132. löggjafarþing — 30. fundur,  25. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[11:06]
Hlusta

Valdimar L. Friðriksson (Sf):

Frú forseti. Samfylkingin og frjálslyndir leggja til aukið fjárframlag til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins vegna fjölgunar sem hefur orðið á tilvísun til hennar m.a. vegna aukinna tilvika á einhverfu. Biðlistar hafa lengst og voru 262 börn á biðlista í nóvember 2004 en eru 325 nú ári síðar. Skortur á fjármagni til Greiningarstöðvarinnar veldur því að fjöldi fatlaðra barna og aðstandenda fær ekki þá lögbundnu þjónustu sem þeim ber. Ég segi já.