132. löggjafarþing — 30. fundur,  25. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[10:59]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Við erum stundum sökuð um það í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði að vilja bara eyða peningum en ekki afla þeirra eða spara þá en hér er þó slík tillaga á ferðum. Við teljum að það séu alveg fullkomlega ástæðulaus útgjöld í þessu fjárlagafrumvarpi hvað varðar það að Íslendingar séu að standa í hergagnaflutningum fyrir NATO á stríðssvæðum eða átakasvæðum í fjarlægum heimshlutum. Alþingi Íslendinga er algerlega óbundið af einhliða yfirlýsingum fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra og fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra á vettvangi NATO sem þeir gáfu án nokkurs samráðs við þingið. Þar af leiðandi er þinginu algerlega í sjálfsvald sett að draga þetta til baka. Þessa fjármuni má annaðhvort hreinlega spara eða nota í önnur og þarfari verkefni eins og reyndar var lagt til að hluta til hér áðan.

Við mælum eindregið með því að menn sýni ráðdeildarsemi, aðhald og skynsemi og lækki útgjöld ríkisins sem nemur þessum 50 millj. kr. sem á að bæta við þennan lið vegna aukins kostnaðar Íslendinga af hergagnaflutningum í fjarlægum heimsálfum.