132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[16:09]
Hlusta

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Frá því að við tókum 1. umr. um fjárlagafrumvarpið fyrir nokkrum vikum hafa orðið ákaflega ánægjuleg tíðindi í íslensku samfélagi sem er að aðilar vinnumarkaðarins hafa náð saman um þau álitaefni sem uppi voru vegna verðbólguþróunar og kjarasamninga. Það var mikið gæfuskref sem þar var stigið. Þær blikur sem voru á lofti um kjarasamninga eru ekki lengur fyrir hendi og full ástæða til að óska okkur öllum til hamingju með það og einkum að þakka fyrir þá ábyrgð sem forusta verkalýðshreyfingarinnar sýndi í þeim efnum. Það var auðvitað svo að forsendur kjarasamninganna voru brostnar og verðbólgan var umfram það sem við var miðað og því mikilvægt að tækist að ná samkomulagi til að tryggja að samningar yrðu ekki í sundur og hér mætti reyna áfram að standa vörð um þá þætti stöðugleikans sem enn eru. En við vitum auðvitað sem er að hvorki einkaneyslan, þróun gengisins né skuldanna í samfélaginu endurspegla neins konar stöðugleika. Við höfum margoft farið yfir það hér og ýmislegt sem ástæða er til að hafa áhyggjur af.

Í fjárlagafrumvarpinu er einkum tvennt sem ástæða er til að hafa áhyggjur af. Hið fyrra er að þetta frumvarp grundvallar stóran hluta skatttekna sinna á skuldsetningu heimilanna og atvinnulífsins í landinu. Hér eru umtalsverðar skatttekjur vegna þenslu, vegna lána sem fólk er að taka í dag og fyrirtæki sem skapa tekjur fyrir ríkissjóð en þegar kemur að skuldaskilunum verður ekki um að ræða sömu skatttekjurnar fyrir ríkissjóð. Því miður hefur ekki verið haldið á ríkisútgjöldum úr ríkissjóði með nægilegu aðhaldi á undanförnum árum og þess vegna er ástæða til að hafa áhyggjur af því að þegar þensluskeiðinu ljúki snúi yfir í neikvæðan rekstur ríkissjóðs.

Hitt er sá mikli halli sem er að finna á tekjuskiptingunni í landinu í fjárlögum hæstv. ríkisstjórnar. Nú er það þannig að ég og hæstv. fjármálaráðherra, Árni Mathiesen, greiðum mánaðarlaunum minna í tekjuskatt hvor um sig en þegar ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tók við völdum í landinu. Lífeyrisþegar með 110 þús. kr. á mánuði og láglaunafólk greiða hins vegar mánaðarlaunum meira í tekjuskatt en þá var. Þannig hefur núverandi ríkisstjórn skipulega og enn aftur í þessu fjárlagafrumvarpi aukið á misskiptinguna í samfélaginu svo að í óefni stefnir og sennilega ekkert sem eins ógnar stöðugleikanum og vaxandi misskipting tekna og eigna í íslensku samfélagi þar sem við löngum fögnuðum því að við værum ein stétt í landinu að meira eða minna leyti, ein stór fjölskylda Íslendinga. Og með tekjuskattsaðgerðunum sem er að finna í þessu frumvarpi heldur ríkisstjórnin enn áfram á þeirri braut og hyggst ganga enn lengra árið 2007 í að létta sköttunum einkum af sjálfri sér og öðrum hátekjumönnum en okkur hér sem sitjum í þessum sal.

Við í Samfylkingunni flytjum með Guðjóni A. Kristjánssyni, hv. þingmanni og formanni Frjálslynda flokksins, og með Jóni Bjarnasyni, hv. þingmanni Vinstri hreyfingarinnar — græns framboðs, að hluta, ýmsar tillögur við 2. umr. fjárlaga. Þær tillögur eru fyrst og fremst táknrænar um áherslur okkar í Samfylkingunni í ríkisfjármálunum, þær eru ekki ný fjárlög með neinum hætti enda engin tök á að leggja fram ný fjárlög 25. nóvember, en táknrænar um þær áherslur sem við mundum hafa við fjárlagagerðina. Þær eru í fyrsta lagi um öðruvísi skattalækkanir. Sannarlega skattalækkanir en öðruvísi skattalækkanir heldur en í tillögu ríkisstjórnarinnar, því að við leggjum til í stað þess að lækka tekjuskatt og hátekjuskatt um 6 milljarða, eins og ríkisstjórnin leggur til brúttó eða um 4,5 milljarða nettó, þá lækkum við matarskattinn í landinu um helming úr 14% í 7%. Kostnaður við það er um 4 milljarðar kr. Við hækkum persónuafsláttinn sem nemur um 9 þús. kr. á ári en kostnaður við það er um 2 milljarðar eða samtals brúttó 6 milljarðar. Það er síðan álit fjármálaráðuneytisins að í báðum tilfellum komi 25% af þessum fjárhæðum til baka í veltuáhrifum. Þannig verjum við sömu fjárhæðum í skattalækkanir og ríkisstjórnin gerir en við gerum það með allt öðrum hætti. Við setjum það í persónuafsláttinn sem nýtist best þeim sem lægstar hafa tekjurnar og við setjum það í matarskattinn sem skiptir máli í útgjöldum hverrar fjölskyldu í landinu á hverjum degi og er liður í því mikilvæga pólitíska markmiði okkar í Samfylkingunni að innleiða á Íslandi Evrópuverð á matvælum. En eins og við þekkjum býr íslenskur almenningur ekki bara við hæstu vexti í heimi, hann býr líka við miklu hærra matvælaverð en við þekkjum í kringum okkur og hluti af því er auðvitað hin háu opinberu gjöld. Rétt er að minna á að þessar stefnuáherslur eru líka áherslur flokks hæstv. fjármálaráðherra þó að sá flokkur virðist ekki hafa afl til að koma þeim hugmyndum sínum fram í því ríkisstjórnarsamstarfi sem hann nú er í.

Þá gerum við ráð fyrir því að verja 200 millj. kr. til þess að efla skatteftirlit í landinu. Eins og þingheimi er ljóst var lögð fram mjög viðamikil skýrsla á síðasta þingi um skattsvik á Íslandi. Þar er ríkissjóður Íslands talinn verða af 34 milljörðum kr. á hverju ári í skattsvikum. Við höfum ár frá ári hvatt til þess að varið verði meira fé til þess að efla skatteftirlit vegna þess að það eru reynslutölur nágrannaþjóða okkar að hver króna sem lögð er til þess skili sér tífalt til baka. Við gerum þess vegna ráð fyrir því að slíkt skatteftirlit gæti skilað 1.850 milljónum alls í auknum skatttekjum eða rétt um 5% af því sem ríkissjóður verður af í dag í skattsvikum samkvæmt mati ríkisskattstjóra, skattrannsóknastjóra og annarra þeirra sem sátu í þeim starfshópi sem vann skýrsluna.

Áhrifin af þessum þáttum, að ráðast í lækkun á matarskattinum, hækkun á persónuafslættinum og hert skatteftirlit sjá menn í breytingartillögum okkar við sundurliðun 1. Þar má finna við lið a. 1.1.1.1 Tekjuskattur einstaklinga og staðgreiðsla, hækkun á tekjum upp á 69,9 milljarða í 72,9 milljarða eða þar um bil, sem eru nettóáhrif tillagnanna á tekjuskattsþáttinn. Þá finna menn í liðnum b. 1.1.1.5 Sérstakur tekjuskattur, sem í frumvarpinu er gert ráð fyrir að nemi 100 milljónum en í breytingartillögu okkar er gert ráð fyrir að nemi 850 milljónum eða breytingu um 750 milljónir.

Þá er sömuleiðis að finna í c. 1.5.1.1 Tekjuskattur, lögaðilar, þar komi 100 millj. kr. hækkun úr 14 milljörðum í 14,1 milljarð. Það eru einvörðungu áhrif af hertu skatteftirliti.

Þá er gert ráð fyrir millifærslu á lið d. 2.2.1.1 Tryggingagjald. Það eru 400 millj. kr. tekjur sem á gjaldahliðinni er aftur ráðstafað til þess að auka fæðingarorlof eftir þær skerðingar sem nýtt lagafrumvarp eða breytingar á lögunum um fæðingarorlof hafa leitt til á fæðingarorlofinu og aukningin á tryggingagjaldinu jafnast út úr 30.259 millj. í 30.659 millj. en fer út gjaldamegin um 400 millj. kr. og er því ekki til tekjuaukningar.

Síðan er Virðisaukaskatturinn í e. 5.1.1.1. Þar er gert ráð fyrir að hann sé lækkaður úr 114,4 milljörðum í 112,4 milljarða vegna aðgerðanna um matarskattinn fyrst og fremst en þar hefur hert skatteftirlit jafnframt áhrif á niðurstöðutöluna

Í gjaldahlið frumvarpsins eru áherslur okkar einkum þríþættar. Við leggjum áherslu á að aðgerðir skili sér að helmingi í bættri afkomu ríkissjóðs og hann skili rúmlega 4 milljörðum í bætta afkomu frá því sem tillögur ríkisstjórnarinnar gerðu ráð fyrir og enn árétta ég að hér er í sjálfu sér bara um táknrænar tillögur að ræða, leiðbeiningar fyrir hæstv. ríkisstjórn um hvernig mætti hefja aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum og raunar líka leiðrétta nokkuð áherslur í útgjöldum í frumvarpinu.

Þar er þá fyrst til að taka tillögu sem ég vona að hæstv. nýr fjármálaráðherra taki vel undir, hana höfum við flutt hér ítrekað og hún er fyrst og fremst sett til þess að gera þinginu kleift að starfa af meiri myndarskap að fjárlagagerðinni með því að koma upp hagdeild við þingið, því að eftir að Þjóðhagsstofnun hefur verið lögð niður skortir hér mjög þá sérfræðiaðstoð sem þörf er á til þess að þingmenn geti unnið greinargóðar tillögur í fjárlögum. Það er lögð til á liðinn Æðsta stjórn, Alþingi 00-201, ný fjárveiting 10 millj. kr. við lið 1.05 til reksturs hagdeildar og lagt til að fyrir því verði sparað undir forsætisráðuneytinu lið 01-190 a. 1.19 Efnahagsrannsóknir, en það er í sjálfu sér eðlisskyld starfsemi sem þar hefur farið fram undir hatti hæstv. forsætisráðherra sem við gerum ráð fyrir að flytjist hingað.

Þá er það tillaga um framlag til byggðamála sem hv. þm. Einar Már Sigurðarson gerði hér grein fyrir fyrr í dag. Það er gert ráð fyrir undir forsætisráðuneytinu en ekki undir iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu vegna þess að menn treysti því betur til þess að fara með slíkar fjárveitingar. Það er þá ný fjárveiting undir liðinn 01.190 b. 1.92 Sérstök verkefni á landsbyggðinni, komi 500 milljónir.

Milljarð teljum við að auka eigi við í framlög til menntamála og mikilvægast að taka þar á vanrækslusyndum hæstv. ríkisstjórnar eins og nýleg skýrsla um Háskóla Íslands gefur til kynna. Á fjárlagaliðnum 02-201, Háskóli Íslands gerum við þess vegna ráð fyrir að undir lið 1.01 Kennsla, komi viðbótarframlag upp á 500 millj. kr.

Á fjárlagalið 02-210 Háskólinn á Akureyri sömuleiðis undir 1.01 Kennsla, komi 100 milljónir en undir fjárlagalið 02-215 Kennaraháskóli Íslands þar komi á sama lið 1.01, 150 millj. kr. eða samtals 750 milljónir til þessara háskóla.

Þá er gert ráð fyrir því að Listdansskóli Íslands haldi áfram starfsemi á næsta ári en hætti henni ekki á miðju ári. Það er liður 02-564 sem þannig hækkar um 35 milljónir, úr 27,5 milljónum í 62,5 milljónir. Í menntamálum er enn fremur liðurinn 02-884 Jöfnun námskostnaðar, sem er 486,6 millj. kr. í frumvarpinu og við gerum ráð fyrir að hækki um 130 milljónir og verði 616 millj. kr. alls þegar upp er staðið.

Þegar kemur að utanríkisráðuneytinu er fyrst sú fræga fjárveiting til mannréttindamála á síðasta ári sem skilaði sér alls ekki til mannréttindamála. En sem kunnugt er fékk Mannréttindaskrifstofa Íslands í opinberan stuðning 8 millj. kr. árlega, þangað til hún leyfði sér að gagnrýna ríkisstjórn Íslands. Við teljum að þær aðgerðir sem gripið var til í hefndarskyni gagnvart Mannréttindaskrifstofunni af þáverandi hæstv. utanríkisráðherra Davíð Oddssyni og núverandi hæstv. dómsmálaráðherra Birni Bjarnasyni séu blettur á störfum þingsins og það sé mikilvægt að Alþingi hreinsi sig af þeim vinnubrögðum, því að auðvitað þarf það að vera þannig í lýðfrjálsu landi að stofnanir í samfélaginu geti gefið Alþingi umsagnir eftir sinni bestu vitund og sannfæringu án þess að eiga á hættu að umsagnir þeirra til Alþingis leiði til þess að framkvæmdarvaldið skeri niður fjárveitingar til þeirra. Það má heita nokkuð geðlaust Alþingi sem lætur það yfir sig ganga.

Hér er tillaga um 4,5 milljónir, það er undir 03-190 Ýmis útgjöld hjá utanríkisráðuneytinu og sömuleiðis 600 þúsund til Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands.

Undir liðnum 03-391 gerum við ráð fyrir nýrri fjárveitingu 70 millj. kr. til verkefna UNIFEM í Kosovo en á móti þeim útgjöldum er lagður til sparnaður undir liðnum 03-401, þ.e. Friðargæsla sem í frumvarpinu er gert ráð fyrir að varið sé til um 570 millj. kr. á næsta ári og er lækkuð um 70 millj. kr. og stendur þá eftir hálfur milljarður í friðargæslunni eigi að síður.

Þá er það framhald að mannréttindaskrifstofumálinu sem menn sjá í breytingartillögum við lið 06-190 þar sem koma 4,5 milljónir annars vegar til Mannréttindaskrifstofu Íslands og hins vegar 600 þúsund til Mannréttindastofnunar Háskólans einfaldlega til að bæta fyrir þær skerðingar sem Mannréttindaskrifstofan varð fyrir eftir gagnrýni sína á nokkur frumvörp, ekki síst frumvörp frá hæstv. dómsmálaráðherra.

Þá er komið að liðnum Félagsmál. Þar eru tvær af fjórum stofnunum í þágu barna þar sem Samfylkingin og meðflutningsmenn okkar leggja áherslu á að bætt sé úr rekstrarvandræðum eða brýnum nýbyggingar- og uppbyggingarverkefnum á þeirra vegum. Þar erum við fyrst að tala um lið 07-400, það er Barnaverndarstofa, liðurinn Ný meðferðarúrræði sem við teljum að verja eigi til 50 millj. kr. á komandi ári.

Í liðnum 07-750 finna menn Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins sem hefur samkvæmt frumvarpinu 250 millj. kr. fjárveitingu og við gerðum tillögu um að hækki í 275 milljónir eða um 25 milljónir, en eins og þingmenn þekkja þá eru haldnir nær daglega styrktartónleikar í kirkjum borgarinnar til þess að fjármagna starfsemi þessarar ríkisstofnunar og hlýtur að vera óvenjulega mikil hneisa hinu háa Alþingi að geta ekki fjármagnað Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, sem þjónar þessum sannarlega þurfandi hópi betur en svo að hér þurfi hver kirkjan að hlaupa í það skarð sem ríkið ekki sér sóma sinn í að fylla.

Undir liðnum 07-989 finna menn Fæðingarorlofssjóð og það eru þær 400 milljónir sem ég gat um áður að við ætlum til þess að taka aftur þær skerðingar á fæðingarorlofslögunum sem voru afgreiddar í þinginu síðasta vetur en eins og menn þekkja fá þeir sem eru að fara í fæðingarorlof ekki lengur 80% af fyrri tekjum sínum heldur 70% og það er auðvitað langt frá því sem hæstv. ríkisstjórn lofaði þeim hópum og er skerðing sem kemur í bakið á fólki.

Talandi um skerðingar sem koma í bakið á fólki er í lið 08-204 Örorkulífeyrir, það er liður 1.15 þar sem við gerum ráð fyrir 600 millj. kr. fjárveitingu sem er ekki til annars ætluð en að efna þann samning sem ríkisstjórnin sjálf gerði í aðdraganda síðustu kosninga og við höfum ítrekað fjallað um hér á þessum vettvangi. Því miður er svo komið að á næstu dögum eða vikum mun Öryrkjabandalag Íslands væntanlega þurfa að draga hæstv. ríkisstjórn fyrir dómstóla enn eina ferðina vegna vanefnda á því samkomulagi og freista þess að fá það sannað fyrir dómi. Þetta er erfið og torsótt leið og vandséð hvort þetta fáist sannað fyrir dómi og að hægt verði að krefja ríkisstjórnina eftir þeirri leiðinni, en sannarlega teljum við að hæstv. ríkisstjórn ætti að sjá sóma sinn í því að efna það samkomulag sem hún sjálf gerði og efna það að fullu. Við gerum því ráð fyrir að hjálpa henni við það með þessari tillögu og eigum ekki von á öðru en hæstv. ríkisstjórn styðji hana þó að hún hafi að vísu fellt þá tillögu undangengin tvö ár.

Á sama lið, undir 08-204 Lífeyristryggingar, eru undirliðirnir 1.28 og 1.29. Það eru vasapeningar aldraðra annars vegar og vasapeningar öryrkja hins vegar. Hér er um að ræða þá hópa sem trúlega eru verst settir í íslensku samfélagi, fólk sem býr á stofnunum og fær ekki til framfærslu annað en vasapeninga upp á skitnar 21 þús. kr. á mánuði. Tillaga okkar er að þessar upphæðir verði hækkaðar um helming. Þannig hækkar liður 1.28 úr 311 millj. rétt liðlega í 466 millj. eða um 155 millj. og vasapeningar öryrkja, liður 1.29, hækka úr 65 millj. í 97,5 millj. eða um 32,5 millj. Hækkunin á þessum tveimur liðum er því rétt tæpar 200 millj. eða 187,5 millj. nánar tiltekið.

Þá er það liður 08-373 Landspítali – háskólasjúkrahús. Þar er liður 1.01 Rekstur þar sem gert er ráð fyrir 40 millj. kr. Sú fjárveiting er hluti af fjárveitingum til stofnana sem þjóna börnum sem við teljum mikilvægt að leggja áherslu á í afgreiðslu fjárlagafrumvarps þessa árs, en það er fjárveiting vegna bráðaþjónustu á barnaspítalanum sem Samfylkingin og meðflutningsmenn okkar telja ákaflega brýnt að verði komið á. Auk þess flytur hv. þm. Össur Skarphéðinsson ásamt fleirum breytingartillögu undir sama lið 08-373, það er undirliður 6.70 Nýframkvæmdir. Þar er gert ráð fyrir 100 millj. kr. fjárveitingu, en í tillögu hv. þingmanns og meðflutningsmanna hans er gert ráð fyrir 90 millj. kr. hækkun á þeim lið þannig að hann verði alls 190 millj. Er það sérstaklega gert vegna nýbyggingar við barna- og unglingageðdeild Landspítala – háskólasjúkrahús sem þingmaðurinn hefur áður gert grein fyrir við umræðuna og mun gera gleggri grein fyrir enn á eftir.

Þá erum við komin að fjárlagalið 09-250. Það er innheimtuliður undir fjármálaráðuneytinu, nýr liður, 200 millj. kr. í hert skatteftirlit og sömuleiðis undir 09-821 sem eru vaxtabætur. Gert er ráð fyrir að þær hækki úr 5,1 milljarði í 5,7, þ.e. um 600 millj. kr. því að við teljum algerlega óforsvaranlegt af hæstv. ríkisstjórn að skerða vaxtabæturnar á skuldsettasta fólkinu, gjarnan ungum barnafjölskyldum sem eru að koma sér upp þaki yfir höfuðið og eiga sannarlega ekki að sæta skerðingum meðan við hátekjufólkið í þessum sal erum að fá þær skattalækkanir sem ríkisstjórnin lofaði fyrir síðustu kosningar. Því gerðum við ráð fyrir að vaxtabæturnar hækki í þessum lið um 600 millj.

Það rifjast upp fyrir mér, virðulegur forseti, og verður að virða mér það til vorkunnar af því að ég fer yfir þetta svona nokkurn veginn eftir minni, að mér hefur trúlega láðst að geta um breytingartillögu okkar við liðinn 02-319 Framhaldsskólar, almennt. Þar er óskiptur liður sem ætlaðar voru 250 millj. á og voru liður í þeim aukafjárveitingum upp á á annan milljarð kr. til menntamála sem Samfylkingin og meðflutningsmenn okkar vilja leggja áherslu á við þessa umræðu.

Í sundurliðun 2 er síðan að finna nokkrar vísbendingar til nýs hæstv. fjármálaráðherra um hvert sækja mætti sparnaðar- og hagræðingaraðgerðir í rekstri ríkissjóðs. Ég bið hæstv. ráðherra um að taka vel eftir þeim. Þær eru auðvitað eins og tillögurnar almennt, fyrst og fremst táknrænar og vísbendingar um það sem hægt er að gera í ríkisrekstrinum sem einfaldlega byrjun á þeim róttæku aðhaldsaðgerðum sem þar er víða þörf, enda hafa menn auðvitað séð hvernig útgjöldin hjá ríkissjóði hafa vaxið ár frá ári í hvert nýja verkefnið á fætur öðru og framúrkeyrsluna á ráðuneytum, aðalskrifstofum, sendiráðum og hverjum liðnum á fætur öðrum, sem við sjáum í fjárlögum og fjáraukalögum ár eftir ár.

Í þessum tillögum finnur hæstv. fjármálaráðherra, m.a. í 6. gr., að ráð er fyrir því gert að selja eignir utanríkisráðuneytisins erlendis fyrir 900 millj. kr. Tiltölulega einfalt mál og auðframkvæmt, enda hefur verið bruðlað mikið í þeim þætti í gegnum árin eins og hæstv. ráðherra þekkir. Í lið 7.11 finnur hann tillögu um 600 millj. kr. sparnað í öðrum útgjöldum ráðuneyta en það er liður sem hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og ekki vanþörf á að taka þar nokkuð á. Í lið 7.12 finnur hann 3 milljarða frestun á yfirfærslu heimilda á næsta ár sem hér hefur verið nokkuð til umræðu. Það er rétt að hér hafa iðulega verið færðir nærri 20 milljarðar kr. yfir áramót í ónýttum heimildum. Það er auðvitað til marks um þá óráðsíu sem verið hefur í utanumhaldi um framkvæmd fjárlaga að menn hafa ekki haft tíma til að eyða þeim ótæpilegu útgjaldaheimildum sem ausið hefur verið hér til hægri og vinstri. Það er ekki tillaga Samfylkingarinnar einnar sér að taka á þessu. Við erum einfaldlega að feta í fótspor Ríkisendurskoðunar sem ítrekað hefur brýnt fjármálaráðuneytið á því að taka þessar óhóflegu útistandandi heimildir til gagngerrar endurskoðunar og innkalla stærstan hluta þeirra. Við kjósum hins vegar að taka tiltölulega mjög lítil skref í þessu, 3 milljarða, og þar sem ekki liggur fyrir spá um stöðu um áramót er hún ekki sérstaklega sundurgreind á einstaka liði. En ég er ekki í nokkrum vafa um að hæstv. fjármálaráðherra verði ekki skotaskuld úr því að finna þessum 3 milljörðum stað í öllum þeim aragrúa útgjaldaheimilda sem flytja á yfir áramót.

Í lið 7.13 hygg ég að sé að finna 600 millj. kr. sparnað í ferðakostnað og risnu ráðuneytanna. Hv. þingmenn geta fundið í fyrirspurnum hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur með reglulegu millibili upplýsingar um hvernig þessi liður hefur verið að þróast og bólgna út þannig að sannarlega er orðið óhætt að taka á. Í lið 7.14 hygg ég að sé að finna um 900 millj. kr. í lækkun á aðkeyptri sérfræðiaðstoð A-hluta stofnana, en í fyrirspurn frá sama hv. þingmanni má finna greinargóðar upplýsingar um hvernig þessi útgjöld hafa vaxið og raunar margfaldast á tiltölulega stuttum tíma. En, virðulegur forseti, hér er auðvitað eins og ég hef áður sagt fyrst og fremst um að ræða táknrænar tillögur um hvar taka má á í útgjöldunum, hvar væri ástæða til að bæta í í útgjöldunum, hvernig breyta á skattalækkunum sem hér eru lagðar til þannig að þær komi fólkinu í landinu fyrst og fremst til góða en ekki okkur, forréttindastéttinni á Alþingi, og þeim sem í okkar stétt eru aðrir. Ég treysti því að hæstv. fjármálaráðherra taki þeim tillögum vel.

Ég sagði við 1. umr. að fjölmargir aðilar hefðu vakið máls á því að afgangur á fjárlögum þyrfti að vera sem næmi um 3% af landsframleiðslu og trúlega væri það rétt mat um leið og óraunsætt væri að gera ráð fyrir því að auka svo mjög afganginn á fjárlögum með einhverjum tillöguflutningi í nóvember, því að það sem menn væru að glíma við væri áralangur uppsafnaður útgjaldavandi úr fjármálaráðherratíð hæstv. núverandi utanríkisráðherra, Geirs Haardes. Eins og komið hefur fram í umræðunni fyrr í kvöld jukust útgjöld hér á tiltölulega fárra ára bili um 100 milljarða kr. og hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson hefur verið óþreytandi við að vekja athygli manna á þeim hækkunum og útgjaldaaukum sem voru í þeirri tíð, sem sem betur fer er þó aðeins að takast að koma böndum á hin seinni árin.

Það er fagnaðarefni að frá því að frumvarpið var lagt fram til 1. umr. hefur afgangurinn aukist úr 14 og upp í 20 milljarða eins og um var talað. Og með þeim tillögum sem við höfum flutt, sem eins og ég segi eru fyrst og fremst táknrænar og vísbendingar fyrir fjármálaráðherrann, þá væri verið að auka afganginn upp í tæpa 24 milljarða. En það er kannski ekki það sem skiptir mestu máli í þessu, virðulegur forseti. Það sem skiptir kannski mestu máli um afganginn af fjárlögum, þ.e. fari einhver eftir þeirri bók, er að framkvæmdin á fjárlögunum sé þannig að þessi afgangur verði, því að ef undan er skilið þetta ár, horfum við upp á það að útgjöldin hafa verið að vaxa að meðaltali um nærri 20 milljarða á hverju einasta ári umfram það sem gert er ráð fyrir í fjárlögunum vegna þess að framkvæmdin á þeim hefur öll einkennst, því miður, af aga- og aðhaldsleysi. Ég veit að á því ber nýr hæstv. fjármálaráðherra enga ábyrgð og ætla ekki að ræða það við hann sérstaklega öðruvísi en að brýna hann í því sem nýjan fjármálaráðherra að taka í þessu efni til hendinni og vinna að því að sá fjárlagaafgangur sem hér er gert ráð fyrir skili sér örugglega heim í hús. (Gripið fram í.) Hér er sannarlega verið að uppskera skatttekjur af því sem er sennilega að verða heimsmet í skuldasöfnun, sem er skuldasöfnun þjóðarbúsins alls. Við verðum að muna að heimilin í landinu og fyrirtækin í landinu hafa verið að skuldsetja sig verulega og á því er ríkissjóður að græða í dag. En hann mun ekki græða á því á næsta ári og því síður árið 2007 þegar úr þenslunni dregur en þá mun þess meir reyna á útgjaldaþáttinn. Því miður með áframhaldandi skattalækkunum á hátekjuhópana stefnir í að þá verði rekstur ríkissjóðs orðinn neikvæður og að hér sé þess vegna verið að leggja grunninn að vanda, vanda sem mun bíða næstu ríkisstjórnar að leysa.