Vaxtaákvörðun Seðlabankans.
Frú forseti. Hv. þingmaður verður að fá að hafa þá skoðun að ég hafi talað af ábyrgðarleysi. Ég tel það af og frá. Ég tel eðlilegt að ég hafi mína skoðun á efnahagsmálum og ég vænti þess að hv. þingmaður fagni því að gengisvísitalan hefur heldur hreyfst til. Ég veit ekki betur en að hv. þingmaður hafi komið upp á Alþingi í vetur skipti eftir skipti, haft miklar áhyggjur af efnahagsmálum og spurt ríkisstjórnina skipti eftir skipti hvað hún ætli að gera í þeim málum.
Nú kemur hv. þingmaður upp og segir að þetta sé alveg skelfilegt. Hvaða afstöðu hefur hann sjálfur og hvaða skoðun hefur hann sjálfur á ákvörðunum Seðlabankans? Telur hann ákvörðun Seðlabankans góða og telur hann ástandið núna vera orðið ásættanlegt? Hann hefur hingað til í vetur talað eins og að við stöndum frammi fyrir mjög alvarlegum hlutum og að efnahagsmál okkar séu í hinu versta ástandi. Við höfum verið ósammála um það. (Forseti hringir.) Það verður fróðlegt að vita hvað hann telur núna.