Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Það er nú orðið langt liðið á kvöld og komið fram á nótt. Ég mun reyna að stytta mál mitt og fara yfir nokkra áherslupunkta sem sumir hafa komið fram með við umræðuna og ég vil hnykkja frekar á. Ég vísa til nefndarálits á þskj. 405 frá 2. minni hluta fjárlaganefndar hvað varðar forsendur fjárlaga, skuldastöðu þjóðarinnar og efnahagsspá, m.a. Seðlabanka, KB-banka og fleiri og tillögur þeirra aðila um hvernig þurfi að bregðast við því þensluástandi og þeirri skuldastöðu sem við búum við í dag.
Við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum lagt fram þó nokkrar breytingartillögur, bæði ein og sér og eins með stjórnarandstöðuflokkunum, til þess að lýsa áherslum okkar. Einnig höfum við lagt fram sem fylgiskjöl með fyrrgreindu nefndaráliti þingsályktunartillögur sem lýsa þeim leiðum sem Vinstri hreyfingin – grænt framboð vill fara til að ná efnahagslegum stöðugleika og til að ná meiri og betri jöfnuði í þjóðfélaginu.
Hæstv. forseti. Hæstv. ríkisstjórn og ríkisstjórnarflokkarnir eru nokkuð ánægðir með sig við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2006 og benda á góða stöðu ríkissjóðs. Ég segi bara eins og kerlingin sagði: Skyldi það nú vera að þeir væru ánægðir með sig. Því að þeir sem selja sína bestu mjólkurkú fá innleggið borgað í eitt skipti og ríflega fjárhæð sem þeir geta lagt inn, en þeir sem hlúa vel að mjólkurkúnni fá minni greiðslur en til lengri tíma og öruggt innlegg. Það er það sem ég tel að ríkisstjórnin hafi gert, að hún hafi selt hina góðu mjólkurkú þegar hún seldi Símann. Hún býr vel að því núna og næstu árin meðan verið er að eyða þeim fjármunum. En við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum farið yfir það og rökstutt vel, tel ég, hvers vegna við vildum ekki selja Símann heldur fá þann árlega arð sem varð af rekstri Símans og hlúa frekar að áframhaldandi rekstri þannig að þjóðin gæti notið öruggrar þjónustu þess fyrirtækis. En gert er gert og því er hægt að vísa til þess að til standi, ekki í þessum fjárlögum nema að hluta, en í nánustu framtíð og á næsta kjörtímabili að ráðstafa þeim fjármunum sem fengust fyrir sölu Símans.
Hæstv. forseti. Ég vil aðeins nefna — ég bið hæstv. forseta að láta sér ekki bregða þó að svona mikill bunki sé hér á borðinu, það stendur ekki til að lesa upp úr þessu en þetta er hluti þeirra gagna sem ég tók mér til handargagns.
Eins og áður hefur komið fram og sérstaklega hjá hv. þm. Guðmundi Magnússyni sem fór yfir stöðu mála sem snúa að öryrkjum og nefndi þar, eins og ég geri, að við tökum undir ályktun aðalfundar Öryrkjabandalagsins og þær kröfur sem frá Öryrkjabandalaginu hafa komið um að ríkisstjórnin standi við það samkomulag sem vitnað hefur verið til að hafi verið til fyrirmyndar en áhöld eru um að hún hafi staðið við og munar þar um 500 milljónum. Við leggjum því til að það verði bætt núna og þá verði komist hjá frekari málaferlum og skaðabótakröfum á hendur ríkinu. Ég tel að þetta sé mikið réttlætismál og að peningar eigi að vera til til að uppfylla þetta samkomulag og það sé rétt að gera það hið fyrsta.
Við höfum rætt um bensínstyrkinn sem átti að taka af og beita hagræðingarkröfu heilbrigðisráðuneytisins á þann lið en fallið hefur verið frá því að skera af bensínstyrkinn. En vegna þeirra ummæla og orðaskipta sem fóru fram milli hæstv. heilbrigðisráðherra og þingmanna um bensínstyrkinn og hvað þær upphæðir sem fara í bensínstyrkinn hefðu þanist út og hve mjög þeim bótaþegum sem fá bensínstyrk hefur fjölgað, vil ég benda á að þegar bensínstyrkurinn var settur á var horft til þess að þetta væru fatlaðir einstaklingar, þ.e. líkamlega fatlaðir og í hjólastól sem ekki kæmust á milli öðruvísi en með bíl. En, hæstv. forseti, það eru fleiri sem geta verið jafnósjálfbjarga eða ekki komist á milli staða nema með bíl þó að þeir séu ekki bundnir hjólastól. Má nefna sjúklinga sem eru með erfiða lungnasjúkdóma en eru ekki á heilbrigðisstofnunum heldur heima. Slíkir sjúklingar eru oft í það mikilli andnauð að þeir geta ekki komist á milli staða nema í bíl. Engir fá bílastyrk nema þeir séu með fullgilt læknisvottorð og þá vegna mismunandi sjúkdóma. Þetta er að hluta til ástæðan fyrir því að þessum einstaklingum hefur fjölgað svo mjög og ég tel enga ástæðu til að efast um að allir eigi rétt á bensínstyrk sem hafa hann í dag.
Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að vinna mjög hratt og skoða á allra næstu dögum það mál sem nú er komið upp varðandi innheimtu Tryggingastofnunar ríkisins á ofgreiðslum til öryrkja sem í ljós komið hefur eftir að Tryggingastofnun fékk betri tölvubúnað til að fylgjast með bótagreiðslum, vangreiðslum eða ofgreiðslum til lífeyrisþega. Ef um ofgreiðslur er að ræða er réttlætismál að endurgreiðslunni sé dreift á lengra tímabil þannig að fólk standi ekki uppi algjörlega tekjulaust og þá sérstaklega núna fyrir jólin. Það væri mjög ómannúðlegt að fella lífeyrisgreiðslur algjörlega niður fyrirvaralaust til þeirra sem hafa tekið á móti ofgreiðslum, flestir í góðri trú, og eiga síðan núna að vera þannig settir að fá engar greiðslur úr Tryggingastofnun. Það gengur ekki.
Hæstv. forseti. Mig langar til að segja nokkur orð um öldrunarþjónustuna og þá afgreiðslu sem hún fær í fjárlagafrumvarpinu og í þeim breytingartillögum sem komið hafa fram hjá stjórnarliðum og eins varðandi þær breytingartillögur sem við höfum lagt fram. Ljóst er að öldrunarstofnanir, dvalar- og hjúkrunarheimili, eiga í miklum rekstrarerfiðleikum. Þau eru mörg hver rekin á þessu ári með tapi og hafa þurft að spara óheyrilega til að reyna að láta enda ná saman og hefur ekki alltaf tekist. Mér finnst það vera þjóðarskömm ef svo er komið að sparnaðurinn hafi gengið svo langt að það sé farið að bitna á rekstri mötuneytanna, að þar sé hreinlega verið að spara. Maður gæti a.m.k. ályktað að svo sé þegar maður les niðurstöðu könnunar um næringarástand aldraðra á dvalar- og hjúkrunarheimilum þegar það sýnir sig að um næringarskort er að ræða hjá 60% einstaklinga sem dvelja á fyrrgreindum heimilum. Þetta er mjög alvarlegt. Rekstraraðilar hafa sýnt það og sannað að á ákveðnu tímabili, frá 1990–1998, var grunnurinn sem reiknað var út frá vanreiknaður. Því er nauðsynlegt að hið fyrsta verði þetta viðurkennt í fjárlögum og sú skekkja leiðrétt þannig að áframhaldandi rekstur verði eðlilegur og ekki sé verið að berjast stöðugt við fortíðarvanda og í máli sem er viðurkennt að er skekkja.
En það eru líka erfiðleikar hjá dvalar- og hjúkrunarheimilunum að því leytinu til að fólk eldist og hafi dvalarheimilin áður verið rekin fyrir hressari einstaklinga eldast þeir jú. Þeim fjölgar því stöðugt sem eru orðnir of lasburða til að vera í dvalarheimilisþjónustu og dvalarheimilisstofnanir annast þunga hjúkrunarsjúklinga. Nokkuð treglega hefur gengið að fá viðurkenningu á fjölgun hjúkrunarplássa, þ.e. að breyta dvalarheimilisrýmum yfir í hjúkrunarpláss og í rauninni viðurkenna þann vanda sem slíkar stofnanir eiga við að glíma. Ég tel að í fjárlögunum eigi að viðurkenna þennan vanda. Það er stefna ríkisstjórnarinnar að fjölga hjúkrunarplássum, það er stefna okkar allra sem höfum fylgst með þróun mála. Í niðurstöðu nýútkominnar skýrslu um úttekt á dvalar- og hjúkrunarheimilum kemur fram að fleiri hjúkrunarpláss vantar og ég tel að við eigum að fjölga hjúkrunarrýmum, hjúkrunarplássum meira en gert er í tillögum ríkisstjórnar og fjárlaganefndar. Við erum því með tillögu um að bæta þar í.
Einnig er ósamræmi á milli stofnana á föstum fjárlögum og þeirra sem eru á daggjöldum, þar munar 10–30% á milli stofnana í lægri framlögum til stofnana á daggjöldum. Þetta ber að fara vel yfir og ég hvet hæstv. heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra til að skoða það vel og finna réttlátari grunn og reglur til að greiða eftir.
Eins verður að skoða vel, hæstv. forseti, hvernig dvalar- og hjúkrunarheimili standa varðandi áfallnar lífeyrisgreiðslur. Greiðslubyrðin er orðin mjög þung fyrir mörg heimili og verður það áfram. Ég tel því nauðsynlegt að sú staða verði skoðuð með tilliti til þess að vinna þarf að því að gera samninga við dvalar- og hjúkrunarheimilin. Rétt eins og gerður var samningur við Sóltún þarf að vinna samninga við aðrar stofnanir þannig að þær hafi fastari grunn, að vitað sé hvaða þjónustu þær eiga að veita og fái greitt samkvæmt hjúkrunarþyngd eða RAI-mati. Ég hvet hæstv. heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra til að vinda sér í þetta þannig að þessi heimili þurfi ekki að búa svo þröngt í nánustu framtíð sem þau gera í dag.
Hvað varðar heilbrigðisstofnanir, hæstv. forseti, vil ég nefna Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Það er heilbrigðisstofnun sem er háskóla- og hátæknisjúkrahús okkar á landsbyggðinni. Það er mótvægið við Landspítalann, stofnun sem hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum og hefur mikla möguleika til að gera það enn frekar ef hún fær frekari fjárveitingar og möguleika á að byggja upp þjónustu sína. Það er ljóst að eftirspurnin er mikil, sérstaklega á ákveðnum sviðum, t.d. hvað varðar krabbameinslækningar og krabbameinsmeðferð. Eftir að Fjórðungssjúkrahúsið var mannað þannig að hægt væri að taka á móti krabbameinssjúklingum hefur sú starfsemi eflst mjög. Nú er svo komið að til að standa undir því álagi sem er á stofnuninni þyrfti að fjölga þar um einn krabbameinslækni. Þá væri hægt að mynda teymi fyrir krabbameinssjúklinga sem mundi bæta þjónustuna mjög og draga úr álagi á deildina fyrir sunnan.
Auk þessa er mögulegt að koma upp hjartaþræðingastofu og sinna hjartaþræðingum fyrir norðan. Þeir 200–300 sjúklingar sem sækja þá þjónustu á höfuðborgarsvæðið þyrftu því ekki að leita til borgarinnar. Það mundi sömuleiðis létta álagið á Landspítalanum fyrir utan að vera þægilegra fyrir sjúklingana.
Einnig er mikill áhugi og þörf fyrir að koma á líknardeild. Menn hafa safnað fjármunum til að koma henni í gang en þá þarf að tryggja rekstur deildarinnar. Þörfin á líknardeild vex að sjálfsögðu með aukinni þjónustu í krabbameinslækningum. Þegar fólk getur fengið meðferð í heimabyggð, þ.e. fyrir norðan, þá mun fólk vilja fá lokameðferð, þjónustuna undir lok lífsins, á sama stað.
Tækninni fleygir fram, sem er af hinu góða. Nú hafa verið teknar upp stafrænar framkallanir á röntgenmyndum. Til að það nýtist vel þarf að koma upp geymslu fyrir stafræna myndgreiningu og tengingu á milli sjúkrahúsanna svo hægt sé að nýta tæknina vel. Röntgenmyndirnar í núverandi mynd leggjast þá af og þarf ekki að senda þær á milli. Það sparar einnig sjúklingum heilmikil ferðalög, erfiði og kostnað. En það þarf að tengja á milli sjúkrahúsa Vesturlands, Vestfjarða, Akureyrar og Austurlands til að ná góðri hagkvæmni úr hinni nýju tækni, þ.e. að hægt sé að taka myndir á einum stað en lesa úr þeim á öðrum og koma upp myndvörslukerfi.
Frú forseti. Í sambandi við nýja tækni hvet ég fjárlaganefnd og hæstv. heilbrigðisráðherra til að fylgjast vel með og taka þátt í nýrri tækni við brjóstamyndatökur sem notaðar eru við kembileit að krabbameini í brjóstum kvenna. Sú tækni er miklu öruggari en röntgenmyndirnar, eins og þær eru notaðar í dag. Menn eru að safna fyrir slíku tæki eins og er en það er nokkuð dýrt þannig að ég hvet fjárlaganefnd og alla þá sem geta komið að málinu, sérstaklega hæstv. ráðherra, að fylgjast vel með og taka vel í það ef beiðni kemur, sem ég trúi, frá Krabbameinsfélagi Íslands um að stuðla að kaupum á slíku tæki. Það mundi skipta konur þessa lands miklu máli að vita að þær gætu gengið að öruggari greiningu en þær geta í dag.
Ég vil einnig minnast á Heilbrigðisstofnun Austurlands sem fær á fjárlögum aukið framlag sem nemur einu stöðugildi læknis. Það ber að þakka og eins framlag til uppbyggingar, tæplega 100 millj. kr., sem er mjög þarft. Ég þekki vel til stofnunarinnar og veit að húsnæðið er löngu sprungið utan af starfseminni, þá sérstaklega á Egilsstöðum. Huga þarf vel að áframhaldandi framlögum til aukinnar þjónustu vegna þeirra umsvifa sem nú eru í gangi og eins að horfa til fólksfjölgunar á svæðinu. Það þarf að fylgjast grannt með þessari stofnun upp á að hlúa að henni áfram.
Sama má segja um St. Franciskusspítalann sem við leggjum til að fái á fjárlögum 15 millj. kr., að það er stofnun rétt við radíus höfuðborgarsvæðisins sem sérhæfir sig í ákveðinni meðferð á bakveikum og þeim sem eru með veikt stoðkerfi. Þessi stofnun hefur mikla möguleika á að auka þjónustu sína og þar af leiðandi að létta á heilbrigðisstofnunum á höfuðborgarsvæðinu, sem eru undir miklu álagi.
Sama má segja um sjúkrahúsið á Suðurnesjum, sem þarf ekki háa fjárupphæð til að geta sinnt bráðatilfellum og fæðingarhjálp og tekið að sér meiri þjónustu en það gerir í dag. Ég tel að í mörgum tilfellum sé þetta ekki spurning um háar fjárhæðir heldur að hlúa að þeim stofnunum sem við höfum og gera þeim og því fólki sem þar vinnur kleift að nýta krafta sína og sérþekkingu og þjóna betur sínu svæði. Það á t.d. við sjúkrahúsið á Suðurnesjum.
Hvað varðar stofnunina sem hér hefur nokkrum sinnum verið nefnd í ræðum í dag, þ.e. barna- og unglingageðdeildina, þá þjónar hún öllu landinu. Þar hafa verið miklir erfiðleikar. Sú starfsemi þarf verulegt fjármagn og athygli til að geta sinnt börnum og unglingum með geðraskanir. Það er svartur blettur á heilbrigðisþjónustu okkar að biðlistar, og það oft langir, séu eftir því að komast með börn í greiningu og meðferð á þessa stofnun. Það eigum við ekki að líða og láta viðgangast í ríku þjóðfélagi eins og okkar. Hér liggur fyrir breytingartillaga um framlag til stofnunarinnar þannig að hægt verði að ráða fleiri starfsmenn, vinna á þeim biðlistum sem þar eru og sinna betur börnum og unglingum sem þangað leita.
Hæstv. forseti. Nokkur umræða hefur verið um háskólana, framhaldsskóla, sí- og endurmenntunarstöðvar og þeirra stöðu. Þetta eru stofnanir sem margar eiga í rekstrarerfiðleikum, hvort sem það er Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands eða sí- og endurmenntunarstöðvar, sem eru svo mikilvægar fyrir landsbyggðina og til þess að efla menntun á viðkomandi svæði. Það hefur sýnt sig að mikill munur er á fjölda háskólamenntaðs fólks eftir því hvort það býr á höfuðborgarsvæðinu eða úti á landi. Það hallar mjög á landsbyggðina og því ber okkur að leggja áherslu á að efla þar menntun. Með þeim hætti getum við eflt atvinnulífið og búsetu. Ég tel nauðsynlegt að samþykkja aukin framlög til sí- og endurmenntunarstöðvanna til að ráða bót á fjárhagsvanda þeirra og til að efla starfsemi þeirra.
Háskólinn á Akureyri er eins og fjórðungssjúkrahúsið stóriðja fjórðungsins. Það þarf sannarlega aukið fjármagn til háskólans til þess að anna eftirspurn nemenda og til að efla rannsóknir. Auknar rannsóknir skila sér víða út í fjórðunginn og út fyrir svæðið í afleiddum störfum. Auk þess er það til þess að mæta auknum rekstrarkostnaði vegna húsnæðis sem skólinn hefur orðið að taka á leigu. Bjarg, húsnæðið undir rannsóknarstarfsemina, er trúlega versta dæmi um einkarekstur og dæmalausa vitleysu og dæmalausasta samning sem gerður hefur verið um nýtingu opinberrar stofnunar á húsnæði sem er reist í einkaframkvæmd. Háskólinn og aðrar stofnanir á Akureyri sitja uppi með að borga um 100 milljónir króna á ári umfram það sem þær borguðu í leigu á því húsnæði sem þær voru áður í.
Hæstv. forseti. Ég vil nefna eina stofnun til viðbótar sem er líka úti á landi, þ.e. þekkingarsetrin. Þekkingarsetur Þingeyinga sem sækir um styrk. Það á í miklum fjárhagserfiðleikum núna og rekstrarerfiðleikum ef ekki verður brugðist við. Það er mjög mikilvægt að tryggja rekstur Þekkingarseturs Þingeyjarsýslu til þess að það geti fótað sig áfram og ekki sé óvissa með reksturinn. Svo vil ég nefna þekkingarsetur sem núna er kallað Þekkingarnet, áður Fræðslunet Austurlands. Nú er komið nýtt skipulag og stofnunin er komin í nýtt húsnæði. Heimamenn sjá mikla möguleika til þess að efla almenna menntun og háskólanám með rekstri þessarar stofnunar eins og hún er byggð upp í dag. Ég get þó ekki með nokkru móti fundið í fjárlagafrumvarpinu eða breytingartillögunum fjármagn sem er ætlað í þennan viðbótarrekstur.
Hugsanlega er þetta einhvers staðar í fjárlagafrumvarpinu. En ég tek undir orð þeirra sem hér hafa lýst því hversu erfitt er að lesa fjárlagafrumvarpið í þessari nýju uppsetningu. Þetta virðist flæða fram og til baka. Ég verð að viðurkenna það, hæstv. forseti, að ég hef ekki fundið framlög til þessarar nýju stofnunar og aukins reksturs hennar eins og frumvarpið er lagt fram. Ég leita því eftir aðstoð fjárlaganefndar við að skoða þetta mál og ráða þá bót á því ef engin aukning er til rekstursins eftir að því var breytt úr Fræðsluneti Austurlands í Þekkingarnet Austurlands.
Hæstv. forseti. Ég hef nokkrar áhyggjur af Tilraunastofu Háskóla Íslands á Keldum. Ég finn þó í fjárlagafrumvarpinu framlag til stofnunarinnar upp á um 5 millj. kr. á næsta ári. Það er mikil þörf á því að koma upp öryggisrannsóknarstofu samkvæmt P-3 staðli og er kostnaður við að koma upp slíkri rannsóknarstofu áætlaður um 130 milljónir. Ég tel að 5 millj. kr. séu þá eingöngu til undirbúnings byggingar eða reksturs slíkrar rannsóknarstofu. Við megum búast við því að hingað komi næsta vor farfuglar hugsanlega smitaðir af fuglaflensu. Alla vega eru miklar líkur á því að við þurfum að geta rannsakað hvort fuglar séu sýktir eða ekki. En þá er ekki til nein stofa til að ráðast í slíkar rannsóknir. Ég hvet til að allt verði gert til þess að fullbúin öryggisrannsóknarstofa verði risin hér næsta vor og það þarf meira en þessar 5 milljónir til þess að byggja slíka rannsóknarstofu eða koma henni á legg.
Hæstv. forseti. Ég ætla að nefna nokkur atriði til viðbótar, t.d. það sem snýr að landbúnaðarráðuneytinu og grisjun þjóðskóganna. Umhirða þjóðskóganna tel ég að sé okkur til vansa. Við þurfum að stórefla stígagerð og móttöku ferðamanna í þjóðskógunum. Allt kostar þetta bæði mannafla og fjármagn, þ.e. til að gera skógana aðgengilega og að umhirða þeirra sé okkur til sóma. Þetta er áætlun sem ég tel að við þurfum að setja í gang og veita rausnarleg fjárframlög til því að þetta mun hafa áhrif. Það skapast ekki bara atvinna við þetta heldur munu skógarnir verða aðdráttarafl fyrir ferðamenn, íslenska og erlenda, og styrkja ferðaþjónustuna á hverjum stað.
Eins vil ég nefna landshlutabundnu skógræktarverkefnin. Enn og aftur er verið að leggja fjármagn í þau án þess að farið sé eftir þeim tillögum um upphæðir sem voru samþykktar í þingsályktunartillögunni og vil ég enn og aftur nefna það.
Hv. þm. Anna Kristín Gunnarsdóttir ræddi rétt áðan um mikilvægi þess að treysta byggð í landinu. Ég tek undir það. Hún nefndi Byggðastofnun og að verið sé að vinna að nýrri byggðaáætlun. Ég tel að í þeirri byggðaáætlun ætti að vera sérstakur kafli um nýtingu og vinnslu skógarafurða því finna þarf bæði farveg fyrir og stuðning við að því verði komið á, þ.e. að við förum að sinna nýtingu og vinnslu skógarafurða. Brátt kemur að mikilli grisjun nytjaskóganna og ef við förum út í grisjun þjóðskóganna þá fellur til efni þar líka. Það er í raun til vansa hvað við erum stutt komin í að undirbúa það og nýta okkur þær afurðir sem falla til. Þetta eru verðmæti og við getum unnið mikið úr þessum verðmætum og gert þau enn verðmætari.
Hæstv. forseti. Ég vil líka nefna mál sem snýr að samgönguráðuneytinu. Það er Egilsstaðaflugvöllur. Samkvæmt samgönguáætlun er viðbygging við flugstöðvarhúsið ekki á dagskrá. En svo er komið að flugvallarbyggingin, móttakan, afgreiðslan, er svo gjörsamlega sprungin að varla er hægt að sinna innanlandsfluginu, sérstaklega yfir sumartímann þegar þotur í millilandaflugi lenda þar með 150–200 manns. Það er algjörlega óviðunandi hvernig tekið er á móti ferðamönnum, þ.e. þjónustan, hvað þá þegar saman fer innanlandsflugið og millilandaflugið. Þessa framkvæmd tel ég að þurfi að skoða og víkja þá út af samgönguáætluninni og flugmálaáætluninni og eyrnamerkja pening í að undirbúa stækkunina og helst að byrja strax á þessu ári því að þetta hefði þurft að vera komið þegar í gagn. Eins þarf að leggja þar bílaplön. Það mundi nú ekki setja okkur á hausinn en skiptir afgreiðsluna og aðkomu ferðamanna mjög miklu máli.
Hvað varðar utanríkismál vil ég bara nefna eitt sem ég hefði viljað sjá hér í tillögum. Ég sakna þess að við skulum ekki vera nógu framsýn og meðvituð um stöðu fólks í Palestínu að hafa í afgreiðslu fjárlaga framlag til færanlegrar sjúkrastöðvar eins og lagt hefur verið til núna í tvígang með þingsályktunartillögu um að Ísland leggi sitt lóð á vogarskálar friðar og uppbyggingar í Palestínu með því að styrkja eða reka færanlega sjúkrastöð þar.
Hæstv. forseti. Þetta vildi ég nefna. Sumt hefur komið hér fram áður og svo voru nokkur atriði þar fyrir utan sem ég saknaði í fjárlagagerðinni og svo vildi ég skýra aðeins betur hvers vegna breytingartillögur eru fram komnar.