132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[17:09]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég man nú ekki þessar tölur en ég held að ég hafi örugglega verið með þær í framsöguræðu með fjárlagafrumvarpinu. Ég held meira að segja að ég hafi kynnt þær á fundi með hv. þingmanni þegar fjárlagafrumvarpið var kynnt fyrir hv. fjárlaganefnd, að þá hafi ég kynnt þessar tölur um sveiflujöfnunina á fjárlögunum. Það er sjálfsagt að (Gripið fram í.) fara yfir þær með hv. þingmanni. Ég er bara ekki með þær hérna eins og er.