132. löggjafarþing — 35. fundur,  6. des. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[11:42]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég fagna þeirri yfirlýsingu sérstaklega sem kom að mínu mati í fyrsta sinn af vörum þingmanna stjórnarandstöðunnar þar sem þeir viðurkenna þó að verið er að auka fjárframlög til háskólastigsins. Ég held að ég hafi heyrt þetta nú í fyrsta sinn í þessum sal af vörum þingmanns úr stjórnarandstöðunni. Það er alveg ljóst að við erum að stórauka framlög okkar til háskólamála og til skólamála almennt. Það má alltaf gera betur, ég tek undir það, og það er alltaf hægt að fara út í þann pólitíska leik að toppa síðasta mótframlag. En það eru staðreyndir sem tala sínu máli og þær eru að við erum að auka mest allra OECD-þjóða framlög til háskólamála. Engin þjóð innan þessara ríkja sem við erum sífellt að bera okkur saman við eykur framlög sín til háskólamála jafnmikið og jafnhratt og við Íslendingar.

Hv. þingmaður tiltók töluna 1,14% af þjóðarframleiðslu til háskólamála en hver var aukningin þar á milli ára? Hún var 0,8% og fór í 1,14%. Þetta eru tölur frá 2002 og ég er sannfærð um, og hef tölur fyrir því, samantekt á því, að við erum komin upp fyrir meðaltal OECD-ríkja. Hv. þingmaður, sem fór að öðru leyti ágætlega yfir sviðið, var að tala um toppinn og þangað stefnum við Íslendingar rakleitt. Við munum ná toppnum varðandi framlög til háskólamála innan örfárra ára ef sami hraður verður á aukningu til þeirra eins og verið hefur að undanförnu. Hv. þm. Helgi Hjörvar ræddi einmitt um þær þjóðir sem setja hvað mest til háskólamála, Kanada og Bandaríkin minnir mig að hann hafi nefnt, upp á 2,5%, en hv. þingmaður gat þess ekki hve há framlög einkaaðila eru inni í þessari tölu. Framlög hins opinbera til háskólamála innan þessara landa eru aðeins minni en okkar Íslendinga. Það eru einkaaðilar sem draga upp framlög þeirra ríkja, sem er afar jákvætt, sem eru í forustu innan OECD varðandi framlög til háskólamála.