132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[17:08]
Hlusta

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Jón Bjarnason) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ræða hæstv. fjármálaráðherra olli mér nokkrum vonbrigðum. Ég hefði talið eðlilegt að hann velti fyrir sér raunverulegum tekjugrunni ríkissjóðs. Eina spurningin í framsögu minni laut að því hvort hæstv. fjármálaráðherra gæti svarað því hverjar tekjur ríkissjóðs væru nú ef viðskipti við útlönd væru í jafnvægi. Tekjurnar sem núna halast inn gera það vegna viðskiptahalla, vegna þenslu, viðskiptahalla sem við viljum væntanlega ekki hafa. Eða er það hugmynd ráðherrans að reka ríkissjóð á viðskiptahalla? Hverjar væru tekjur ríkissjóðs nú ef viðskipti væru í jafnvægi og eðlilegt ástand í efnahagslífinu? (Forseti hringir.) Ég hef áhyggjur af stöðu ríkissjóðs, frú forseti.