132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[15:02]
Hlusta

Einar Oddur Kristjánsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér fjárlög ríkisins fyrir árið 2006 og er það önnur umræða. Ég vil fara nokkrum orðum um tillögur Samfylkingarinnar í ríkisfjármálum. (Gripið fram í: Lát heyra.) Þetta er náttúrlega spurning um hvað menn kalla humör og hvað menn kalla ósvífni — mér kom þetta nú samt dálítið á óvart. Samfylkingin leggur til hér við 2. umr. að auka framlög til velferðarmála um 3.000 millj., eða um það bil. Og hvernig á að fjármagna þetta? Það á að gera með gömlu krataráðunum: Hækka skatta. Kemur þetta á óvart? Nei, ég held varla að það komi á óvart. En það kemur á óvart að Samfylkingin leggur líka til að afgangur ríkissjóðs aukist um 3 milljarða. Og þar kemur nú það sem ég held að á nútímamáli heiti: Gargandi snilld. Gargandi snilld, virðulegi forseti. Hvernig fóru menn að þessu, virðulegi forseti? Jú, taka 3 milljarða sem áttu að færast yfir um áramótin á rekstrinum, taka 3 milljarða og auka við afganginn. Þannig ætlum við, sagði hv. þingmaður Einar Már Sigurðarson, talsmaður Samfylkingarinnar, á raunhæfan hátt að berjast gegn verðbólgunni. Stórkostleg slagsmál. Að berjast gegn verðbólgu með því að færa til 3 milljarða í bókhaldi. (Gripið fram í: Þú veist náttúrlega ekki hvað það er.) Ég býst við því að keynesistarnir í Seðlabankanum verði rosalega hrifnir þegar þeir frétta af því að Seðlabankinn sé kominn í þessa miklu baráttu fyrir góðri afkomu ríkissjóðs. En það eru nú 20 milljarðar sem færast alltaf á milli ára og ég skil ekki, virðulegi forseti, af hverju Samfylkingin tók bara ekki alla 20 milljarðana og sagði: 20 milljarða viðbótarafgangur — miklu harðari barátta gegn verðbólgunni, stöndum saman ábyrgir eins og vanalega. Af hverju komu ekki allir 20 milljarðarnir? Af hverju kom ekki allt saman? Að taka bara 3 milljarða. Smámunir. Smámunir bara.

En þannig er þetta nú, virðulegi forseti. Ég lít á þetta sem humör en ekki sem neina alvöru. Það liggur þá fyrir að Samfylkingin er að minnsta kosti ekki á móti þeim rúmlega 19 milljörðum sem við höfum í afgang þó hún vilji bæta við 3. Það stendur þá bara eftir í bókum sögunnar, ef einhver nennir að muna eftir því.

Þegar rætt er um ríkisfjármál, virðulegi forseti, fer umræðan oft á flakk. Við erum þeir lánsmenn, Íslendingar, að ríkissjóður Íslands er talinn til mikillar fyrirmyndar miðað við ríkissjóði flestra landa Evrópu. Nokkur lönd í Evrópu eru í sömu stöðu: Sviss, Noregur og nokkur önnur. Yfirleitt hefur ógæfa Evrópuþjóðanna verið sú að þær hafa misst ríkisfjármálin algerlega út úr höndunum. Hvernig hefur það gerst? Það er nauðsynlegt, virðulegi forseti, að rifja það upp hvernig það hefur gerst að hin góðu og menntuðu lönd Evrópu hafa algjörlega misst tökin á ríkisfjármálunum. Það hefur gerst þannig að þegar vel hefur árað, þegar tekjurnar hafa hækkað, þá hafa menn látið undan og verið sammála í því að auka þjónustuna og auka umsvifin o.s.frv. En þegar á reynir, þegar samdráttur verður, þegar tekjur lækka virðist ekki vera til staðar pólitískt afl eða pólitískur vilji til að fylgja því eftir. Þannig hefur velferðarkerfi Evrópu vaxið og þanist út í gegnum gegnumstreymiskerfið sem þeir eru með. Þeir hafa aukið og eflt og látið vaxa hjá sér tryggingakerfi sem er ofan á launastrúktúrnum, sjá svo fram á það í dag að þeir standa frammi fyrir hlut sem þeir ráða ekkert við. Þeir hafa fjallað um þetta í mörg ár. Hvað eigum við að gera? Eigum við að skera niður velferðarkerfið í Evrópu eða eigum við að hækka skatta um 100–150%? Þetta er umræðan í Evrópu. Þetta er það sem evrópskir stjórnmálamenn þurfa að glíma við. Og enginn veit nokkurn skapaðan hlut hvernig á að gera þetta, enda óviðráðanlegt.

Við erum þeir lukkupamfílar hér á Íslandi að þurfa ekki að eiga við vandamál af þessum toga vegna þess að ríkissjóður Íslands stendur mjög vel, skuldir hans eru mjög litlar. Það liggur fyrir núna um þessi áramót að skuldir ríkissjóðs verða í kringum 10% af landsframleiðslu sem er mjög lágt í sögulegu tilliti miðað við þjóðir Evrópu síðustu 100 árin. Mjög lágt. Þannig að skuldirnar eru alveg hættar að vera hið mikla vandamál sem menn stóðu frammi fyrir fyrir nokkrum áratugum. Svo vel hefur til tekist að við getum fagnað því að við eigum fyrir okkar skuldbindingum, við getum horft fram á veginn og bætt lífskjör þessarar þjóðar, þeirra sem eru að alast upp í dag og þeirra sem munu fæðast á morgun. Við getum tryggt það og sýnt fram á að fullkomin rök eru fyrir því að lífskjör á Íslandi geta haldið áfram að vaxa og dafna og kjör Íslendinga geta þess vegna auðveldlega orðið þau albestu sem völ er á í Evrópu. Við eigum að þakka þá hamingju að eiga slíka framtíðarsýn.

Svo kemur stjórnarandstaðan og segir að hér sé hin mesta vá fyrir dyrum vegna þess að framtíðarstefnumörkun skorti. En við höfum einmitt verið með framtíðarstefnumörkun. Í hverju hefur hún verið fólgin? Hún hefur verið fólgin í því að gæta þess að samneyslan í samfélaginu og millifærslukerfi ríkisins fari ekki upp. Halda því niðri. Gæta þess á velferðartímum að missa ekki samneysluna upp. Það er leiðin til glötunar. Dæmin sýna það og sanna um alla Evrópu að menn ná því ekki niður seinna. Og það eru tekjur. Við höfum haldið samneyslunni á undanförnum árum niðri við 2% markið. Höfum haldið henni þar. Meiningin var að halda millifærslukerfinu niðri í 2,5% og það hefur líka tekist og miklu meira en það á því ári sem nú er að líða. Við erum langt fyrir neðan það á þessu ári. Það nær varla 2%. Þar kemur ýmislegt til eins og minnkandi atvinnuleysi og fleira.

Þetta er framtíðarstefnumörkunin sem við settum fyrir þremur árum. Þetta er sú stefnumörkun sem við höfum ákveðið að fylgja áfram á næstu árum og við höfum ástæðu til að ætla að við verðum menn til að standa við hana. Að varast það að missa samneysluna upp þegar vel gengur vegna þess að við vitum að við náum henni ekki niður þegar dregur úr tekjunum. Þannig er það. Stjórnarandstaðan og Samfylkingin hafa líka rætt hér tekjurnar. Það kemur mér mjög á óvart hvað þeir segja í því. Þeir hafa haldið því fram að á næsta ári séu líkur til þess að tekjur ríkisins verði mun meiri en fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir. Þetta kemur mér mjög á óvart. Fjármálaráðuneytið fer í sinni spá ákveðinn milliveg sem ég held að sé mjög skynsamlegur. Þeir gera ráð fyrir meðalgengi 114 og á þeirri forsendu gera þeir ráð fyrir þeim tekjum sem þarna eru. Ég sagði, virðulegi forseti, við 1. umr. fjárlaga, að ég vonaðist sannarlega til að sú spá gengi ekki eftir vegna þess að ég taldi mjög brýna þörf á því að meðalgengi á næsta ári yrði hærra en þarna segir, vísitalan yrði hærri, raungengið lægra. Og þar með vonast ég til að tekjur ríkisins á næsta ári verði ekki eins miklar og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir. Ég vonast sannarlega til að tekjur ríkisins lækki vegna þess að ríkið hefur ekkert að gera með þessar miklu tekjur. Bókstaflega ekkert með þær að gera. Það væri af hinu verra ef það gerðist að við héldum áfram þeirri skuldasöfnun sem við höfum upplifað í ár. Við gerum ráð fyrir 120 til 130 milljarða halla á viðskiptunum, þar af eru tæpir 40 milljarðar vegna virkjunar- og stóriðjuframkvæmda. Það er einkaneyslan í samfélaginu sem er svona mikil. Og það er, virðulegi forseti, svo ég segi það nú enn og aftur, mikil þörf á því að menn geri sér grein fyrir því að þessi einkaneysla og þessi umframnotkun Íslendinga á peningum, umfram framleiðslumátt samfélagsins, er ekki af hinu góða. Þessi eyðsla kemur sér illa í framtíðinni. Því fyrr sem henni lýkur þeim mun betra. Þó að dragi úr tekjum ríkisins þá er það líka af hinu góða, ríkið hefur ekkert með þessa peninga að gera. Vonandi náum við fyrr jafnvægi en gert er ráð fyrir þarna.

Stjórnarandstaðan, Samfylkingin, gerir mismunandi áherslur fjármálaráðuneytis og Seðlabanka að umtalsefni. Og ég segi: Virðulegi forseti. Það er mikið fagnaðarefni að fjármálaráðuneyti Íslands skuli ekki vera haldið sömu meinlokum og Seðlabankinn. Það er mikið fagnaðarefni. Við verðum að sjálfsögðu að búast við að gengið láti undan. Við verðum að búast við því og gerum ráð fyrir því vegna þess að framleiðslan í landinu þarf andrými, hún þarf að geta lifað. Það er á framleiðslunni sem allt byggist. Allt saman, alveg sama hvað það er.

Ég ætla ekki að fara að halda hér fyrirlestur um efnahagsmál eins og ég hef oft gert áður. Ég nenni ekki að endurtaka allt sem ég hef sagt um þau efni en segi samt í leiðinni að ég er sömu skoðunar og áður. Ég geri mér sannarlega vonir um, virðulegi forseti, að það dragi úr tali um þessa ímynduðu spennu sem menn eru alltaf að fjalla um. Hver er þessi spenna í þjóðfélaginu? Hún var núll um síðustu mánaðamót. Hún var mínus 0,2% og hún var 0,6%, þ.e. miðað við síðustu þrjá mánuði. Hver er þessi spenna? Hún er engin. Það er engin verðbólga hérna. Það var heldur engin verðbólga fyrir ári. Það var eignaverðbólga.

Ég fer ekki að ergja mig eða aðra, virðulegi forseti, með að fara í gegnum það. Menn vilja ekki horfast í augu við það en þetta er ekki spurning um hagfræði, þetta eru trúarbrögð sem við er að eiga. Ég trúi því, virðulegi forseti, að komin sé einhver þíða í þetta mál. Ég vil ekki trúa því að áfram verði haldið á þeirri braut að hækka stýrivexti á Íslandi, enda er það fásinna. Það er engin þörf á því. Það yrði hræðilegt ef menn héldu áfram í því díki. Ég trúi því að menn láti nú staðar numið og sjái til. Við getum þá séð næstu einn til tvo mánuðina hvort gengið nær ekki aðeins að jafna sig og framleiðslan geti ekki aðeins náð vopnum sínum.

Þannig getum við náð á næsta ári farsælli mjúkri lendingu, snertilendingu kallaði formaður Sjálfstæðisflokksins, hæstv. utanríkisráðherra, Geir H. Haarde, það fyrir nokkrum árum. Ég trúi því að enn þá sé möguleiki á því að svo verði þannig að spá fjármálaráðuneytisins, sem er svona millispá, standist ekki heldur verði meðalgengið kannski í kringum 120 sem yrði þá þokkalegt ár. Ríkissjóður hefur alveg efni á því. Það kæmi ekkert við ríkissjóð. Verðbólgan yrði ekki í neinum þeim takti sem Seðlabankinn er að spá. Það eru gríðarlega miklir innsafnaðir peningar sem menn hafa haldið eftir hér í innflutningsversluninni. Það yrði einhver minnkun á kaupmætti á erlendum vörum, enda er mjög nauðsynlegt að minnka þann kaupmátt.

Og enn þá aftur, virðulegi forseti, skal ég fara yfir það þegar stjórnarandstaðan, þ.e. þegar Samfylkingin talar um að festu vanti í ríkisfjármálum. Enn og aftur skal ég fara yfir það hver þróunin hefur verið í ríkisfjármálum á Íslandi.

Hvar hefur vantað festu? (GAK: Það er ekki nema hjá ykkur, það eru engir aðrir í stjórn.) Það hefur nefnilega verið þannig að lauslæti hefur verið í ákveðnum þætti efnahagsþróunar á Íslandi og er viðvarandi veikleiki Íslendinga. Þessi viðvarandi veikleiki er sá að láta alltaf meira og meira undan launakröfum en framleiðslan getur staðið undir.

Virðulegi forseti. Í gegnum árin hef ég varað við þessu. Í gegnum árin hef ég haldið hverja ræðuna á fætur annarri um þetta, að menn mega ekki vera með slíka lausung í launamálum. Ég spyr: Hefur stjórnarandstaðan komið hér, virðulegi forseti, og tekið undir með mér? Nei, hún var hvergi nálægt. Hún sagði aldrei orð. Það var of viðkvæmt. Það var ekki þeirra að segja hluti sem gætu verið óvinsælir. Nei, menn segja helst það sem þeir halda að aðrir vilji heyra, það er líklegast til vinsældanna. Stjórnarandstaðan hefur hvergi verið nálægt í gegnum árin þegar varað hefur verið við þeirri lausung í launamálum sem er þó eina vandamál okkar Íslendinga. Viðvarandi vandamál í gegnum áratugi. Þar er alltaf viðkvæðið, aðeins hærra, aðeins hærra. Þess vegna fáum við og höfum alltaf fengið í gegnum árin einhver smábakföll sem eru mjög slæm, sérstaklega fyrir láglaunafólk í landinu. Alltaf komið verst niður á láglaunafólkinu. Alltaf komið þeim verst. (Gripið fram í: Þetta er þá allt stjórnarandstöðunni að kenna.) Ég var nú bara og rifja upp, virðulegi forseti, og þakka fyrir stuðninginn. (Gripið fram í: Frá þínu fólki?)

Ég tel, virðulegi forseti, ekki ástæðu til að fara sérstaklega í gegnum tillögur meiri hlutans. Formaður fjárlaganefndar hefur gert það. En ég vil þó fara í gegnum eitt atriði varðandi útgjöldin. Það er 6. gr., þ.e. heimildagrein fjárlaganna. Vandamál henni tengd komu á borð fjárlaganefndar og það er rétt að fara í gegnum það. Vandamálið var leigukostnaður Háskólans á Akureyri. Háskólinn á Akureyri er í nýbyggðu húsi, svonefndu tæknihúsi sem kallað er, tæknigarði, ég man ekki hvað þeir kalla það, (Gripið fram í: Rannsóknarhúsi.) rannsóknarhúsi, já. Það var byggt í einkaframkvæmd. Í sjálfu sér er ég ekkert á móti einkaframkvæmdum. (Gripið fram í: Ha!) En gallinn á framkvæmd Alþingis er að þegar við förum í gegnum einkaframkvæmdir þá eru þær bara ákveðnar. Það kemur aldrei í gegnum fjárlög hvað þetta er og þinginu, löggjafanum er ekki gerð grein fyrir heildarkostnaðinum, heildarskuldbindingunni sem ríkið er að taka á sig. Þetta er framkvæmd á fjárreiðulögunum sem við verðum að vara okkur á. Nú er það þannig, virðulegi forseti, að fjárreiðulögin gera ráð fyrir að hægt sé að fara út í slíkar langtímasamninga gagnvart starfsemi sem er í gangi. En eðli málsins samkvæmt hlýtur að eiga gera grein fyrir því hvaða skuldbindingar eru á ferðinni. Við höfum ekki ástundað að gera það. Við höfum ekki ástundað að gera grein fyrir á hvaða braut við værum og hvað þetta mundi kosta í framtíðinni. Við verðum að huga að því. Við verðum að breyta þessu og gera okkur grein fyrir á hverjum tíma hvað við erum að skuldbinda okkur til.

Í því sambandi vil ég sérstaklega gera að umræðuefni að núna í 6. gr. er heimild til að borga kostnað við að byggja og undirbúa tónleikahöll í Reykjavík. Rætt hefur verið um þátttöku ríkisins upp á 6.000–7.000 millj. kr. Ég geri athugasemd við þetta, virðulegi forseti. Slík skuldbinding ríkisins á framkvæmd getur ekki gengið. Ef ríkið ætlar sér að taka þátt í einhverri slíkri byggingu, menningarbyggingu, íþróttabyggingu eða hvaða byggingu sem er, skóla, íþróttahúsi o.s.frv., þá á að leggja það fyrir þingið. Ég get ekki séð neina ástæðu til annars en að lagt sé frumvarp fyrir þingið um það ef ríkið ætlar að taka þátt í hinni miklu byggingu sem menn telja mjög brýna fyrir menningarlífið og ferðaþjónustuna. Þá tekur þingið, hinn rétti aðili, löggjafinn, ákvörðun um það. En að afgreiða svona hluti í 6. gr. eins og nú er verið að gera eru vinnubrögð sem alls ekki er hægt að fallast á. Ekki með nokkru móti. Ég vil gera mönnum grein fyrir þessu, þeirri skoðun minni sem ég hef að vísu reifað víðar. Ég hef ástæðu til að ætla að menn séu að átta sig á að slík lausung getur ekki viðgengist. Við verðum að breyta þessu. Við verðum að gera þetta með því að flytja um það frumvörp ef ríkisstjórnin vill skuldbinda ríkið og telur það rétt. Það verður að reyna á hvort löggjafinn er því sammála eða ekki.