132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[12:34]
Hlusta

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Einar Már Sigurðarson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að ég var ekki búinn að svara öllu sem fram kom í fyrra andsvari hjá hv. þingmanni og það er varðandi stýrivextina og Seðlabankann. (Gripið fram í.) Það er auðvitað eðlilegt að fara yfir það einu sinni enn að hv. þingmaður hefur talað um það mjög lengi að Seðlabankinn væri á rangri för. Það hafa margir hv. þingmenn reynt að koma því inn hjá hv. þingmanni að þetta sé samtengt, að meðan ríkisvaldið beiti ekki þeim áhrifum sem það hefur sé verið að ýta undir að Seðlabankinn þurfi að hækka stýrivexti. Ég vona svo sannarlega að hann þurfi ekki að gera meira af því, en því miður, frú forseti, hefur maður af því áhyggjur meðan við sitjum uppi með jafnábyrgðarlausan stjórnarmeirihluta eins og við gerum hér, að meiri hlutinn virðist ekki geta áttað sig á því að þrátt fyrir að mikið fjármagn streymi inn í ríkissjóð þá þarf að sýna aga í ríkisfjármálum. Og ég hélt, frú forseti, að hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson væri að hluta til a.m.k. sammála mér í þessum efnum.