Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Nú er komið að lokum atkvæðagreiðslunnar og þarf að vísa frumvarpinu til 3. umr. Við 1. umr. var sérstaklega gagnrýnt að aðhaldið skorti og afgangurinn var ekki nægur. Samfylkingin boðaði miklar tillögur í þeim efnum sem enduðu í táknrænum tillögum. Vinstri grænir hafa lagt fram þenslutillögur. Tillögur Samfylkingarinnar eru táknrænar á þann hátt að þau vilja auka útgjöld ýmiss konar en draga úr vegaframkvæmdum, menningarhúsum á landsbyggðinni og þróunaraðstoð. (JBjarn: Er þetta atkvæðaskýring?)
Hæstv. forseti. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er á þann veg að aðhald hefur verið aukið og afgangur á fjárlögum samkvæmt frumvarpinu, eins og það stendur núna, er nálægt 2% af landsframleiðslu. Þetta er mikilvægt innlegg til hagstjórnar og hagþróunar næstu mánuði og næsta ár. Ég legg því til að málinu verður vísað til 3. umr. (JBjarn: Forseti er búinn að því.)