132. löggjafarþing — 32. fundur,  29. nóv. 2005.

Fjáraukalög 2005.

144. mál
[15:28]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég var ekki neitt að gera lítið úr því að þessir fjármunir rynnu inn í lífeyrissjóðinn. Ég var einfaldlega að velta fyrir mér hver staða sjóðsins yrði eftir það og hvort bændur ættu von á lagfæringu. Ég þóttist vita miðað við það sem ég hafði lesið mér til um Lífeyrissjóð bænda að staða hans væri ekki sterk en hafði hins vegar ekki tölur um það hversu mikið þyrfti að koma þar inn af fjármunum til þess að staðan væri orðin plúsmegin. En mér heyrist á svarinu að þær 400 milljónir sem hugsanlega verða plúsmegin í þessu dæmi miðað við upplýsingar hæstv. ráðherra muni varla duga til þess að auka útgreiðsluna en þær muni, eins og ráðherra sagði, vafalaust tryggja það um einhver ár að ekki verði um frekari skerðingar að ræða enda mætti sjóðurinn varla við því miðað við þær lágu meðalgreiðslur sem bændastéttin á rétt á samkvæmt núverandi upplýsingum.