Fjárlög 2006.
Frú forseti. Ég hnaut um þau orð hv. þingmanns að Seðlabankinn stæði einn í baráttunni við verðbólguna. Nú erum við hér að leggja til og sjá hækkun á afgangi fjárlaga um tæplega 20 milljarða, það eru 2% af landsframleiðslu. Ég hugsa að leitun sé á löndum í Evrópu sem hafa annan eins afgang á fjárlögum. Ég vil því að hv. þingmaður útskýri betur að Seðlabankinn standi einn í baráttunni við verðbólguna.
Síðan erum við búin að selja Símann og af 66 milljörðum fóru 32 til að borga erlendar skuldir, borga þær upp með erlendri mynt, það breyttist ekki neitt hér innan lands. En afgangurinn, fyrir utan eitthvert smáræði, 2,5 milljarða, er frystur í Seðlabankanum og virkar nákvæmlega eins og skattahækkun, virkar nákvæmlega eins á atvinnulífið og skattahækkun, þ.e. upp á 32 milljarða á þessu ári. Hvernig getur hv. þingmaður sagt að Seðlabankinn standi einn?