Fjárlög 2006.
Virðulegi forseti. Ég sé að hér er glæsilegur hópur úr framhaldsskóla á þingpöllum að fylgjast með þingstörfum og að mér skildist í morgun er hann úr Verslunarskóla Íslands.
Þessi tillaga er m.a. um að jafna rétt allra landsmanna að sækja Verslunarskólann sem er í Reykjavík. Við jafnaðarmenn erum ósammála því að fólk úti á landi sem hefur ekki verslunarskóla eða framhaldsskóla í byggðarlagi sínu þurfi að borga allt að 500 þús. kr. að lágmarki til að senda unglinginn sinn í skóla. Í fjárlögum er upphæð til að ganga í átt að því að jafna þann kostnað, jafna þennan mismun, dreifa honum eða taka hann út. Hér erum við jafnaðarmenn að flytja tillögu um 130 millj. kr. í viðbót. Þó náum við ekki jöfnuði. Það er því ágætt dæmi um það hér á þingpöllum, að allir þeir nemendur sem þarna eru uppi sama hvort þeir eru úr Reykjavík, Raufarhöfn, Kópaskeri eða Kópavogi hafi jafnan rétt til að ganga til náms. (SKK: Þetta er í fyrsta skipti sem þið styðjið Verslunarskólann.)