132. löggjafarþing — 30. fundur,  25. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[10:56]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Hér kemur til atkvæða fyrri breytingartillagan af tveimur sem varða æfingar hæstv. ríkisstjórnar að þessu sinni í sambandi við málefni Mannréttindaskrifstofu Íslands. Það mál varð frægt að endemum á síðasta þingi og við afgreiðslu síðustu fjárlaga hvernig ríkisstjórnin stóð þar að verkum og stjórnarliðar í nauðvörn sinni reyndu að sannfæra menn um að ekki stæði til að raska á nokkurn hátt högum Mannréttindaskrifstofunnar heldur væri um kerfisbreytingu að ræða. Annað kom á daginn. Yfirlýsingar þingmanna, þar á meðal hv. formanns fjárlaganefndar, reyndust ekki pappírsins virði og ríkisstjórnin þjónaði lund sinni með því að kippa fótunum undan rekstri Mannréttindaskrifstofu Íslands á árinu sem nú er að líða.

Sami skollaleikurinn á að halda áfram. Nú á að vísu dómsmálaráðherra einn að hafa kaleikinn og þangað á Mannréttindaskrifstofan að koma og biðja auðmjúklegast um peninga frá ríkisstjórninni. Þessi afgreiðsla málsins er auðvitað ríkisstjórninni til háborinnar skammar og sérstaklega þeim ráðherrum sem með þessu hafa þjónað lund sinni og sýnt nútímaleg viðhorf til mannréttindamála, eða hitt þó heldur.