132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[18:56]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Auðvitað er það alveg rétt að hæstv. ráðherra og aðrir geta haft sínar skoðanir og verið ósammála Seðlabankanum um horfur í efnahagsmálum. Ég verð þó bara að segja að þessi ummæli hæstv. forsætisráðherra slógu mig þannig. Blærinn á þeim var einhvern veginn þannig að ég fékk það á tilfinninguna. Kannski var það alger misskilningur að þetta væri sett fram sem bein tilraun til að hafa áhrif á Seðlabankann og reyna að stjórna því sem hann gerði.

Hæstv. forsætisráðherra veit vel að annars vegar Seðlabankinn og hins vegar ríkisstjórnin meta þessa hluti með mjög ólíkum hætti. Það liggur alveg fyrir. Það virðist vera djúpstæður ágreiningur um það hvernig þessi mál séu vaxin milli þessara aðila. Mér fannst hæstv. forsætisráðherra vera að segja við Seðlabankann: Við höfum rétt fyrir okkur og þið eigið að gera eins og við viljum.

Það má tína til, eins og hæstv. forsætisráðherra gerði, hluti til skamms tíma litið með nákvæmlega þessum hætti og segja: Það eru teikn á lofti um betri tíð. En Seðlabankinn stjórnast ekki af því. Seðlabankinn er ekki að velta því fyrir sér hvort verðbólgumælingin í október eða nóvember sé svo góð að hann geti lækkað vexti. Og ekki heldur hvernig verðbólguhorfurnar eru í janúar og febrúar. Nei, Seðlabankinn horfir 1–2 ár fram í tímann. Hann reynir að stýra væntingunum framvirkt þannig að menn hafi tök á ástandinu, ekki bara í augnablikinu heldur gagnvart því sem fram undan er og hverjar eru þá horfurnar? 8% verðbólga á árinu 2007, segir Íslandsbanki. Ég held að Seðlabankinn horfi á þetta í öðrum tímaskala en hæstv. forsætisráðherra. Ég er ekki jafnbjartsýnn og hann er kannski um að Seðlabankinn sjái ekki ástæðu til vaxtabreytinga 1. desember nk. og ef þær verði einhverjar þá verði þær ekki frekar upp á við en niður á við.