Fjárlög 2006.
Ég held að það væri nú bara nokkuð góð staða ef við værum í þeirri stöðu, sem ég held reyndar að við séum. Ég held að við séum meira að segja vel ríflega yfir því. Miðað við sveiflujöfnuð fjárlög þá erum við í plús. Ég held að það væri bara nokkuð góð og eðlileg staða fyrir ríkissjóð. (Gripið fram í.) Það er ekkert sérstakt markmið hjá ríkissjóði að safna peningum þegar hið opinbera er þannig statt, að teknu tilliti til gjaldeyrisforða Seðlabankans, að það er vel ríflega í plús. Þá er engin ástæða til þess að vera með mikla skattheimtu umfram það. Það er hins vegar (Gripið fram í: ... á þenslu.) reynsla undanfarinna ára og reynsla þeirra skattalækkana sem við höfum verið að gera á undanförnum árum að við það aukast skatttekjurnar þannig að tekjugrunnurinn (Gripið fram í: Eru það skatt...) styrkist við það að lækka prósenturnar og tekjur ríkisins aukast. Það hefur jákvæð áhrif á hagþróunina og hagvöxtinn og er stór hluti af því sem við erum að upplifa jákvætt í okkar hagkerfi þessa dagana. (Gripið fram í.)