Fjárlög 2006.
Frú forseti. Í ræðu minni fór ég yfir pólitíska sviðið. Ég talaði fram í tímann, ég talaði um niðurskurð og sparnað í ríkisrekstri og ég talaði um hagkvæmni í ríkisrekstri. Ég fór yfir tillögur Viðskiptaráðs Íslands í þeim efnum, hvort sem þær eru að skapi hv. þm. Helga Hjörvars eða ekki. Ég tel það skyldu okkar að leita leiða og hlusta á félagasamtök í þjóðfélaginu, rétt eins og stjórnmálaflokkur hv. þingmanns hlustar iðulega á Alþýðusamband Íslands.
Hvað varðar spurningu hv. þingmanns vil ég segja: Auðvitað tel ég að koma eigi vel fram við öryrkja og aldraða í þessu landi. Það kom fram í ræðu minni rétt áðan að ég teldi brýnasta verkefni ríkisstjórnarinnar í dag að bretta upp ermar og koma til móts við þarfir eldri borgara í þessu landi, brýnasta verkefnið. Ég fer ekkert ofan af þeirri skoðun hvort sem ég er í Sjálfstæðisflokknum eða öðrum flokki. (Gripið fram í.) Þetta er allra brýnasta verkefnið sem bíður ríkisstjórnarinnar í dag, að taka tillit til umræðunnar og taka á vanda sem sannarlega er til staðar. En auðvitað þurfum við að halda uppi ákveðnum tekjum, auðvitað þurfum við að búa til ákveðið umhverfi þannig að við getum stutt það velferðarsamfélag sem við viljum hafa í okkar ríka landi. En ég vil á móti spyrja hv. þingmann: Hverjar eru sparnaðarleiðir Samfylkingarinnar í ríkisbúskapnum eins og hann lítur út í dag? Ég hef ekki heyrt af þeim enn sem komið er.