Fjárlög 2006.
Frú forseti. Frumvarp til fjárlaga kemur nú til atkvæðagreiðslu eftir 2. umr. Þetta frumvarp er unnið á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og meiri hluta hennar. Stór hluti og meginhluti þeirra tillagna sem liggja hér fyrir á gjaldahliðinni hafa komið í formi tilskipana frá ríkisstjórninni og eru á ábyrgð hennar.
Veikleiki þessa frumvarps er hins vegar sá að hér er áfram haldið á skattalækkunarbrautinni, þ.e. að lækka skatta á þeim sem hæstar hafa tekjurnar en færa hlutfallslega aukna skattbyrði á lægstu tekjur. Þetta er verulegur veikleiki og algerlega gegn stefnu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.
Hinn stóri veikleiki þessa frumvarps, sem birtist í miklum viðskiptahalla og háu raungengi, er það hversu stór hluti tekna er að verða bundinn þenslunni, skattar á viðskiptahallann, skattar á þensluna þannig að tekjugrunnur ríkissjóðs er að veikjast mjög. Og þó að nú sé hægt að gorta af miklum tekjum til ríkissjóðs þá er það skammgóður vermir því að sú aukning er til komin vegna þenslu og vegna viðskiptahalla sem við vildum ekki hafa. Við viljum hafa jöfnuð í efnahagslífinu.
Bankarnir tala um ógnarjafnvægi. Er það jafnvægi sem við viljum hafa? Nei.
Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefur flutt nokkrar breytingartillögur sem miða að því að undirstrika áherslur okkar í velferðarmálum, í menntamálum, í atvinnumálum og við munum styðja breytingartillögur frá ríkisstjórninni við frumvarpið sem okkur þykja vera til bóta. Við munum annars almennt sitja hjá og vísa ábyrgð á ríkisstjórnina og meiri hluta hennar á Alþingi varðandi afgreiðslu frumvarpsins en þeim greinum sem við erum alfarið á móti og teljum afar afleitar munum við náttúrlega mótmæla harðlega við atkvæðagreiðsluna. Við höfum flutt tillögur okkar um hvernig skuli mæta og styrkja tekjugrunn ríkissjóðs með því m.a. að láta fjármagnseigendur og arð á fjármagnsgreiðslur og hagnað greiða skatta til ríkisins með líkari hætti og gert er með launagreiðslum.
Frú forseti. Skýringar okkar og stefna mun koma fram í atkvæðagreiðslunni um þetta frumvarp.