132. löggjafarþing — 29. fundur,  24. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[23:43]
Hlusta

Anna Kristín Gunnarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Sagt er að góðæri ríki á Íslandi og það er líka sagt að það sé þensla á Íslandi. Ég held að við getum öll verið sammála um að fyrir vissa aðila og jafnvel á vissum svæðum landsins ríki góðæri á Íslandi og þó einkum og sér í lagi fyrir útvalinn hóp. Það er örugglega hægt að tala um þenslu á vissum svæðum landsins, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu og þar í kring og á Austurlandi. Annars staðar er ekki hægt að tala um þenslu heldur þvert á móti samdrátt mjög víða.

Í þessu ástandi hefur umtal um byggðastefnu eðlilega skotið upp kollinum og málefni Byggðastofnunar sérstaklega. Það er vegna þess að bornar voru fram spurningar í tengslum við fjárlagagerðina hvort ekki væri fyrirhugað að fara fram á auknar fjárveitingar til Byggðastofnunar þegar í ljós kom að hún var komin undir það eiginfjárhlutfall sem lögboðið er samkvæmt Fjármálaeftirlitinu. Ekki bólar á neinum aukatillögum.

Í fjárlagafrumvarpinu eru settar 664,3 millj. kr. í það sem kallast byggðamál. Þau eru undir tveimur liðum, þ.e. Byggðastofnun og Byggðaáætlun. Byggðastofnun fær 337 millj. kr., þ.e. 204 í rekstur og 133,5 til atvinnuráðgjafar, sem deilast út um landið til atvinnuþróunarfélaganna. Samkvæmt úttekt sem hæstv. byggðamálaráðherra, yfirmaður Byggðastofnunar, lét gera fyrir sig og skilað var til hennar í maí, frú forseti, þarf Byggðastofnun árlega 570–620 millj. kr. ef hún á að standa undir rekstri og þeim fyrirsjáanlegu útlánatöpum sem stofnunin þarf að glíma við. Hæstv. ráðherra hefur kosið að taka ekki mark á þessum ábendingum þannig að stofnunin á að fá í sinn hlut 337 millj. samkvæmt tillögu í fjárlögum. Auk þess á stofnunin að fá heimild í lánsfjárlögum upp á 1,5 milljarða. Það er vandséð hvað stofnunin hefur með slíkt að gera ef hún verður óstarfhæf á næsta ári. En eins og stendur er stofnunin ekki fær um að starfa á þessu sviði en hún hefur að vísu fleiri svið.

Samfylkingin leggur fram tillögu við fjárlagagerðina um að 500 millj. kr. verði veitt inn á lið 01-190, til Sérstakra verkefna á landsbyggðinni. Við leggjum til að sú fjárveiting fari til forsætisráðuneytisins þar sem hæstv. iðnaðarráðherra sé ekki treystandi fyrir málaflokknum. Það er ekki langt síðan að Byggðastofnun var flutt undir iðnaðarráðuneytið, var áður hjá forsætisráðuneytinu og á í rauninni betur heima þar. Byggðamál er málaflokkur sem snertir mjög mörg svið og á mjög vel heima undir forsætisráðuneytinu og hann á ekkert frekar en önnur málefni heima með málefnum sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið hefur með höndum.

Í umræðunni nú hefur mikið verið talað um hversu miklu Byggðastofnun hefur tapað að undanförnu, þ.e. hversu mörg lán hún hafi veitt sem ekki hafa verið greidd, t.d. þegar fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota. Í úttektinni sem ég minntist á áðan kemur fram að lánin sem stofnunin er nú að fá í hausinn, ef svo má segja, voru langflest veitt á nokkurra ára tímabili, fyrir árið 2001. En árið 2002 var ráðinn nýr framkvæmdastjóri að Byggðastofnun og þar tók líka nýr stjórnarformaður til starfa, Jón Sigurðsson, núverandi bankastjóri Seðlabanka Íslands. Undir hans stjórn voru settar nýjar verklagsreglur og vinnureglur við stofnunina. Eftir að þessir nýju aðilar tóku við sem skipstjóri og fyrsti stýrimaður er verklagsreglum og starfsemi Byggðastofnunar hrósað í skýrslunni eða úttektinni. En ég reikna með að mörgum, örugglega öllum þingmönnum, sé í fersku minni átökin sem höfðu átt sér stað innan stjórnar Byggðastofnunar áður en skipti urðu á stjórnarformanni og framkvæmdastjóra. Þeim átökum lyktaði með að báðir aðilar létu af störfum. Þetta varð að sjálfsögðu ekki til góðs fyrir stofnunina, hafði mjög slæm áhrif á starfsemina, olli óróleika og óstjórn. Það sem stofnunin glímir við nú eru sem sagt gamlar syndir sem grunnurinn var lagður að fyrir 2001, fyrir þann tíma sem núverandi stjórn og núverandi framkvæmdastjóri eða forstjóri og stjórnarformaður tóku við.

Þessi átök og ýmis konar kárínur sem stofnunin hefur orðið fyrir, hafa orðið til þess að hún hefur fengið á sig frekar lélegt orðspor. Og ekki bætir úr þegar svo er búið að stofnuninni að hún geti ekki sinnt því hlutverki sem hún á að sinna samkvæmt lögum. Því að sjálfsögðu eru til lög um Byggðastofnun sem kveða á um hvað hún á að hafa með höndum og það er mjög mikilvægt fyrir viss svæði landsins. Í úttektinni sem ég var að vitna í áðan kemur fram að stærstur hluti lána og fyrirgreiðslna sem stofnunin hefur veitt fer til Vestfjarða og í einstaka málaflokka fer stærsti hlutinn í fiskveiðar og vinnslu. Við vitum öll að Vestfirðir eru sá landshluti sem hefur farið verst út úr fiskveiðistjórnarkerfinu og á við langmestan vanda að etja í atvinnumálum af þeim sökum.

Byggðastofnun þarf ekki einungis að glíma við þær aðstæður sem ég lýsti heldur þarf hún líka að glíma við breytingar á fjármálamarkaði. Þegar bankarnir lækkuðu vexti kom auðvitað að því að Byggðastofnun var með miklu óhagstæðari kjör á sínum lánum en þeir. Og Byggðastofnun hefur engar aðstæður til að breyta þeim vegna þess að hún fjármagnar sín lán með lántökum erlendis og svo óheppilega vildi til að um það bil þremur mánuðum áður en þessar breytingar urðu á íslenskum fjármálamarkaði, var stofnunin nýbúin að taka stórt erlent lán. Mér er sagt að ef hún hefði staðið í þeim viðskiptum þrem mánuðum síðar þá væri hún ekki í jafnslæmum málum og hún er í í dag. En Byggðastofnun er gert að lána út með ákveðnum lánamun sem gerir það að verkum að hennar lán eru miklu óhagstæðari en þau sem bjóðast á almennum markaði. Fyrir vikið sóttust viðskiptavinir Byggðastofnunar eftir því að endurfjármagna lán sín og fara í viðskipti við viðskiptabankanna. Við það er ekkert að athuga og er hið besta mál og gott að lántakendur geti fengið sem best kjör á lánum sínum, það er eðlileg og sjálfsögð sjálfsbjargarviðleitni hjá fólki að leita sem bestra kjara á hverjum tíma. Þeir sem voru traustir og öruggir og höfðu góð veð fengu fyrirgreiðslu hjá bönkunum. En það voru ekki allir, hinir ótryggu og veiku urðu eftir. Reyndar er það nú svo að það þarf ekkert endilega að vera ótryggur eða veikur til að fá ekki fyrirgreiðslu. Ég þekki dæmi um aðila sem byggði upp gistiaðstöðu á landsbyggðinni, fékk fyrirgreiðslu hjá Byggðastofnun, hefur gengið ljómandi vel og alltaf staðið í skilum. Hann hefur stækkað við sig, fengið aukna fyrirgreiðslu og komið upp matsölu líka vegna þess að viðskiptavinir hans óskuðu eftir því. Sá aðili borgar 7,7% vexti hjá Byggðastofnun. Hann leitaði til viðskiptabanka síns um að fá fyrirgreiðslu. Mál hans voru tekin til skoðunar og metin og viðskiptabanki hans í heimabyggð mat það svo að hann væri traustsins verður og rétt væri að taka hann í viðskipti. Þetta hefði þýtt 300 þús. kr. árlega minni vaxtagreiðslur fyrir viðkomandi einstaklinga, ung hjón. En þegar málið var lagt fyrir aðalbankann í Reykjavík þá var sagt nei. Þessi aðili hefur alltaf staðið í skilum við Byggðastofnun og gerir örugglega enn þann dag í dag, en þarf þó að borga 7,7% vexti. Þrátt fyrir að hann sé traustur aðili situr hann uppi með sitt óhagstæða lán.

Byggðastofnun er líka með fyrirtæki í viðskiptum sem skila stofnuninni sjálfri engum gróða þótt þau standi í skilum. Þau skila bönkunum heldur engu og þeir vilja þar af leiðandi ekki taka þannig fyrirtæki í viðskipti. Ég get tekið dæmi af litlu 20 manna fiskvinnslufyrirtæki í smábæ sem ég þekki. Þetta fyrirtæki heldur nokkurn veginn velli og mundi örugglega ekki teljast mikils virði hér í Reykjavík eða á stærri markaði. En þetta er mjög mikilvægt fyrirtæki í þessum litla bæ, í fyrsta lagi veitir það 20 manns atvinnu og þeir skila útsvarstekjum inn í byggðarlagið og fyrirtækið sjálft sínum gjöldum. En viðskiptabankarnir hafa engan áhuga á svona fyrirtækjum. Þetta er dæmi um fyrirtæki sem Byggðastofnun tekur í viðskipti og við verðum að hafa stofnun sem getur sinnt slíku hlutverki, þ.e. ef við ætlum að hafa byggð í strjálbýlinu.

Það eru margir sem spyrja hvort við eigum bara ekki að láta bankana um þetta. En ég tel að þau dæmi sem ég hef nú rakið sýni og sanni að við getum ekki látið bankana um þetta. Við verðum að hafa stofnun sem tekur að sér að styðja við atvinnulífið. Og Byggðastofnun þarf auðvitað að fá aðstæður til að vinna betur. Hún þarf að geta stuðlað að nýsköpun og staðið við bakið á nýjum fyrirtækjum og nýjum greinum úti á landi af því að atvinnulífið á landsbyggðinni er víða allt of fábreytt og brothætt. Þar þurfum við að gera breytingu á.

Byggðastofnun er falið fleira en bara að standa í lánastarfsemi. Henni er falið að meta ýmis konar hluti og gera tillögur. Henni var t.d. falið að gera tillögur til að jafna aðstöðumun fyrirtækja úti á landsbyggðinni og svo á þéttbýlissvæðunum, í Reykjavík og víðar. Byggðastofnun gerði skýrslu og tillögur en þær eru niðri í skúffu hjá hæstv. ráðherra byggðamála. Þær hefur enginn fengið sjá þótt eftir þeim hafi verið gengið. Ég kalla slíkt ekki mikla eftirfylgni hjá ráðherranum eða áhuga á að fylgja eftir góðum tillögum sem settar eru fram og mundu örugglega nýtast atvinnulífi á landsbyggðinni mjög vel.

Af því ég er að tala um hæstv. ráðherra byggðamála þá ætla ég að víkja aðeins að vaxtasamningum, frú forseti. Það er eitt af þeim töfraorðum sem nú eru mikið uppi við. Fyrir nokkrum árum var gerður vaxtasamningur við Eyjafjörð sem byggist á því að búa til fyrirtækjaklasa, það kemur fjárframlag frá ríkinu og síðan mótframlag frá heimaaðilum. Núverandi ríkisstjórn hefur sett fram í byggðaáætlun hugmynd um þrjú svæði á landsbyggðinni sem beri að styrkja sérstaklega, þ.e. Akureyri, Miðausturland og Ísafjarðarsvæðið. Þau þrjú svæði eru þá hugsuð sem þjónustukjarnar fyrir svæðið í kring, t.d. Ísafjörður á að vera þjónustukjarni fyrir alla Vestfirði, suðurfirðina, Strandirnar og allt heila svæðið, hversu skynsamlegt sem það kann nú að hljóma í eyrum þeirra sem þekkja samgöngumál á Vestfjörðum en ég ætla að koma að því síðar.

Ísafjörður var næsta svæði sem var svo heppið að fá vaxtarsamning, staður sem á að vera þjónustukjarni fyrir alla Vestfirði. Þó nokkuð þykk bók var skrifuð í því tilefni, örugglega ágætar hugmyndir margar hverjar. Ég veit að talsvert miklar væntingar eru bundnar við þann vaxtarsamning. Orðið eitt og sér lætur svo vel í eyrum, vaxtarsamningur.

Meðaltekjur á Vestfjörðum hafa hrapað en voru áður hæstar á landinu. Það var meðan útgerðin var þar í blóma. Nú eru meðaltekjurnar orðnar frekar lágar og mjög lítið er um sterk fyrirtæki á Ísafirði eins og reyndar alls staðar úti á landi. Hvað skyldu svo miklir fjármunir vera settir í þennan vaxtarsamning um Ísafjarðarsvæðið fyrir Vestfirði, samning sem gildir í þrjú ár? Það hlýtur að vera rosalega mikið. Það á að efla heilan byggðakjarna til að hann geti stutt allt svæðið í kringum sig og orðið drifkraftur í að byggja upp atvinnulíf og ég veit ekki hvað og hvað. Það eru 70 millj. kr., takk fyrir, á þremur árum, 70 millj. kr. Heimaaðilar á Ísafirði, sem eiga lítinn pening, eins og ég gat um, eiga að leggja þar fram jafnmikið á móti.

Til að setja þetta aðeins í samhengi vil ég minnast á hús sem á að fara að byggja hér í Reykjavík, Það á að fara að byggja hús í Reykjavík fyrir 12 milljarða, eitt hús. Ég er ekki að öfundast út í Reykvíkinga fyrir það hús enda á það að nýtast öllum landsmönnum. Ég gleðst yfir því og veit að það verður aðdráttarafl fyrir ferðamennsku, listalíf og hvað eina. Það verður gaman þegar búið verður að byggja þetta hús. En þarna er augljóslega ansi mikill aðstöðumunur, 70 millj. kr. í Ísafjörð til þriggja ára en 12 milljarðar í eitt hús. Ég ætla að taka það fram að þessir 12 milljarðar koma að vísu ekki allir úr ríkiskassanum, hluti fjármagnsins á að koma frá Reykjavíkurborg og öðrum aðilum. Það er hægt, þegar viljinn er fyrir hendi, að koma hlutunum fyrir á þennan hátt. En það er ekki hægt að koma samgöngum við Ísafjarðarsvæðið eða aðra hluta Vestfjarða í lag.

Samkvæmt samgönguáætlun sem var í gildi fyrir síðustu kosningar máttu Ísfirðingar og íbúar þar í kring eiga von á að geta ekið á malbiki frá Ísafirði til Reykjavíkur árið 2014, á malbiki. Síðan komu jólasveinarnir rétt fyrir kosningar og settu milljarð aukalega í vegamál þannig að nú geta Ísfirðingar og íbúar þar í kring vænst þess að geta keyrt á malbiki Djúpleiðina til Reykjavíkur árið 2008. Það er ekki hægt enn þann dag í dag, 2008 skal það vera. Þá á eftir að bæta úr samgöngum við suðurfirðina. Þannig háttar til þar að á sumrin þegar rignir setja flutningabílstjórar keðjur undir bílinn sinn til þess að komast niður einn hálsinn. Mín skoðun er sú að það þurfi að gera sérstaka áætlun um samgöngur við Vestfirði og ég held að við eigum að setja okkur það mark að klára samgöngubætur á tíu árum, í fyrsta lagi milli suður- og norðurhluta Vestfjarða og í framhaldi af því alla leiðina suður, og gera það af metnaði. Það kostar örugglega 30–40 milljarða. Ég ætla aftur að setja þetta í samhengi við þetta eina hús sem á að fara að byggja í Reykjavík. En ég tel óráðlegt að tala um að styrkja byggð eða búa til byggðakjarna eða hvað það nú er, eða halda að við getum breytt einhverju verulega á Vestfjörðum fyrr en samgöngur eru komnar í viðunandi horf. Samgöngur komast ekki í viðunandi horf nema mörg jarðgöng verði búin til og einhverjir firðir verði brúaðir og það er mjög dýrt. En það er líka dýrt að leggja heilu landshlutana af eins og við stefnum í með þessu áframhaldi.

Það sama á reyndar við um Austurland. Þar þarf að segja B á eftir A-inu. Þar eru miklar framkvæmdir og mikil uppbygging í atvinnulífinu, virkjunarframkvæmdir og hvað eina. En meira þarf að koma til. Þar þarf fleiri jarðgöng. Fyrir því er reyndar verið að berjast þar eystra og stofnaður hefur verið hópur sem mig minnir að heiti Veggöng á Austurlandi. Ég lýsi stuðningi mínum við hugmyndir þess hóps. Ég tel að ekkert sé arðbærara og skynsamlegra í byggðamálum en einmitt samgöngubætur.

Að vísu er annar þáttur sem er mjög mikilvægur fyrir landsbyggðina líka og reyndar hvaða svæði landsins sem er. Það sést svo ljóslifandi á landsbyggðinni af því að breytingar eru að verða á síðustu árum í því efni þar. Þá er ég að tala um skólana. Þetta kom vel í ljós þegar fjölbrautaskólarnir voru settir á stofn vítt og breitt um landið, þvílík breyting sem varð á byggðarlögunum. Nú síðast sáum við, og íbúar á Snæfellsnesi, álíka gleðilega breytingu verða þegar framhaldsskóli var settur á fót þar. Við sjáum þetta líka á vissum stöðum á landsbyggðinni þar sem háskólar hafa fengið að starfa. Minnst hefur verið á Háskólann á Akureyri í dag. Hann hefur gert mjög mikið fyrir Akureyri og byggðirnar þar í kring og hann hefur líka gert mikið fyrir aðra staði á landsbyggðinni. Rannsóknir hafa sýnt að það fólk sem menntar sig í háskólum á landsbyggðinni er miklu líklegra til að festa rætur og starfa þar. Það eru veigamikil rök fyrir háskólum á landsbyggðinni.

Við sjáum líka hvað háskólinn á Hólum er geysilega mikilvægur fyrir Skagafjörð og háskólarnir í Borgarfirði fyrir það svæði. Sú starfsemi er ómetanleg og hana verður að styðja. Við höfum hins vegar orðið vör við mikið metnaðarleysi ríkisstjórnarinnar í því að koma upp störfum fyrir langskólagengið fólk á landsbyggðinni. Það kemur m.a. fram í athugasemdum Fjórðungssambands Vestfirðinga við væntanlega byggðaáætlun sem nú er í undirbúningi. Hvorki er talað um flutning starfa fyrir menntað fólk út á landsbyggðina né flutning stofnana eins og var þó í fyrri byggðaáætlun. Þá var gerð aðgerðaáætlun fyrir ráðuneyti um að flytja störf út á land. Að vísu varð minna um efndir en orð en maður verður enn vondaufari þegar ekki einu sinni er hægt að herma orð upp á hæstv. ríkisstjórn. Þeir passa sig á því.

Varðandi skólana er eiginlega líka dálítið kúnstugt að horfa upp á að hæstv. landbúnaðarráðherra er mun metnaðarfyllri og stendur betur við bakið á þeim háskólum sem undir hann heyra en hæstv. menntamálaráðherra. Það hvarflar að manni að leggja til að háskólarnir fari undir stjórn hæstv. landbúnaðarráðherra. Hann hefur sinnt þeim svo ansi vel, háskólanum á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands. Ég er alveg viss um að hugur hans stendur til enn frekari stuðnings þó ég sakni þess að vísu að frumvarp um háskólann á Hólum er ekki enn komið fram en ég veit að það frumvarp er löngu tilbúið og liggur í ráðuneytinu. Það er eitthvað sem stendur þar í veginum, því miður.

Ég ætla, þó að hæstv. ráðherra sé horfinn héðan, hann sat hér lengi í kvöld, að nota tækifærið og skora á hann að koma þessu frumvarpi fram fyrir jól. Ég skal með ánægju styðja hann í að koma því áfram.

Í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar, á bls. 6, hljóðar ein markmiðsgreinin svo, með leyfi forseta:

„Að tryggja öllum jöfn tækifæri til náms án tillits til búsetu og efnahags.“

Þetta líkar mér en í því efni, eins og fleirum, vil ég sjá efndir, ekki bara orð. Símenntunarmiðstöðvarnar eru mikilvægur aðili í því að tryggja jafnrétti til náms og góðar aðstæður en þær hafa ekki fengið það fjármagn sem til þarf til að geta staðið almennilega að því að sinna þeirri þörf sem virkilega er fyrir hendi. Sérstaklega hefur ástandið verið erfitt þar sem margir eru í háskólanámi og margar útstöðvar eru því að sumar stöðvarnar þjónusta á 4, 5 og upp í 6 stöðum fyrir utan höfuðstöðvarnar. Það er ekki nóg að fagna því að margir séu í háskólanámi. Það er ekki nóg að lýsa yfir að til standi að veita öllum jöfn tækifæri til náms óháð efnahag eða búsetu. Það þarf að efna orðin og á því hefur staðið.

Háskólarnir eru í fjárhagskreppu eins og komið hefur fram og eitt af því sem kostar mikið fyrir háskólana er fjarkennslan. Þeir hafa í rauninni ýtt af sér þeim kostnaði sem fylgir fjarkennslu á þeim stað sem nemandinn er. En á þeim stöðum þar sem háskólarnir eru, t.d. í Reykjavík og á Akureyri, þá axlar auðvitað ríkið þann kostnað sem hlýst af vinnuaðstöðu nemandans og þjónustu við tækjabúnað og öðru. Þessu hefur verið ýtt yfir á sveitarfélögin vegna þess að stöðvarnar með sínar 9 eða 10 milljónir árlega geta að sjálfsögðu ekki tekið á sig kostnað af FS-netinu, af þjónustu við FS-netið og af húsnæði og öðru því sem þarf til þess að geta boðið upp á þetta nám. Sveitarfélögin hafa sýnt þessu skilning og eru af veikum mætti að borga. Til dæmis er kostnaðurinn við þetta á Vesturlandi 4 milljónir fyrir sveitarfélögin. Það er algjörlega óásættanlegt. Hann er eitthvað álíka fyrir sveitarfélög á Norðurlandi vestra og sums staðar er þetta enn meira. Ríkið verður að taka á sig rögg í þessu efni og endurskoða hvernig að þessum málum er staðið.

Ég sagði í upphafi máls míns, frú forseti, og það hefur komið fram fyrr í kvöld í máli hv. þm. Samfylkingarinnar Össurar Skarphéðinssonar að við teljum að málefni Byggðastofnunar, málefni landsbyggðarinnar væru betur komin í höndum forsætisráðherra en hæstv. byggðamálaráðherra. Til þess að byggja upp á landsbyggðinni þarf þrennt. Það þarf samgöngubætur. Það þarf nýja stefnu í atvinnumálum og það þarf að efla menntun.

Fyrir ekki löngu síðan spurðist ég fyrir um fjölda þeirra sem eru á aldursbilinu 20–40 ára á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og landsbyggðinni hins vegar og svo um menntun þess aldurshóps á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Ég vissi að það var mikill munur. En ég hafði ekki séð og veit ekki til að það hafi verið tekið saman áður nákvæmlega varðandi þennan aldurshóp. Hann er mjög mikilvægur fyrir öll byggðarlög því þessi aldurshópur er að eiga börn, er á fullu í atvinnulífinu, er að koma sér fyrir, er oft með frjóastar hugmyndir og mest frumkvæði. Ef þessi hópur er ekki fyrir hendi hefur byggðarlag í rauninni innifalið í sér fækkun vegna þess að, eins og ég sagði, það er þetta fólk sem er að fjölga sér og halda uppi fjöldanum til framtíðar.

Það kemur í ljós að í þessum aldurshópi er 2,2% færra á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. En það er sérstaklega sláandi að á höfuðborgarsvæðinu hafa 27,5% grunnskólapróf sem seinasta lokapróf en á landsbyggðinni eru það 45%. Það eru 27,5 á móti 45%. Á höfuðborgarsvæðinu hafa 46% framhaldsmenntun en 41% á landsbyggðinni. Þar hallar enn á landsbyggðina. Á höfuðborgarsvæðinu eru 26% háskólamenntun en 14% á landsbyggðinni. Þetta eru, frú forseti, skuggalegar upplýsingar vegna þess að þeir sem eru með menntun, lengri skólagöngu, hafa hærri tekjur. Það er fólkið sem er best undir það búið að takast á við breytilegt atvinnulíf, laga sig að nýjungum og takast á við hlutina. Þar að auki vitum við að atvinnulíf framtíðarinnar byggist á menntun, þ.e. ef við ætlum að halda velli í samkeppni á alþjóðavísu.

Þegar við höfum þessar tölur fyrir framan okkur, þessa skuggalegu mynd, sjáum við skýrar en nokkru sinni hversu mikilvægt er að standa almennilega að málefnum landsbyggðarinnar og þeim mun dapurlegra verður að hugsa til þess að hafa í forsvari manneskju sem hefur í raun ekki áhuga á þessum málaflokki og vill helst ekki vita um það sem miður fer og vill ekkert gera í málunum. Þannig tel ég að málin séu, því miður, frú forseti.

Við samfylkingarþingmenn munum leggja fram tillögu hið allra fyrsta um málefni Byggðastofnunar, málefni landsbyggðarinnar, um að Byggðastofnun verði flutt undir forsætisráðherra með öllu því sem henni tilheyrir.