132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[11:18]
Hlusta

Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi athugasemd hv. þm. Einars Más Sigurðarsonar um Byggðastofnun og spurningu hans um það hvort það sé ekki mikilvægt að eyða óvissu þá er það einfaldlega þannig að það er auðvitað mjög mikilvægt að eyða þeirri óvissu. Ég vonast auðvitað til þess að það megi verða sem allra fyrst.