Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Mér þykir mjög ánægjulegt að fá tækifæri til þess að koma inn á byggðamálin. Ég er ákaflega stolt af því hvað náðst hefur mikill (Gripið fram í: Atkvæðaskýring.) árangur í byggðamálum (Gripið fram í: Atkvæðaskýring.) síðan málaflokkurinn færðist til iðnaðarráðuneytisins. Staða mála á landsbyggðinni er betri núna þegar við lítum á heildina heldur en hún hefur verið ákaflega lengi. Þetta er vegna þess að við höfum verið með ákveðna stefnu sem hefur verið framkvæmd og við höfum náð árangri.
Hvað varðar þá lækkun sem er í frumvarpinu núna þá er hún vegna þess að við fengum sérstaka hækkun á fjáraukalögum þessa árs. Vegna þess að betra þótti að hafa þetta með þessum hætti þá féllst ég á það. En í raun erum við að hækka framlög til byggðamála til næstu ára. Byggðaáætlun kemur inn í þingið á næstu dögum. Hún hefur verið send út til umsagnar fjölda aðila og hefur fengið þar ákaflega góðar viðtökur.