132. löggjafarþing — 30. fundur,  25. nóv. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[11:57]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg):

Frú forseti. Hann er undarlegur sá siður ríkisstjórnarinnar að setja ákvarðanir af þessu tagi inn í fjárlög. Það er alveg hárrétt að það eiga að koma efnisleg frumvörp fyrir alþingismenn til að ræða en það á ekki að fara að eins og hér er gert, að heimila Rafmagnsveitum ríkisins að stofna hlutafélög um öflun og sölu raforku í fjárlagafrumvarpinu. Hvaða rugl er hér á ferðinni? Fólk verður að taka hlutina á þeim nótum sem formlega hefur verið gert og eðlilegt er að gera.

Frú forseti. Eru ekki allir í þessum sal gasalega glaðir eftir að bæklingurinn kom inn á heimili þeirra? Hrópuðu ekki allir: Jibbí, nú get ég valið hvort ég kaupi raforkuna mína af Rarik eða Orkubúi Vestfjarða? (Gripið fram í: Jú, jú.) Eru ekki allir gasalega glaðir? Og trúa því ekki allir að hæstv. iðnaðarráðherra sé með þessu að lækka raforkuverðið? Ó nei, auðvitað trúir því enginn, enda hefur annað komið á daginn. Það er fáránlegt að hafa svona ákvæði í fjárlagafrumvarpinu. Ég segi nei.