Fjárlög 2006.
Frú forseti. Ég var kominn þar í ræðu minni fyrir matarhlé sem við vorum að ræða um efnahags- og atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Ég var einmitt að ræða um þá ofuráherslu sem ríkisstjórnin leggur á stóriðjuframkvæmdir, sem hefur verið þjappað saman á stuttu tímabili. Allir efnahagssérfræðingar og fulltrúar í atvinnulífinu vöruðu við að fara í svo miklar stórframkvæmdir í svo litlu hagkerfi sem Ísland. Þeir töldu að það mundi keyra upp gengið, keyra upp viðskiptahallann og hafa gríðarleg ruðningsáhrif fyrir annað atvinnulíf. Það er kannski það alvarlegasta sem við stöndum frammi fyrir í dag, þ.e. staða útflutningsgreinanna, samkeppnisstaða þeirra gagnvart háu gengi, háum vöxtum og mikilli þenslu. Í kjölfarið skerðist samkeppnisstaðan.
Við breytingar á skattbyrðinni á síðasta þingi kom skýrt fram hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði að þar væri gengið fram algerlega andstætt áherslum Vinstri grænna. Við höfum lagt áherslu á öfluga samfélagsþjónustu sem fjármögnuð sé af þjóðinni sameiginlega, m.a. með sköttum en ekki notendagjöldum, hvort sem það eru skólagjöld, álögur á sjúklinga eða aðra sem þurfa á þjónustunni að halda. Vinstri hreyfingin – grænt framboð vill hins vegar endurskoða skattkerfið, gera það réttlátara og markvissara. Hefur þingflokkurinn lagt fram þingmál í þeim efnum, sem fylgir með álitinu sem fylgiskjal. Nánar verður vikið að því síðar.
Norðurlöndin koma vel út í öllum lífsgæðakönnunum. Þar hefur hið opinbera tryggt ákveðinn jöfnuð. Vinstri hreyfingin – grænt framboð mótmælir þeirri stefnu ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks að lækka skatta þeirra sem hæstar hafa tekjurnar og hækka álögur á þeim sem hallari fæti standa og eru umfram aðra háðir samfélagsþjónustunni. Gini-stuðull svonefndur, sem notaður hefur verið til að bera saman launamun og tekjuskiptingu í alþjóðlegu samhengi, sýnir að jöfnuður er hvergi meiri í heiminum en á Norðurlöndum. Þar hefur þó orðið á ein hastarleg og snögg breyting á síðustu árum. Ísland siglir hraðbyri í burtu frá hinum ríkjum Norðurlandanna. Misskipting eða ójöfnuður hefur aukist gríðarlega á síðustu árum eins og fram kemur í þessu mati. Danmörk er enn það land innan OECD þar sem jöfnuður er mestur. Gini-stuðullinn svokallaði fyrir Danmörku er undir 25. En því lægri tala sem þessi stuðull er því jafnari er tekjuskiptingin innan samfélagsins. Í fjórða, fimmta og sjötta sæti, neðan frá talið, koma svo Svíþjóð, Noregur og Finnland þar sem þessi stuðull er rúmlega 25. Frá árinu 1995 hefur Gini-stuðullinn fyrir Ísland hækkað úr 21 í 31. Árið 1995 var jöfnuður einna mestur hér á landi, af þeim fjórum löndum sem borið var saman við, en nú erum við með meiri ójöfnuð í tekjum innan samfélagsins en hin Norðurlöndin. Aðeins á um tíu árum (SigurjÞ: Er þetta samvinnuhugsjónin?) hefur mismunurinn aukist, samkvæmt þessum mælikvarða, frá 21 í 31. Já, hvar er samvinnuhugsjónin sem einmitt var styrkur íslensks samfélags á síðustu öld?
Í krafti samvinnuhugsjónarinnar sóttum við fram til bættra lífskjara og náðum árangri, í félagshyggju og samhjálp með öflugu velferðarkerfi. En síðustu ár sýna að við erum þar á undanhaldi. Ójöfnuður eykst hér og er meiri í okkar litla samfélagi en í nágrannalöndunum Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Er það þessi þróun sem Framsóknarflokkurinn, sem einu sinni kenndi sig við félagshyggju vill sjá halda áfram? (Landbrh.: Og kennir sig enn.) Og kennir sig enn, frú forseti, segir hæstv. landbúnaðarráðherra.
Þeim fækkar stöðugt framsóknarmönnunum sem eru sammála flokksforustunni um hvert beri að stefna í þeim efnum. Verkin tala og þau sýna að misskipting vex í íslensku samfélagi með Framsóknarflokkinn í stjórn.
Þegar lög um breytingar á skattkerfinu voru samþykkt á síðasta þingi benti Vinstri hreyfingin – grænt framboð á að breytingar á tekju- og eignarskatti kæmu langbest út fyrir þá efnameiri í þjóðfélaginu. Landssamband eldri borgara lagði á síðasta ári fram útreikninga sem sýnir vel að skattbyrðin hefur aukist á þeim sem hafa lægstu samfélagslaunin. Meginástæða þessa er að skattleysismörkin hafa ekki fylgt þróun verðlags eða launa. Á árinu 1988 voru skattleysismörkin við rúmar 44 þús. kr. Ef skattleysismörkin hefðu þróast með sama hætti og hækkun vísitölu neysluverðs væru þau nú rúmlega 100 þús. kr. Skattleysismörkin voru 75 þús. kr. á árinu 2005 en verða 79 þús. kr. á árinu 2006. Ef skattleysismörkin hefðu fylgt hækkun neysluverðs væru ráðstöfunartekjur af fyrstu 100 þús. kr. tekjunum tæplega 8 þús. kr. hærri en þær eru nú. Sé einungis horft á árin 2005 og 2006 þá festi ríkisstjórnin hækkun persónuafsláttar árið 2006 við 2,5%. Vísitala neysluverðs hækkar hins vegar líklega um nálægt 4% á árinu. Ef persónuafsláttur hefði fylgt þeirri hækkun yrðu skattleysismörkin rúm 80 þús. kr. en ekki 79 þús. kr. Allar þessar upphæðir skipta máli þegar um lægstu tekjur er að ræða. Ríkisstjórnin er því í raun alltaf að færa skattleysismörkin neðar.
Þessi framkvæmd kemur þeim verst sem lægstar hafa tekjurnar og versta þjóðfélagslega stöðu hafa hvað tekjur varðar. Vinstri hreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á að lágmarkskrafa sé að skattleysismörk fylgi almennum verðlagsbreytingum.
Tekjumyndun í þjóðfélaginu hefur breyst gífurlega á síðustu árum. Sífellt fleiri Íslendingar hafa mjög háar tekjur af eignum sínum eins og hér hefur verið rakið. Þær tekjur bera 10% skatt meðan skattprósentan á launatekjur er um 37%. Til það jafna og gera skattlagninguna réttlátari hefur Vinstri hreyfingin – grænt framboð lagt fram frumvarp um að tekjuskattur af fjármagnstekjum einstaklinga utan rekstrar hækki úr 10% í 18% eftir að 120 þús. kr. fjármagnstekjum er náð. Við viljum að tekjur af eðlilegum sparnaði og nokkuð ríflega góðum sparnaði séu skattfrjálsar. En séu fjármagnstekjur hreinlega framfærslufé viðkomandi þá teljum við eðlilegt að viðkomandi greiði skatta í líkingu við það sem gerist með launafólk.
Í fylgigögnum með frumvarpinu eru dæmi sem sýna að skattlagning fjármagnstekna er almennt lægri hér á landi en hjá flestum viðmiðunarlanda okkar. Núverandi ríkisstjórn létti skattbyrðinni mest af stóreignamönnum þegar eignarskatturinn var afnuminn. 2. minni hluti leggur til, nú þegar stór hluti tekna í þjóðfélaginu skapast af eignum og arði, að skattbyrði verði réttlátari með því að jafna betur skatta af tekjum af launum og tekjum af fjármagni og arðgreiðslum. Nefndarálit Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um þessi mál frá síðastliðnu þingi fylgja sem fylgiskjal með frumvarpinu.
Áherslur ríkisstjórnarinnar koma vel fram þegar aukning á útgjöldum einstakra ráðuneyta undanfarin ár eru skoðuð. Hækkun á fjárlögum 2004 til frumvarpsins 2006 er rúm 14%. Verulegur hluti aukningarinnar er vegna aukins framlags til þróunarmála og alþjóðlegs hjálparstarfs hjá utanríkisráðuneytinu. Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur lagt áherslu á að framlög til þróunarhjálpar verði aukin en því miður hefur ríkisstjórnin sett verulegar fjárhæðir undir þennan lið sem aðstoð við friðargæslu. En sú aðstoð reynist síðan í raun tengjast hernaði Bandaríkjamanna og NATO í Afganistan og Írak. Illu heilli studdu forustumenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins innrás Bandaríkjamanna í Írak. Þeir eru enn tengdir þeim hernaði og hörmungum sem dynja á íbúum þess stríðshrjáða lands. Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur mótmælt þátttöku Íslendinga í þessum hernaði.
Í þessum fjárlögum vekur þó sérstaka athygli að í mörgum tilfellum virðast gilda önnur lögmál um aðhald og sparnað hjá aðalskrifstofum ráðuneytanna en hjá undirstofnunum þeirra. Nefna má að þrátt fyrir að ákveðin verkefni hafi verið færð, t.d. frá aðalskrifstofum landbúnaðar- og samgönguráðuneyta með stofnun Landbúnaðarstofnunar og Ferðamálastofu, kemur það aðeins að litlu leyti fram í breyttum fjárheimildum til ráðuneytanna sjálfra.
Frú forseti. Af því að hæstv. landbúnaðarráðherra er við umræðuna hefði ég gjarnan viljað heyra ráðherrann skýra stöðu Landbúnaðarstofnunar, sem stofnuð var með lögum á síðasta þingi. Þegar frumvarpið var kynnt átti Landbúnaðarstofnun ekki að leiða til aukinna útgjalda heldur stóð til að færa verkefni á einn stað. Það átti meira að segja að leiða til aukinnar hagkvæmni. Þar var embætti yfirdýralæknis, embætti veiðimálastjóra og aðfangaeftirlitið. Ýmis verkefni sem voru bæði í landbúnaðarráðuneytinu og hjá Bændasamtökunum átti að færa undir eina stofnun. Ég var reyndar ekki sammála þeim rökum. Ég taldi að málum væri best komið eins og þau voru þá, með lítils háttar breytingum. Þá var því haldið fram að þetta þýddi ekki aukin útgjöld.
Í þessu fjárlagafrumvarpi kemur fram að þessi aðgerð, stofnun Landbúnaðarstofnunar, eykur útgjöld miðað við það sem áður var. Það snýr ekki aðeins að stofnuninni sjálfri heldur var einnig visst hagræði fyrir hendi í rekstrinum. Veiðimálastjóri var t.d. staðsettur í húsnæði Veiðimálastofnunar og naut þar hvor hagræðis af sameiginlegu húsnæði. Nú færist aukinn kostnaður á þær stofnanir sem eftir verða. Til þessa var ekki tekið tillit í þessum færslum. Það er áhyggjuefni hvernig málefni Landbúnaðarstofnunar standa, bæði fjárhagslega og skipulagslega, ekki síst í ljósi þess hve mikilvæg þau verkefni eru.
Þarna á að vera öflug rannsóknaraðstaða og eftirlit, t.d. með slátrun, eða hættulegum sjúkdómum sem gætu borist til landsins. Ég hefði gjarnan vilja heyra um stöðu Landbúnaðarstofnunar hvað fjármál og skipulagsmál varðar, frú forseti.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á að góð háskólamenntun er undirstaða framfara í mörgum atvinnugreinum. Í nefndarálitinu er stefna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í menntamálum rakin mjög ítarlega og varað við þeirri stefnu hæstv. menntamálaráðherra að stytta nám til stúdentsprófs nær eingöngu í því augnamiði að spara ríkissjóði fé. Ríkissjóður ber fjárhagslega ábyrgð á framhaldsskólanum og sér vafalaust einhvern sparnað í því að stytta nám til stúdentsprófs. En jafnframt er gert ráð fyrir að hluti af því námi sem nú fer fram í framhaldsskólunum færist niður í grunnskólann og því færist aukinn kostnaður yfir á sveitarfélögin. Ekki er mér kunnugt um að neinar viðræður séu komnar í gang á milli ríkis og sveitarfélaga um að þau taki að sér aukinn hlut framhaldsskólans. Þessi áætlun um styttingu náms til stúdentsprófs er á röngu spori og í okkar tillögum er gert ráð fyrir því að af þeirri leið verði snúið. Við leggjum þvert á móti til að starf og nám á sviði þessara skóla verði frekar byggt upp og eflt.
Hvað menntamálin varðar að öðru leyti vísa ég til góðs nefndarálits fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í menntamálanefnd og ræðunnar sem hún flytur hér á eftir, hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir.
Heilbrigðis- og tryggingamálin og kjör og þjónusta við aldraða eru líka stór málaflokkur sem við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði leggjum þunga áherslu á að standa á bak við. Þar greinir okkur og ríkisstjórnina á. Ríkisstjórnin vill sníða þeim málaflokki sem þrengstan stakk.
Sem dæmi má nefna að við 2. umr. eru skornar niður fjárveitingar sem lagðar voru til við 1. umr. til sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva, ekki háar upphæðir en þó einar 60 milljónir kr. Þessar upphæðir áttu væntanlega að fara til þess að standa að litlu sjúkrahúsunum úti á landi sem geta lent í þessari skerðingu. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir ári síðan voru uppi tillögur hliðstæðar þessum, um að skera niður starfsemina á Blönduósi, á Hvammstanga, á Patreksfirði, í Bolungarvík, í hagræðingar- og sparnaðarskyni eins og það er kallað. Með þeim tillögum sem hér eru uppi um að skera aftur niður framlög sem þó var búið að gera tillögur um í 1. umr. finnst mér að verið sé að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Það sama á við um þær bætur og þann stuðning sem átti að leggja til aldraðra og öryrkja, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu við 1. umr., upp á annars vegar 100 millj. kr. til starfsþjálfunar og hins vegar nærri 400 millj. kr. í sérstakan tekjutryggingarauka, sem eru nú felldar niður. Þetta sýnir vel áherslu ríkisstjórnarinnar í þessum málum.
Málefni öryrkja eru í sömu stöðu og við ræddum á síðasta þingi. Í mars 2003 undirrituðu Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, samkomulag um hækkun grunnlífeyris öryrkja frá 1. janúar 2004. Samkomulag þetta var samþykkt í ríkisstjórn. Í fréttatilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu var gert ráð fyrir að þessar viðbótargreiðslur hefðu þá numið rúmum 1 milljarði kr. Fram hefur komið í allri þessari umræðu að þessi samningur hefur ekki verið efndur að mati Öryrkjabandalagsins og að enn standi 500–600 millj. kr. út af til þess að svo sé. Við leggjum til að við þann samning verði staðið.
Í málflutningi og tillögum okkar hér á Alþingi höfum við lagt áherslu á gjaldfrjálsan leikskóla. Við teljum það eitt stærsta baráttumálið að jafna og bæta rétt og kjör barnafólks. Við fögnum að sjálfsögðu auknum framlögum til barnabóta í frumvarpinu en þegar til lengri tíma er litið er það eitt mesta hagsmunamál þjóðarinnar að foreldrum séu sköpuð skilyrði til samveru með börnum sínum. Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur haft forustu í umræðunni um gjaldfrjálsan leikskóla og þingflokkurinn hefur í tillögu til þingsályktunar lagt til að unnið verði að því að gera leikskólann gjaldfrjálsan í áföngum. Slíkt jafnar aðstöðu barnafjölskyldna og gefur þeim aukið svigrúm hvað varðar tekjur og fjölskyldulíf. Til þess að þetta sé mögulegt er lagt til að ríkið komi til móts við sveitarfélögin með sérstakri fjárveitingu til að hrinda í framkvæmd fyrsta áfanga áætlunar um gjaldfrjálsan leikskóla fyrir alla. Nánari grein er gerð fyrir þessu máli í þingsályktunartillögu þingmanna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um gjaldfrjálsan leikskóla.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð vill vernda íslenska náttúru og auðlindir lands og sjávar. Náttúruauðlindir eiga að vera sameign landsmanna og þær á að nýta í þágu almannahagsmuna án þess að gengið sé á umhverfið. Með hliðsjón af því er mikilvægt að efla stofnanir á þessu sviði og gera þeim kleift að sinna þýðingarmiklu hlutverki sínu.
Mikið skortir á að þetta sé metnaðarmál af hálfu ríkisstjórnarinnar og fjárlagatillögurnar bera þess merki að stofnanir á sviði umhverfismála og umhverfisráðuneytisins eru í verulegu fjársvelti, enda höfum við orðið vör við það í umræðum á Alþingi um þau mál sem lúta að umhverfismálum að þau eru ekki hátt skrifuð hjá ríkisstjórninni. Er þar skemmst að minnast lagafrumvarps um vatnalög sem er keyrt hér áfram af iðnaðarráðherra Framsóknarflokksins en frumvarp til laga um vatnsvernd, sem er á ábyrgð umhverfisráðherra, hefur ekki enn litið dagsins ljós. Áherslan er því alveg ljós, umhverfismálin eru ekki mál þessarar ríkisstjórnar, síður en svo, þveröfugt við það sem við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði viljum.
Við viljum leggja áherslu á að auka fjárframlög til þjóðgarða og friðlýstra svæða og til landvörslu. Jafnframt er vakin athygli á að hvergi er ætlað fjármagn til náttúruverndaráætlunar, sem þó hefur verið samþykkt hér á Alþingi og var gumað af á sínum tíma og að mörgu leyti var það vel. Varðandi umhverfismálin frekar er vísað til nefndarálits fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í umhverfisnefnd, hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur.
Allmargar beiðnir um upplýsingar um fjárlagavinnuna liggja óafgreiddar hjá ráðuneytum og nefndin á eftir að kalla fulltrúa nokkurra stofnana á sinn fund til að gefa skýringar áður en hægt er að ljúka fjárlagagerðinni fyrir 3. umr.
Flutningsmaður hefur ítrekað lagt til breytt vinnulag við gerð fjárlaga og sýnist það aldrei brýnna en nú. Nauðsynlegt er að fjárlaganefnd taki til efnislegrar umræðu stöðu fjárlaga og raunkostnað, bæði á vor- og haustþingi. Það verklag sem nú viðgengst, að koma eftir á með óskir um samþykki á útgjöldum umfram heimildir, er ekki í samræmi við lög um fjárreiður ríkisins.
Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2006 og tillögum sem liggja fyrir frá ríkisstjórninni og meiri hluta fjárlaganefndar er gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs á næsta ári nemi um 315 milljörðum kr. Samkvæmt því er gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs dragist saman frá yfirstandandi ári. Þó er ljóst að framlög til fjölmargra málaflokka eru óafgreidd og bíða þau úrvinnslu og afgreiðslu við 3. umr.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur það sem sitt stefnumið að efla samfélagsþjónustu og velferðarkerfið og tryggja að fjárhagsleg staða fólks skerði aldrei möguleika þess til þess að njóta opinberrar þjónustu og félagslegs öryggis. Aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar bitna mest á öldruðum, sjúklingum, öryrkjum og þeim sem lægstar hafa tekjurnar og sést best í skattaáherslum þessarar ríkisstjórnar.
Fjölmargir málaflokkar fjárlaga bíða afgreiðslu við 3. umr. og verður þá gerð nánari grein fyrir þeim.
Frú forseti. Ég vil gera grein fyrir nokkrum breytingartillögum. Í fyrsta lagi vil ég gera að umtalsefni tillögu sem flutt er af meiri hlutanum og lýtur að því að heimila Rafmagnsveitum ríkisins að stofna hlutafélag um öflun og sölu raforku í samstarfi við aðra aðila á raforkumarkaði og leggja félaginu til nauðsynlegar eignir. Hér er farið inn í heimildargrein með ákvæði um að fara aftan að hlutunum og breyta Rarik í eins konar hlutafélag eða gefa Rafmagnsveitum ríkisins heimild til þess að breyta sér í hlutafélag í áföngum. Rafmagnsveitur ríkisins eru ein sterkasta og öflugasta almannaþjónustustofnun landsmanna og hún hefur verið í hreinni ríkiseign og sem þjónustustofnun.
Í röksemdum fyrir þessum breytingum er sagt að verið sé að einkavæða rafmagnið og verið sé að markaðsvæða rafmagnið og þess vegna þurfi líka að markaðsvæða Rarik. Jú, við þekkjum stefnu ríkisstjórnarinnar í orkumálum. Hún vill einkavæða orkugeirann og hún vill markaðsvæða rafmagnið. Við höfum líka kynnst því hvernig það kemur niður á rafmagnsnotendum vítt og breitt um landið, einmitt á þeim svæðum sem eru háðust því að fá rafmagn á sem ódýrustum kjörum. Íbúar hinna dreifbýlli svæða hafa lent í stórfelldum rafmagnshækkunum. Þeim árangri hefur rafmagnsstefna ríkisstjórnarinnar skilað. Við erum minnug þess að sveitarstjórinn í Súðavík greindi okkur frá því að hjá rækjuverksmiðjunni einni hefði rafmagnsreikningurinn hækkað um nærri 3 millj. kr. vegna breytinga á raforkulögum, sem tóku gildi um síðustu áramót, breytingin ein og sér olli 3 millj. kr. hækkun. Þessu gleðst Framsóknarflokkurinn og hæstv. iðnaðarráðherra Framsóknarflokksins yfir og áfram skal haldið á þessari braut og hér liggur fyrir tillaga um að hlutafélagavæða Rarik í einhverjum áföngum.
Í fyrsta lagi vil ég segja að mér finnst það stjórnsýslulega rangt að setja inn heimildargrein með heimild til þess að hlutafélagavæða að hluta eða öllu leyti almannastofnun eins og Rarik. Séu stjórnvöld áfram um það ættu þau að gera það í sérlögum. Þá kemur það inn á Alþingi og verður rætt sem slíkt. Að smokra þessu svona inn, að gefa stóru almannaþjónustufyrirtæki, mikilvægri stofnun, Rafmagnsveitum ríkisins, með einfaldri heimildargrein færi á að hlutafélagavæða sig að hluta eða öllu leyti — ég mótmæli slíkum vinnubrögðum. Við eigum að taka hér efnislega, pólitíska og samfélagslega umræðu um orkumál, um hlutverk Rafmagnsveitna ríkisins og annarra orkufyrirtækja sem eru í almenningseigu, bæði orkuöflun og orkudreifingu, áður en við gerum grundvallarbreytingu þar á.
Við höfum fengið nóg, frú forseti, við höfum fengið nóg af tilraunaverkefnum ríkisstjórnarinnar í rafmagnsmálum, sem því miður virðast óafturkræf. Víst er að komist Vinstri hreyfingin – grænt framboð í stjórn mun verða tekið á þessum málum og reynt að snúa til baka. Þjóðin hefur fengið nóg af álögum sem hafa fylgt þeim breytingum á raforkulögum sem við nú stöndum frammi fyrir og hafa valdið því að verð á rafmagni hefur hækkað mikið víða um land. Þá á ekki að hleypa hér inn í heimildargrein þeim möguleika að einkavæða Rarik.
Frú forseti. Ég mun í seinni ræðu minni mæla fyrir einstökum breytingartillögum sem ég flyt við þetta frumvarp en aðrir þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs munu taka fyrir einstaka málaflokka og breytingartillögur sem að þeim lúta þar sem við viljum bæta úr við afgreiðslu þessa fjárlagafrumvarps.