132. löggjafarþing — 34. fundur,  5. des. 2005.

Samráðsskylda stjórnvalda við samtök fatlaðra.

385. mál
[19:03]
Hlusta

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Sem einn af flutningsmönnum þingsályktunartillögunnar vil ég þakka hv. þm. Guðmundi Magnússyni fyrir að hafa frumkvæði að flutningi þessa máls. Ég tel að þetta sé eitt af þeim málum sem allir stjórnarflokkar geti sameinast um og unnið hratt og vel. Ég hvet til þess að allsherjarnefnd afgreiði málið og það verði eitt af þeim málum sem við getum sameinast um að afgreiða fyrir jól.

Lýðræði fyrir alla eru orðin tóm nema samráð sé haft við þá aðila sem málið fjallar um og þátttaka allra er mikilvæg fyrir hvert þjóðríki. Þátttaka í atvinnu og félagsstörfum og í þjóðfélagsumræðunni allri er mikilvæg og brýnt fyrir hvert þjóðríki að fá alla þar að borðum. Ég tel mikilvægt að við förum að temja okkur breytt vinnubrögð þar sem samráð verði grunnur að vinnu okkar. Samráð verði haft við fatlaða við reglugerðarbreytingar og þegar verið er að breyta og leggja grunn að lífeyrisgreiðslum og öðrum greiðslum sem snerta kjör og aðbúnað fatlaðra.

Ég vil eins og fleiri þakka Guðmundi Magnússyni fyrir störf hans þennan hálfa mánuð sem hann hefur verið á þingi. Hann hefur vakið okkur mörg hver til umhugsunar um störf og kjör fatlaðra og aðbúnað allan í þinghúsi. Ég þakka honum fyrir það.