132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[23:04]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil einungis þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa lýst þessu yfir hér í þingsal. Það liggur þá fyrir að hæstv. ráðherra gerir ráð fyrir því, eftir samráð við yfirstjórn LSH og sitt fólk í ráðuneytinu, að framkvæmdir geti hafist innan tveggja mánaða. Það sem skiptir öllu máli er að hann hefur lýst því hér yfir að þeim verði hugsanlega lokið innan árs. Ég tel að þetta sé farsæl niðurstaða og vil fyrir mitt leyti þakka hæstv. ráðherra þann atbeina sem hann hefur veitt þessu mikilvæga máli.