132. löggjafarþing — 29. fundur, 24. nóv. 2005.
Fjárlög 2006.
1. mál
Frú forseti. Ég þakka þessi svör. Eins og ég nefndi áðan þá kemur þetta ekki beint fram í fjárlagafrumvarpinu. Ég þakka auðvitað fyrir þessi svör en mig langar að spyrja frekar: Verður þessum fjármunum útdeilt eftir umfangi hverrar símenntunarstöðvar fyrir sig eða eftir hvaða reglum yfir höfuð verður farið þegar þessum fjármunum verður útdeilt til símenntunarstöðvanna?