Stofnun íslenskra fræða -- Árnastofnun.
Forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að taka undir með síðasta hv. þingmanni um fyrirkomulag Íslenskrar málstöðvar inni í þessari nýju stofnun og Íslenskrar málnefndar. Í mínum huga gengur það ekki upp að afnema lögin sérstöku um Íslenska málnefnd. Meðferðin sem Íslensk málnefnd og Íslensk málstöð fá í þessu frumvarpi þykja mér vera í raun og veru fingurbrjótur í frumvarpinu. Hættan er auðvitað sú að starfi því sem farið hefur fram í Íslenskri málnefnd og skrifstofu hennar, málstöðinni, sé settur þrengri rammi, úr því sé dregið og jafnframt verði þá með einhverjum hætti dregið úr því starfi sem fer fram í kringum sjálfa hina íslensku tungu.
Það er hins vegar lofsvert að í reglunum um málnefndina, og því ætti auðvitað að koma inn í þau lög sem nú gilda um málnefndina, að henni sé falið að semja íslenskar ritreglur og stoðum þar með skotið undir stafsetningarreglurnar sem menntamálaráðuneytið hefur gefið út án lagastoðar allt frá, að ég hygg, 1918, eða 1917. Mér þykir líka jákvætt að þarna er nefnt að málnefndin eigi að álykta árlega um stöðu íslenskrar tungu.
Annað er óljóst í þessu frumvarpi um Íslenska málnefnd, og þó einna helst það af hverju lög um hana eiga að vera inni í lögum um rannsóknastofnun á sviði íslenskra fræða vegna þess að þetta tvennt er ólíkt þó að það sé auðvitað skylt í gegnum tungumálið. Staða Íslenskrar málnefndar er í raun og veru staða stjórnvalds eins og nú er í lögum og þess vegna er það undarlegt að hún sé sett inn í allt önnur lög um allt aðra hluti, en ég skal ekkert segja um það — það þarf að athuga betur. Ég er út af fyrir sig ekkert andstæður þeirri hugmynd að Íslensk málstöð sé sem slík færð inn í hina nýju stofnun af því að Íslensk málstöð er skrifstofa þessarar nefndar en Íslensk málnefnd verður hins vegar að vera sjálfstætt afl. Það verður að hafa sérstakar fjárveitingar sem það fær ekki samkvæmt frumvarpinu. Nefndin verður að geta samið við þá stofnun sem sér henni fyrir skrifstofustörfum og þjónustu um hvað þar á að vera inni. Ég vara líka við því að taka undan Íslenskri málnefnd eins og hér er gert ýmis hlutverk sem henni eru nú falin í lögum, m.a. að vera í beinu sambandi við opinberar stofnanir og almenning um leiðbeiningar um málfarsleg efni á fræðilegum grundvelli, eins og það heitir, og hins vegar að málnefndin eigi að sjá um samstarf við ýmsa faghópa um íðorð og aðra slíka vinnu. Ég hef ekki lengri tíma til að fara í gegnum þetta en gæti haldið um það töluvert lengri ræðu og kann að þurfa það í 2. umr. ef ekki verður ráðin bót á þessu máli.
Ég vil líka taka undir orð hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur um innra skipulag. Það kemur ekkert fram um hvernig þetta innra skipulag á að vera, það er sem sé falið forstöðumanni, ekki einu sinni stjórn, heldur forstöðumanni einum. Auðvitað væri eðlilegt að með einhverjum hætti væri fjallað, þó ekki væri nema á leiðbeinandi hátt, um það hvernig þetta skipulag á að vera þegar út í jafnviðkvæma sameiningu er farið og hér er um að ræða og ég vitna hér til orða hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur um það mál.
Um stjórnskipulagið verð ég að fara nokkrum orðum. Þá vil ég segja strax, til að það komist að, að í þessu frumvarpi er tekin burt sú hefð sem hefur ríkt á þessum stofnunum, a.m.k. þeim tveimur þeirra sem aðalstofnanirnar teljast, og byggist á miklu samráði sérfræðinganna, fræðimannanna, um hinn fræðilega þátt starfsins. Á Orðabók Háskólans eru að sönnu engin lög og reglur um þetta samráð en hefðin hefur skapað þetta allt frá stríðslokum þar sem í upphafi unnu fáir menn og komu sér saman, þeir og stjórn stofnunarinnar. Sú hefð hefur svo haldið áfram yfir í þá nokkru fleiri sem nú vinna þar. Í Árnastofnun eru hins vegar ósköp einfaldlega lagafyrirmæli um að forstöðumaðurinn eigi að annast reksturinn frá degi til dags, en fræðilega stjórn stofnunarinnar á hann að hafa í samráði við starfsmenn, fræðilega starfsmenn, samkvæmt nánari fyrirmælum í reglugerð. Í reglugerðinni sem Vilhjálmur Hjálmarsson, sá ágæti öðlingur, setti að ég hygg árið 1978, ég þori ekki að fara með það, gengur þetta samráð undir nafninu húsþing og hefur nú verið til í þrjá áratugi á Stofnun Árna Magnússonar og gefist mjög vel. Húsþingið annast hina fræðilegu stjórnun ásamt forstöðumanni, bæði hvaða útgáfuverk á að taka fyrir og hvaða áherslur á að setja í rannsóknastarfinu. Húsþingin hafa líka gegnt því hlutverki sem deildarráð gegnir í venjulegum háskóla, t.d. umsögn um hverja á að ráða þegar það ferli stendur yfir o.s.frv. Ég vona að það sé handvömm hjá menntamálaráðherra að fyrirskipa ekki um þetta mál og tel að það sé eitt af því allra mikilvægasta sem við fjöllum um í menntamálanefnd að koma hinu akademíska frelsi þarna inn og gera þessa stofnun að raunverulegri háskólastofnun vegna þess að það gerist þannig.
Ég verð svo að segja í framhaldi af þessu um stjórnina að þarna virðist hafa verið slegið saman tvenns konar stjórnum. Það kann að liggja í sögu frumvarpsins með einhverjum hætti eða undirbúningi. Annars vegar er stjórn sem stjórnar, mótar stefnu, tekur ákvarðanir og forstöðumaðurinn er framkvæmdastjórinn. Í slíkri stjórn er ráðherraskipaður formaður sem hefur bein tengsl við pólitíska valdið og á að framfylgja vilja ráðherra. Ef um venjulega ríkisstofnun er að ræða er eðlilegt að það sé þannig. En núna erum við með ráðgefandi stjórn. Í þessu frumvarpi erum við með ráðgefandi stjórn sem fyrst og fremst styður stjórnandann og hjálpar honum, en hún á líka að vera forstöðumanni til faglegrar ráðgjafar. Þá spyr maður: Hverjir eru þessir faglegu ráðgjafar? Þeir eru þessir þrír úr háskólanum sem valdir eru án þess að nokkrar kröfur séu gerðar til þeirra. Og síðan þeir tveir sem hæstv. menntamálaráðherra skipar hverju sinni og geta komið af allt öðru sviði. Andinn í frumvarpinu er auðvitað sá að þeir sem koma frá ráðherranum séu í raun og veru ekki beinlínis fræðimenn, vegna þess að áskilið er að þeir eigi ekki að koma frá Háskóla Íslands. Eiga þeir að veita faglega ráðgjöf? Hörður Sigurgestsson er formaður stjórnar Landsbókasafns – háskólabókasafns, hygg ég. Ég hef ekkert á móti því. Slíkur maður getur veitt landsbókaverði eða sérfræðingum og stjórnendum þar mikilvæga ráðgjöf hvað varðar rekstur, peningaútvegun og fleira en menn mundu reka upp stór augu ef Hörður Sigurgestsson væri fyrirskipaður faglegur ráðgjafi í Landsbókasafninu. Hér hefur slegið saman tveimur stjórnarlíkönum. Og vegna þess að ákvæðið úr Stofnun Árna Magnússonar um hina fræðilegu stjórnun ásamt starfsmönnunum vantar er stjórnskipulagið í raun og veru orðið hálfgert skrímsli. Það þarf að bæta. Ég lít á þetta, eins og ég segi, sem handvömm sem þarf að bæta úr og koma húsþingum úr Stofnun Árna Magnússonar fyrir í hinni nýju stofnun, sem er einnig í samræmi við þá hefð í stjórnun sem ríkt hefur á Orðabók Háskólans.
Ég á lítinn tíma eftir og ég ætlaði mér að fjalla aðeins um rannsóknarstöðurnar tvær. Ég ætla að vona að menntamálaráðherra og menn hennar geri sér grein fyrir að þetta er rannsóknastofnun þannig að þær verða fleiri en tvær sem kenndar eru við Árna Magnússon og Sigurð Nordal. Nú mætti hafa töluvert mál um það af hverju þessir tveir menn eiga endilega að speglast þarna í rannsóknarstöðum. En ég skal segja eins og er að menntamálaráðherra hæstv. er mín vegna heimilt að telja upp hvaða nöfn sem er eða búa til hvaða stöður sem er úr því að loksins er komið það tannfé sem ég og fleiri höfum kallað eftir með þessari stofnun, þ.e. að þessar tvær stöður bætist við á fjárlög á næsta ári.
Að lokum þetta: Málið er ekki nógu vel undirbúið, málið er ekki nógu vel hugsað. Samráð við forstöðumenn og fræðimenn hefur byggst á því, að mér heyrist ofan úr þessum hluta Vesturbæjarins, að menn segja: ja, menntamálaráðherra og stjórnvöld hafa ákveðið þetta og við skulum reyna að gera eins gott úr því og hægt er. En þó að þetta kunni að vera nægilegt fyrir fræðimenn er það ekki nægilegt fyrir okkur þingmenn. Við eigum í fyrsta lagi að veita fé og í öðru lagi að samþykkja sjálf það sem okkur finnst skynsamlegt í þessu. Þegar menn koma hér með plögg sem gera ráð fyrir miklum breytingum verða að fylgja þeim athuganir, rök, skýrslur og greinargerðir. Þannig er það, forseti, um þetta mál eins og önnur.