Fjárlög 2006.
Virðulegur forseti. Eitt langmikilvægasta verkefni í stjórn ríkisfjármála er að halda aftur af vexti samneyslunnar. Ríkisstjórninni og stjórnarmeirihlutanum hefur tekist það bærilega vel á undanförnum árum eins og hér hefur komið fram og í raun og veru er það mun mikilvægara mál en hvort afgangur á fjárlögum sé einum milljarði meiri eða minni. Ég vil spyrja hv. þm. Einar Má Sigurðarson hvort hann sé ekki sammála þessu. Ég veit að hann er það.
Í framhaldi af því vil ég vekja athygli að í breytingartillögum sem liggja hér fyrir frá hv. þingmönnum Samfylkingarinnar eru útgjöld upp á nokkra milljarða og þar er að langmestu leyti um að ræða útgjaldaliði sem auka samneysluna. Ég vil því gjarnan fá sjónarmið hv. þm. Einars Más Sigurðarsonar á þessu atriði.