Fjárlög 2006.
Virðulegi forseti. Vörn hv. þingmanns var afleit. Við vitum mætavel að á nokkrum árum hafa útgjöld ríkissjóðs aukist um 100 milljarða. Á tíu árum hafa ríkisútgjöldin aukist úr 100 milljörðum í 300 milljarða miðað við fjárlög. Þetta hefur gerst allt saman í tíð þeirrar ríkisstjórnar og þess flokks sem hefur talað fyrir minnkandi ríkisútgjöldum o.s.frv. þannig að kjarni málsins í því sem hv. þingmaður er hér að segja og fram kemur í ræðu hans árlega er þetta neyðaróp til stjórnarandstöðunnar um að hún hjálpi hv. þingmanni að koma viti fyrir ríkisstjórnina. En vonbrigðin hljóti að felast í því að það tæki sem fjárlögin eru til að vinna gegn þeirri gengisþróun sem verið hefur er ekki nýtt og varaformaður fjárlaganefndar sem ber ekki litla ábyrgð á þessu, talsmaður Sjálfstæðisflokksins, stóra flokksins í ríkisfjármálum, (Forseti hringir.) beitir sér á engan hátt í þessu en æpir og gólar á Seðlabankann og hagfræðinga úti í bæ.