Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Þá er komið að 3. umr. um fjárlög ársins 2006. Meiri hluti fjárlaganefndar Alþingis gerir ekki frekari breytingartillögur varðandi þetta frumvarp og leggur ekki fram framhaldsnefndarálit. Hins vegar legg ég fram breytingartillögu ásamt hv. þm. Einari Oddi Kristjánssyni til leiðréttingar á áður samþykktri tillögu sem kom fram við 2. umr. Það er leiðrétting á mistökum sem urðu við frágang skjala.
Ég legg áherslu á það í stuttri ræðu við 3. umr. að umfjöllun um fjárlagafrumvarpið gekk vel og störf nefndarinnar gengu mjög vel. Ég þakka öllum þeim sem tóku þátt í því starfi fyrir gott starf.
Það er hins vegar eitt mál, virðulegur forseti, sem ég vil aðeins tæpa á. Þegar fjallað er um fjárlagafrumvarpið á hverju hausti koma gjarnan upp mál sem menn eru sammála um að skoða þurfi rækilega. Þegar umræða hófst um frumvarpið á haustdögum kom hér upp umfjöllun um 6. gr. frumvarpsins, þ.e. heimildargreinina sem tengist samningum ríkisins um einkaframkvæmd varðandi uppbyggingu húsa og aðstöðu o.s.frv. Umræða þessi spratt hygg ég aðallega út af heimildarákvæði í frumvarpinu sem snertir uppbyggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík án þess að ég ætli að gera það í sjálfu sér að aðalefni þess sem ég ætla hér að segja, heldur er ég að tala um grundvallaratriði málsins. Við fjölluðum töluvert um þetta í fjárlaganefnd og í umræðum á Alþingi og óskuðum m.a. eftir og fengum álit frá Ríkisendurskoðun um málið og fjölluðum um það á fundum nefndarinnar í síðustu viku. Ég hygg að málið sé einfaldlega þannig að fjárlaganefnd muni fjalla nánar um það sérstaklega í tengslum við fjárreiðulög. Ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að skoða það mjög rækilega hvort gera þurfi breytingar á fjárreiðulögum í þessu skyni, þ.e. til að það sé alveg skýrt hvaða rammi það er sem menn þurfa að vinna eftir varðandi samninga um einkaframkvæmd við uppbyggingu húsnæðis. Ég hygg að það sé samstaða um þetta í nefndinni og við munum fara í þá vinnu eftir áramótin að fjalla nánar um þetta.
Ég held að það sé öllum til góðs og auðvitað eðlilegt að þessi mál séu klár og kvitt þannig að allt sé á hreinu um það hvernig með þau skuli fara. Ég vildi bara rétt nefna þetta, virðulegur forseti, af því að við erum að ljúka umræðu um fjárlagafrumvarpið og segja frá því að við munum, eins og ég sagði, fjalla betur um þetta mál síðar.