Fjárlög 2006.
Frú forseti. Það er rétt að róa hv. þingmann (Gripið fram í.) með því að rifja það upp að ég benti einmitt á að munur væri á því sem lagt væri til nú og því sem hefði verið gert þegar fjárlagafrumvarpið kom fram og það bæri að virða það. Það er hárrétt að vekja athygli á því að verið er að auka afganginn. En jafnframt varaði ég við í ræðu minni að því miður væri megnið af þeim tölum ekki tengt raunveruleikanum heldur væri hluti af þeim sýndarveruleika sem ríkisstjórnin hefur því miður sýnt gagnvart ríkisfjármálum í allt of langan tíma.
Hins vegar er ljóst og það kom fram í máli mínu, hv. þingmaður, að meiri hlutinn á Alþingi hefur ekki þau gögn sem hann þarf til þess að sýna framkvæmdarvaldinu það aðhald sem nauðsynlegt er. Ég vona og hef þá trú að hv. þingmaður sé sammála mér í því að mikil nauðsyn sé á að ná aga í ríkisfjármálunum. En til þess að svo megi verða þarf löggjafinn að (Forseti hringir.) ná utan um framkvæmdarvaldið.