132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[23:10]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður gleymdi auðvitað að greina á milli opinbers framlags og framlags úr öðrum geirum samfélagsins þegar hann hélt fram síðustu fullyrðingu sinni. Ég vil líka benda hv. þingmanni á að skammt er síðan skýrsla kom frá samtökum Evrópuháskóla þar sem kom alveg skýrt fram að t.d. Háskóli Íslands stendur jafnfætis samanburðarháskólum hvað varðar gæði rannsókna og nám en það skortir upp á opinberar fjárveitingar til að hægt sé að þróa skólann áfram. Þeim hefur orðið mikið úr minna fé en samanburðarskólunum. Þetta er bara staðreynd.

Ja, þakka skyldi að eitthvað hafi gerst frá því að ég var ungur maður, frá því að ég tók landspróf, á öllum þessum tíma. Það er alveg rétt að það var ekkert sjálfsagt hjá þeirri kynslóð sem ég tilheyri að menn færu í langt nám, hvað þá að þeir væru í skóla þangað til þeir væru næstum þrítugir eins og ég, og ég var sá fyrsti úr minni fjölskyldu sem fór í háskólanám. En við verðum að bera það sem gerist hér saman við það sem er að gerast í nágrannalöndunum og þá kemur einfaldlega fram að það eru færri á Íslandi sem ljúka framhaldsskólamenntun, hér eru færri á háskólastigi en þar og hér er minna opinbert fé veitt til þess.

Hver er afleiðingin af þessu? Ja, hátækniiðnaður þróast örar og betur í þessum löndum en hér. Menntun er undirstaða allra framfara í dag. Stefna hæstv. menntamálaráðherra — hún er búin að afreka það að allt framhaldsskólakerfið er í uppnámi með vanhugsuðum tillögum sínum sem hún þorir ekki einu sinni að koma hingað og svara. Hún hefur áorkað því, eins og ég hef reynt að rökstyðja í ræðum mínum í kvöld, að háskólastigið stendur ekki alveg jafnfætis að öllu leyti því sem gerist erlendis. Hvar er stefna hæstv. menntamálaráðherra? Hún er ekki til.