Stefna stjórnvalda í alþjóðasamstarfi gegn vá af völdum loftslagsbreytinga.
Frú forseti. Hæstv. umhverfisráðherra er á leiðinni til Montreal í Kanada. Þar mun hæstv. umhverfisráðherra þurfa að útlista stefnu íslensku ríkisstjórnarinnar í málefnum Kyoto-bókunarinnar. Eitt af því sem hæstv. umhverfisráðherra þarf að svara í Montreal er spurningin um framhaldið, hvað taki við að loknu fyrsta skuldbindingartímabili bókunarinnar.
Mér hefði fundist afar forvitnilegt að fá að heyra frá hæstv. ráðherra hvort það eigi að fara fram með áframhaldandi framlengingu á stóriðjuákvæðinu umdeilda. Ætlar hæstv. ráðherra að fara þarna fram með ósk um að stóriðja á Íslandi fái áframhaldandi undanþágu frá losunarbókhaldi og losunarsamningum?
Eins og allir vita þurfa stjórnvöld að vera trúverðug gagnvart Kyoto-bókuninni. Bókunin er eini möguleikinn sem við eigum á því að bregðast við loftslagsbreytingum og berjast gegn þeim. Málflutningur hæstv. ríkisstjórnar verður að taka mið af því.
Þetta viðurkenna stjórnvöld langflestra ríkja veraldarinnar. Bandaríkin eru það ríki sem berst harðast gegn aðgerðum á borð við þær sem Kyoto-bókunin mælir fyrir um. Í fyrstu barðist Bush-stjórnin gegn því að bókunin yrði að veruleika. Hún reyndi allt sem hún gat til að kæfa hana í fæðingu og núna þegar bókunin er gengin í gildi gerir Bush-stjórnin sitt ýtrasta til að kæfa hana í vöggunni, eins og komist var að orði í einu fréttabréfinu frá ráðstefnunni sem nú stendur yfir. Íslensk stjórnvöld hafa ævinlega verið tvístígandi í afstöðu sinni til bókunarinnar enda rúmaðist stóriðjustefna þeirra ekki innan ákvæða bókunarinnar. Ástæðan fyrir því að þau fullgiltu hana yfir höfuð var eingöngu sú að hægt var að knýja fram undanþáguákvæðið fræga sem undanskilur losun frá stóriðjulosunarbókhaldinu á fyrsta skuldbindingartímabilinu.
Kyoto-bókunin er bara lítið skref í áttina. Samkvæmt niðurstöðum færustu vísindamanna þyrfti að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 60% á næstu 50 árum en Kyoto-bókunin hljóðar bara upp á skuldbindandi samdrátt upp á 5,2% hjá þeim þjóðum sem losa mest. Hæstv. umhverfisráðherra verður að fara til Montreal með trúverðugan (Forseti hringir.) málflutning.