Samræmd stúdentspróf – frumvarp um Ríkisútvarpið.
Hæstv. forseti. Sameiginlegt kynningarátak hæstv. menntamálaráðherra og útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins í sjónvarpinu í gærkvöldi um nýtt frumvarp þeirra um Ríkisútvarpið er óneitanlega mjög sérstakt. Alþingi Íslendinga er sýnd óvirðing með því að mjög mikilvægt og mjög umdeilt stjórnarfrumvarp skuli kynnt í fjölmiðlum án þess að Alþingi fái það fyrst í hendur.
Ekki nóg með þetta. Hæstv. menntamálaráðherra og útvarpsstjóri létu í veðri vaka að málið væri að fullu frágengið. Hæstv. forseti. Ég á enn eftir að sannfærast um að svo sé. Ég á enn eftir að trúa því að Framsóknarflokkurinn geti hlaupið þetta langt frá gefnum loforðum og fyrirheitum. Framsóknarflokkurinn hefur lofað kjósendum sínum, flokksmönnum sínum og Alþingi Íslendinga að Ríkisútvarpið yrði ekki hlutafélagavætt. Eru engin takmörk fyrir því hve mikið þessi stjórnmálaflokkur, Framsóknarflokkurinn, getur lyppast niður? (Gripið fram í: Nei.) Ég á enn eftir að sannfærast um það, við eigum eftir að leiða þessi mál til lykta og sannleikann í ljós þegar þetta mál verður tekið til umræðu á næsta ári.