumvarpið gerir ráð fyrir, eða um 4.800 millj. kr. meira en áætlað er í frumvarpinu. Það er að sjálfsögðu sérstakt ánægjuefni.

Hæstv. forseti. Helstu tillögur um breytingar á tekjuáætlun, sundurliðun 1 í A-hluta frumvarpsins, eru þær að tekjur verði 7.248,2 millj. kr. hærri en frumvarpið gerir ráð fyrir og verði því alls 334,6 milljarðar. Í breytingartillögum er gert ráð fyrir að tekjuskattur lögaðila verði 3.500 millj. kr. hærri en samkvæmt frumvarpinu, sem kemur til vegna endurmats á tekjuskatti lögaðila árið 2005 í kjölfar álagningar ríkisskattstjóra. Gert er ráð fyrir að skattar á vörur og þjónustu verði 1.520 millj. kr. hærri, þar sem mest munar um að áætlaðar tekjur af vörugjaldi af innfluttum ökutækjum verði um 1.500 millj. kr. hærri. Reiknað er með að arðgreiðslur og leigutekjur verði 2.170 millj. kr. hærri og munar þar mest um 1.280 millj. kr. meiri vaxtatekjur. Loks er reiknað með að ýmsar tekjur verði 58,2 millj. kr. hærri en gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.

Ég mun nú gera grein fyrir helstu breytingartillögum meiri hluta fjárlaganefndar er varðar sundurliðun 2, 5. gr., 6. gr. og C-hluta frumvarpsins. Það yfirlit verður ekki tæmandi en vísað er til nefndarálits meiri hlutans þar sem gerð er ítarleg grein fyrir tillögunum.

Lagt er til að fjárheimild æðstu stjórnar ríkisins verði aukin um 48,5 millj. kr., og er það vegna Alþingis, umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðunar.

Lagt er til að fjárheimild forsætisráðuneytis hækki um 11 millj. kr. frá frumvarpinu og munar þar mest um 10 millj. kr. framlag til að stofna sérstakan rannsóknasjóð, Jafnréttissjóð, sem ætlað er að veita fé til rannsókna. Markmið sjóðsins er að tryggja að hér á landi verði unnar vandaðar kynjarannsóknir sem geti stuðlað að framgangi aukins jafnréttis og jafnri stöðu kynjanna.

Fram eru lagðar ýmsar tillögur sem hækka fjárheimild menntamálaráðuneytis samtals um 690,2 millj. kr.

Nokkrar tillögur varða háskólastarfsemi, rannsóknir og framhaldsskóla, en þar er m.a. um að ræða 18 millj. kr. framlag til menntunar á sviði kvikmyndagerðar. Gerð er tillaga um 100 millj. kr. fjárheimild til sérstaks átaks til að efla starfs- og endurmenntun ófaglærðra einstaklinga með litla menntun, jafnframt því að bæta stöðu erlends vinnuafls í íslensku samfélagi. Er þetta í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 15. nóvember sl. til að greiða fyrir samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um áframhaldandi gildi kjarasamninga. Gert er ráð fyrir að símenntunarstöðvar í landinu komið að þessum verkefnum.

Vegna endurskoðaðra áætlana Lánasjóðs íslenskra námsmanna er lagt til að framlag til sjóðsins hækki um 27 millj. kr. frá frumvarpinu. Ýmsar tillögur eru um framlög til safnamála og er gerð ítarleg grein fyrir þeim í nefndaráliti meiri hlutans. Lögð er til 65 millj. kr. hækkun framlags til styrkja vegna kvikmyndagerðar. Þá eru tillögur um framlög til lista og fræðistarfa, þar sem m.a. er um að ræða fræðasetur, þekkingarsetur og háskólasetur víða um landið. Loks eru ýmsar tillögur um framlög til íþrótta- og æskulýðsmála á ýmsum sviðum, bæði er varðar rekstur og stofnkostnað.

Tillögur eru um að fjárheimild utanríkisráðuneytis lækki um 2 millj. kr. Annars vegar er um það að ræða að fjárheimild að fjárhæð 4 millj. kr. vegna mannréttindamála færist til dómsmálaráðuneytis, en hins vegar er gerð tillaga um 2 millj. kr. framlag vegna húsnæðiskostnaðar sendiráðsprests í London.

Á sviði landbúnaðarráðuneytis er lagt til að fjárheimild hækki um alls 77,6 millj. kr. Má þar helst nefna 12 millj. kr. tímabundna fjárheimild til Veiðimálastofnunar vegna rannsóknarverkefnis, 42 millj. kr. fjárheimild til nýrrar Landbúnaðarstofnunar og sérstaka fjárheimild vegna Hekluskóga.

Tillögur eru um að fjárheimild sjávarútvegsráðuneytis hækki um 101,9 millj. kr. Um er að ræða framlag vegna gagnagrunns um ástand og nýtingu fiskstofna, 50 millj. kr. hækkun á framlagi til Hafrannsóknastofnunar og 40,9 millj. kr. fjárheimild vegna Fiskistofu.

Lagt er til að fjárheimild dóms- og kirkjumálaráðuneytis verði aukin um alls 79,8 millj. kr. Um er að ræða 4 millj. kr. hækkun vegna mannréttindamála og 15 millj. kr. fjárheimild vegna tímabundinna starfa sérstaks ríkissaksóknara. Þá er gerð tillaga um framlag til framkvæmda við stækkun og endurbætur fangelsa. Um er að ræða breytingar á fangelsum á Kvíabryggju, þar sem gert er ráð fyrir fjölgun fangarýma og á Akureyri. Miðað er við að hafist verði handa við nauðsynlegar framkvæmdir á Akureyri seinni hluta næsta árs og er gert ráð fyrir að fjárframlag til þess verkefnis verði endurmetið fyrir gerð fjárlaga ársins 2007. Samkvæmt áætlun dómsmálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að í framhaldi af þeim framkvæmdum verði ráðist í úrbætur í fangelsinu á Litla-Hrauni og hugað að byggingu nýs fangelsis við Reykjavík.

Loks eru tillögur er varða þjóðkirkjuna og aðstöðu við kirkjur.

Gerðar eru tillögur um að fjárheimild félagsmálaráðuneytis hækki um 472 millj. kr. Um er að ræða nokkrar tillögur er varða málefni fatlaðra. Þá er lagt til að heimild Atvinnuleysistryggingasjóðs til greiðslu atvinnuleysisbóta hækki um 400 millj. kr. í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um áframhaldandi gildi kjarasamninga. Loks eru nokkrar tillögur er varða ýmsa starfsemi á sviði ráðuneytisins.

Lagt er til að fjárheimild heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis verði aukin um 155,4 millj. kr. Um er að ræða ýmsar tillögur sem eru tilkomnar vegna þess að fallið er frá fyrri tillögum er fram koma í frumvarpinu og varða breytingar á greiðslu uppbótar til elli- og örorkulífeyrisþega til að mæta kostnaði við rekstur bifreiða. Þá eru einnig ýmsar tillögur er varða heilbrigðisstofnanir, öldrunarstofnanir og sjúkraflutninga.

Lagt er til að fjárheimild fjármálaráðuneytis verði lækkuð um 50 millj. kr. Þar er m.a. um það að ræða að fjárheimild launa- og verðlagsliðar frumvarpsins verði aukin um 100 millj. kr. til að mæta áhrifum af samkomulagi við aðila á vinnumarkaði, en hins vegar lækki fjárheimild þessa liðar um 150 millj. kr. og hann verði alls 690 millj. kr. í fjárlögum.

Tillögur eru um að fjárheimild samgönguráðuneytis verði aukin um 83,7 millj. kr. Auk nokkurra millifærslna milli fjárlagaliða, m.a. er varða ferðamál, má nefna það helst að fjárheimild Vaktstöðvar siglinga er hækkuð um 10 millj. kr., auk þess eru tillögur er varða rekstur Flugmálastjórnar.

Lagt er til að fjárheimild iðnaðarráðuneytis hækki um 24,6 millj. kr. Auk millifærslna og leiðréttinga ber helst að nefna 25 millj. kr. viðbótarfjárheimild vegna jöfnunar kostnaðar við dreifingu raforku. Þar er gengið út frá því að þau mörk sem miðað hefur verið við er varðar niðurgreiðslur ríkissjóðs á raforkukostnaði til húshitunar verði hækkuð úr 35 þús. kwst. á ári í 40 þús. kwst. á ári.

Lagt er til að fjárheimild viðskiptaráðuneytis verði aukin um 88,9 millj. kr. Þar ber hæst tillaga um að fjárheimild Fjármálaeftirlitsins verði aukin um 101 millj. kr. vegna aukinna verkefna og fjölgunar starfsmanna. Að öðru leyti er um að ræða millifærslur og leiðréttingar á nokkrum fjárlagaliðum ráðuneytisins.

Tillaga er um að fjárheimild Hagstofu Íslands verði aukin um 15 millj. kr. til að bregðast við tilmælum frá alþjóðastofnunum er varða verkefni Hagstofunnar og til þess þarf að auka við starfsemina.

Gerðar eru tillögur um að fjárheimild umhverfisráðuneytis hækki um 62,7 millj. kr. Þar er m.a. um að ræða tillögu um fjárheimild til Náttúrufræðistofnunar vegna gerðar náttúrufarskorta af landinu og lagt er til að sjö náttúrustofur fái tímabundnar fjárheimildir að fjárhæð 5 millj. kr. hver vegna tiltekinna rannsóknarverkefna. Í því sambandi er lögð rík áhersla á að viðkomandi rannsóknarverkefni verði unnin í samráði við Náttúrufræðistofnun Íslands eða aðrar stofnanir þar sem það á við. Einnig er sérstök áhersla lögð á að náttúrustofurnar skili umhverfisráðuneyti skýrslum um framgang viðkomandi rannsóknarverkefna.

Loks er lögð til 5 millj. kr. fjárheimild til Veðurstofu Íslands til áframhaldandi háloftarannsókna vegna veðurspáa í tengslum við Keflavíkurflugvöll.

Hæstv. forseti. Ég hef í stuttu máli farið yfir helstu tillögur er varða sundurliðun 2 en í tengslum við ýmsar fjárheimildir er í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar og í sérstökum yfirlitum gerð grein fyrir skiptingu þeirra.

Í breytingartillögu við sundurliðun 4, þ.e. C-hluta, er lagt til að breytt verði framsetningu Lánasjóðs íslenskra námsmanna vegna endurmats á áætlunum sjóðsins. Helstu breytingarnar frá frumvarpinu eru þær að gert er ráð fyrir að hreinar fjármunatekjur aukist um 330 millj. kr. og verði neikvæðar um 620 millj. kr. Framlag úr A-hluta ríkissjóðs eykst um 27 millj. kr. og nemur þar 4.477 millj. kr. Er þá miðað við að ríkissjóður leggi til 51% af áætluðum útlánum sjóðsins eða 4.213 millj. kr., auk 364 millj. kr. vegna reksturs sjóðsins en frá dragist 100 millj. kr. sem er áætlað ónotað ríkisframlag í árslok yfirstandandi árs sem lagt verður til í lokafjárlögum 2005 að færist yfir á árið 2006.

Áætlað er að innheimtar afborganir af veittum lánum nemi 3.800 millj. kr. og að sjóðurinn greiði 3.500 millj. kr. í afborganir af teknum lánum og jafnframt er áætlað að handbært fé aukist um 50 millj. kr. af þessum sökum. Til þess að fjármagna aukin útlán þarf sjóðurinn að taka 200 millj. kr. meiri lán en áætlað er í fjárlagafrumvarpinu og eru lántökurnar því áætlaðar 5.100 millj. kr.

Varðandi 5. gr. frumvarpsins er lögð til 200 millj. kr. hækkun á lántökuheimildum lánasjóðsins eins og ég hef áður farið yfir og er í ljósi endurskoðaðra áætlana.

Þá er lagt til að heimild til veitingar ríkisábyrgðar á lántökum Landsvirkjunar verði aukin um 4 milljarða og er það í ljósi endurskoðaðra fjárfestingaráætlana fyrirtækisins og samsvarandi aukningar á lánsfjárþörf.

Þá eru í niðurstöðum fjárlaganefndar nokkrar breytingartillögur við 6. gr. frumvarpsins og eru þær skýrðar í sérstöku þingskjali og vísa ég til þess.

Hæstv. forseti. Ég hef lokið við að gera grein fyrir nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar. Undir það rita hv. þingmenn Magnús Stefánsson, Einar Oddur Kristjánsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Birkir J. Jónsson, Drífa Hjartardóttir, Ásta Möller og Bryndís Haraldsdóttir.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem skýrðar hafa verið og gerð er tillaga um í sérstökum þingskjölum.

Ég vil í lok máls míns þakka samstarfsfólki mínu í fjárlaganefnd, stjórnarliðum og stjórnarandstæðingum, fyrir mjög gott og ánægjulegt samstarf nú á haustdögum. Starfsfólki ráðuneyta og stofnana sem nefndin hefur átt samskipti við þakka ég sömuleiðis. Síðast en ekki síst vil ég fyrir hönd fjárlaganefndar þakka starfsfólki Alþingis fyrir sérstaklega gott samstarf og alla þá ómetanlegu aðstoð sem það veitir okkur í störfum okkar.