Fjárlög 2006.
Frú forseti. Út í aðra sálma. Hv. þingmaður talaði hér um einkaframkvæmd og það væri enginn sem gæti skuldbundið ríkið nema Alþingi. Ég tek undir það með honum og ég er þakklát þegar ég heyri að hv. þingmaður, og það er ekki í fyrsta skipti, varar við því einkavæðingaræði sem gripið hefur um sig. Þar deilum við sjónarmiðum og ég tel líka að stórframkvæmdir á borð við Austurhöfnina og fleiri stórframkvæmdir þurfi að fara í gegnum Alþingi.
Nú erum við að lögleiða breytingu á lögum um fráveitumál sveitarfélaga. Þar eru einkaframkvæmdirnar farnar að vaða uppi. Ekki gerði hv. þingmaður tilraun til að hreyfa andmælum þegar það mál fór í gegn hér fyrir skemmstu. En ég vil spyrja: Úr því að ekki er hægt að skuldbinda Alþingi á þessum nótum nema með því að senda málin hér í gegn, hvernig líst hv. þingmanni þá á að menntamálaráðherra skuli vera að leggja niður stofnun sem hefur starfað hefur undir forræði ríkisins eða á fjármagni (Forseti hringir.) ríkisins í 50 ár, Listdansskóla Íslands, með því einu að breyta fjárlögum?