Útbýting þingskjala.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þær upplýsingar sem komu fram hjá hæstv. forseta, að þingsköp kvæðu á um að fjárlagafrumvarp skyldi fara inn til fjárlaganefndar milli 2. og 3. umr., fá þar efnislega umfjöllun og að þar kæmu á dagskrá þau mál sem nefndarmenn teldu nauðsynlegt að væru rædd milli 2. og 3. umr., enda koma gögn til nefndarinnar á milli 2. og 3. umr., gögn sem meira að segja nefndin hefur beðið um til að hafa til stuðnings við yfirferð og frágang fjárlaga. Ég fagna því, frú forseti, og veit að þessum skilaboðum verður komið á framfæri.
Hitt vil ég svo taka undir með hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni og Sigurjóni Þórðarsyni varðandi það hvernig einkavæðingarmál ríkisstjórnarinnar koma núna inn hvert af öðru. Það er ekki aðeins það að boðuð sé hlutafélagavæðing á almannaþjónustu í fyrirtækjum. Líka eru boðuð lög um hlutafélög í eigu ríkisins. Væri ekki rétt röð að taka þá umræðu fyrst ef nauðsynlegt er að breyta almannafyrirtækjum í hlutafélög, ef það sýnist svo og ríkisstjórnin er með á prjónunum frumvarp þess efnis? Eigum við ekki að taka þá umræðu áður en genginn verður þessi einkavæðingarvegur? Ég man ekki betur en að hæstv. forsætisráðherra segði eftir einkavæðingu og sölu Símans að nú yrði hlé á einkavæðingunni og að hann sæi ekki fyrir sér stórfellda einkavæðingu á næstunni. Þeim orðum er ekki fyrr sleppt en allt er sett á fullt, einkavæðing á vatninu, einkavæðing á Rarik, einkavæðing á Ríkisútvarpinu.
Frú forseti. Eigum við ekki að taka (Forseti hringir.) prinsippumræðu um þessi mál áður en hvert frumvarpið á fætur öðru er keyrt með þessum hætti inn í þingið?